Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 41
Forstöðumaður stýrir viðkomandi deild í samráði við framkvæmdastjóra sviðsins.
Forstöðumaður er ábyrgur fyrir daglegum rekstri, hefur eftirlit með vélum og tækjum og
vinnuskipulagi starfsfólks.
Ný framleiðslulína fyrir flokkun á endurvinnsluhráefni verður sett upp í júní 2022 og þarf
forstöðumaður að hafa umsjón með línunni og nauðsynlegu viðhaldi, ásamt því að sjá um
verkáætlanir, skráningar, starfsmannamál, upplýsingaflæði og skýrslugerð.
Helstu verkefni:
• Daglegur rekstur deildar og vinnuskipulag
• Umsjón svæðis, tækja og framleiðslulínu
• Verkbókhald
• Þátttaka í frekari uppbyggingu flokkunarkerfa
Hæfni og þekking:
• Vélvirki, vélfræðingur, vélaverkfræðingur
eða reynsla sem nýtist í starfi
• Afburða þekking á vélum og tækjum
er skylda
• Góð samskipta- og leiðtogahæfni
• Góð tölvukunnátta, grunnþekking á
Microsoft Dynamics AX æskileg
• Góð enskukunnátta
Íslenska gámafélagið hefur jafnrétti að leiðarljósi og hvetur öll kyn til að sækja um starfið.
Umsókn skal fylgja ferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2022 og skal sækja um í gegnum alfred.is
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgir Kristjánsson,
framkvæmdarstjóri Hráefna- og útflutningsviðs, birgir@igf.is.
Forstöðumaður hráefnisvinnslu óskast
hjá Íslenska gámafélaginu
577 5757 www.gamafelagid.is igf@igf.is
Við leitum að
fjármálaleiðtoga
Veitna
Við leitum að framsýnum einstaklingi með
fjármála- og rekstrarreynslu sem býr yfir
frumkvæði, leiðtogahæfni og umbótavilja.
OR samstæðan samanstendur af fimm
fyrirtækjum; Orkuveitu Reykjavíkur, Veitum,
Orku náttúrunnar, Ljósleiðaranum og Carbfix,
og hefur það hlutverk að auka lífsgæði með
samfélagsábyrgð að leiðarljósi.
Fjármálaleiðtogi Veitna heyrir undir
fjármálasvið Orkuveitu Reykjavíkur sem sér um
gerð fjárhagsspár, daglega fjármálastjórn,
fjármögnun, uppgjör og ýmsa aðra
fjármálaþjónustu fyrir öll fyrirtækin í
samstæðunni.
Hann hefur forystu um fjármál og rekstur
Veitna og vinnur náið með framkvæmdastjórn
Veitna. Samskiptafærni er lykilhæfni sem
fjármálaleiðtogi Veitna þarf að búa yfir.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2022.
Upplýsingar um starfið veitir Benedikt K. Magnússon,
framkvæmdastjóri fjármála, benediktk@or.is.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Nánar á www.or.is
• Kennari á yngsta stigi. 100%.
• Stuðningsfulltrúar, m.a. í sérdeild fyrir
nemendur með einhverfu. 75-80%.
Nánari upplýsinga á vef Reykjavíkurborgar:
http://reykjavik.is/laus-storf og hjá Hreiðari
Sigtryggssyni skólastjóra í síma 4116600
og á hreidar.sigtryggsson@rvkskolar.is
Lausar stöður í Langholtsskóla
haustið 2022
Vanur smiður óskast.
Smíðagarpar er öflugt verktakafyrirtæki í byggingariðnaði
sem fer ört vaxandi.
Við sinnum fjölbreyttum verkefnum víða um land og nú van-
tar okkur kraftmikinn smið með í teymið okkar sem er mjög
samstilltur og góður hópur.
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf í húsasmíði er skilyrði
• Góður í mannlegum samskiptum
• Drífandi og hvetjandi
• Skilar vönduðum og faglegum vinnubrögðum
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Frekari upplýsingar veitir:
Sigurður Árnason í síma 624-6402
eða