Fréttablaðið - 28.05.2022, Qupperneq 32
Ég er alin upp við
það að kvöld-
maturinn var miðpunkt-
ur dagsins hjá fjölskyld-
unni.
Elísa Viðarsdóttir, lands-
liðskona í íslenska kvenna-
landsliðinu í knattspyrnu,
hefur mikinn áhuga á mat
og matargerð almennt.
Hennar hugleiðsla fer fram
í eldhúsinu í gegnum elda-
mennskuna.
sjofn@frettabladid.is
Elísa hefur ástríðu fyrir því að
nostra við matinn og leggur mikið
upp úr því að bera matinn fallega
fram, notar fallega liti og veit fátt
skemmtilegra en að bjóða góðum
vinum og fjölskyldu heim í mat.
Elísa er menntaður matvæla- og
næringarfræðingur auk þess sem
hún spilar fótbolta með meistara-
flokki Vals og með íslenska
kvennalandsliðinu. Hún er í sam-
búð með Rasmusi Christiansen
sem einnig spilar með meistara-
flokki Vals í fótbolta og saman eiga
þau Guðmundu Hanne, fjögurra
ára. Fjölskyldan lifir og hrærist í
íþróttaheiminum á Hlíðarenda
og kann svo sannarlega að njóta
gæðastundanna saman.
Vildi gefa meira af sér
Elísa hefur líka nýtt tímann vel
undanfarin ár og kláraði til að
mynda meistaranám í næringar-
fræði árið 2018. „Þegar ég lagði
lokahönd á meistararitgerðina
mína í næringarfræði þá fannst
mér erfitt að setja punktinn á eftir
því. Með alla mína reynslu sem
afrekskona í íþróttum og með
mína menntun á bakinu langaði
mig að gefa eitthvað meira af mér
til íþróttafólks og úr varð fræðslu-
og uppskriftabók sem ber heitið
Næringin skapar meistarann, sem
snertir svolítið á heimi íþrótta-
fólks og getur hjálpað íþróttafólki
að auka orkuna í daglegu lífi og á
æfingum,“ segir Elísa, sem er vön
að vera með marga bolta á lofti
hverju sinni.
Næringin skapar meistarann
Aðspurð segist Elísa alla tíð hafa
verið mjög áhugasöm um matar-
gerð og uppeldið hafi líka gefið
tóninn. „Ég er alin upp við það að
kvöldmaturinn var miðpunktur
dagsins hjá fjölskyldunni. Ég á
þrjú systkini og foreldrar mínir
lögðu mikið upp úr því að við
ættum þessa stund sem fjölskylda.
Mamma eldaði öll kvöld og ætli
áhuginn hafi ekki svolítið óbeint
komið þaðan. Ég flyt svo fyrst
átján ára að heiman og þá þurfti
ég að hafa fyrir því sjálf að elda og
lesa uppskriftir sem kveikti endan-
lega áhugann.“
Hefur þú fundið það á eigin
skinni að það skipti miklu máli
að velja vel hvað þú borðar þegar
kemur að því að ná árangri í
íþróttum?
„Ég trúi því að næringin skapi
meistarann ásamt öðrum þáttum
að sjálfsögðu, það þarf að passa
upp á að sofa vel, æfa passlega
mikið og hugsa um andlegu
heilsuna. Ef jafnvægi fæst í þessum
þáttum þá er maður til alls lík-
legur.“
Elísu finnst líka skipta miklu
máli að næra líkamann vel. „Það
skiptir ótrúlega miklu máli þegar
líkaminn er undir miklu álagi
að næra hann vel til þess að fá
sem mest út úr honum. Nóg og
næringarríkt eldsneyti getur
gefið okkur aukalíf sem íþrótta-
mönnum, hjálpar okkur að jafna
okkur eftir átök og gerir okkur fyrr
klár í næsta bardaga.“
Þú ert gjarnan með marga bolta
á lofti í einu, hvernig gengur að
samtvinna allt þetta einkalífinu?
„Það hefur gengið vel hingað til,
ég er svo sem ekki vön öðru en að
sinna nokkrum verkefnum í einu.
Ég passa þó vel upp á jafnvægið á
milli fjölskyldu, vinnu og íþrótta,
til að vinna á móti öllum has-
arnum í fótboltanum til dæmis, þá
finnst mér gott að koma huganum
á aðra staði eins og að fara í göngu-
túra, elda, fara í sund eða vera með
fjölskyldunni. Þetta eru þættir
sem ég tek þá oft fram yfir það að
þrífa heimilið mitt eða minnka
þvottafjallið í þvottahúsinu. Ætli
forgangsröðun sé ekki besta orðið
til þess að lýsa því hvernig þetta
jafnvægi fæst þegar mikið er að
gera og ekki stressa sig of mikið
á því að það eigi eftir að þrífa eða
sinna öðrum heimilisstörfum.“
Opna þverfaglega heilsumiðstöð
Þessa dagana stendur Elísa í stór-
ræðum. „Ég, ásamt systur minni
og mági, er að opna heilsumiðstöð
með þverfaglegri þjónustu þegar
kemur að heilsu. Ég mun bjóða upp
á næringarráðgjöf ásamt fleiri frá-
bærum næringarfræðingum, systir
mín sem er menntaður klínískur
sálfræðingur mun bjóða upp á sál-
fræðiaðstoð og mágur minn sem
er sjúkraþjálfari verður einnig með
sjúkraþjálfaraaðstöðu ásamt fleiri
sjúkraþjálfurum.
Þarna munum við ná þessari
þverfaglegu nálgun þegar kemur
að heilsu og getum vísað hvert á
annað þegar/ef við sjáum að fólk
þyrfti hjálp á öðrum vígstöðvum.
Þessi nálgun er algjörlega fram-
tíðin þegar kemur að því að bæta
lífsgæði fólks og er líka stór partur
af heilsutengdum forvörnum.“
Í þættinum Matur og heimili á
dögunum bauð Elísa upp á ljúf-
fengt og hollt fiski-taco sem er
einn af hennar uppáhaldsréttum
enda mikið fyrir fisk. Hér deilir
hún uppskriftinni úr þættinum
með lesendum. Hægt er að fylgjast
með Elísu í eldhúsinu á Instagram-
reikningi hennar @elisavidars en
þar deilir hún girnilegum upp-
skriftum að hollum og ljúffengum
réttum þar sem fiskurinn er oftar
en ekki í forgrunni.
Fiski-taco að hætti Elísu
450 g þorskhnakkar
4 msk. ólífuolía
½ sítróna eða lime (safi)
½ poki taco-kryddblanda
Blandið saman olíu, sítrónu eða
lime og taco-kryddi í eldfast mót
eða skál. Þerrið þorskhnakkana vel
og skerið í litla bita. Leggið bitana
í eldfasta mótið og makið krydd-
leginum á bitana. Fiskinn má elda í
ofni við 180°C í 10-12 mínútur eða
skella á álbakka og út á grill í 8-10
mínútur. Varist að ofelda fiskinn.
Mangósalsa
½ mangó
⅓ agúrka
⅓ paprika
1 meðalstór tómatur eða nokkrir
litlir kirsuberjatómatar
½ lime (safi)
Skerið mangó, agúrku, papriku og
tómatana í litla teninga og kreistið
lime-safa yfir.
Maísmauk
1 dós maís
2 msk. smjör
Smá salt
Sigtið vatnið af maísnum, hitið
maís, smjör og salt í örbylgju eða
potti og maukið með töfrasprota.
Avókadósósa
1 dós sýrður rjómi (má vera 50/50
sýrður rjómi og majónes)
½ avókadó
Lime eða sítróna
Salt og pipar eftir smekk
Öll hráefnin sett saman og maukað
með töfrasprota eða í matvinnslu-
vél.
Raðið saman fiskinum, mangó-
salsa, maísmauki og avókadósósu á
tortilla-kökur eða taco-skeljar sem
eru hitaðar örstutt í ofni eða á grilli
áður en hráefnið er sett á þær. n
Hollt og gott fiski-taco að hætti Elísu
Elísa segist fá sína hugleiðslu í eldhúsinu gegnum eldamennskuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fiski-tacoið hennar Elísu er hollt og gott. Hún leggur mikla áherslu á að vera
oft með fisk í matinn enda hugar hún að heilsusamlegri matreiðslu.
Það sem þátttakendur uppskera:
• Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu
• Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra
• Kjark til að tala um eigin líðan og annarra
• Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd
• Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri
• Betra skipulag og skýrari markmið
• Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun
• Kveikja eldmóð og sýna seiglu
Námskeið hefjast:
9 til 12 ára Leiðtogabúðir 20. júní 8.45-17.00 4 dagar í röð
10 til 12 ára 13. júní 9.00-13.00 átta virka dagar í röð
13 til 15 ára 13. júní 13.30-17.00 átta virka dagar í röð
16 til 19 ára 3. ágúst 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti
20 til 25 ára 30. maí 18.00-22.00 tvisvar í viku, 9 skipti
Komum sterk inn í sumarið
Skráning á dale.is eða 555 7080
Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk
*Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_040722
4 kynningarblað A L LT 28. maí 2022 LAUGARDAGUR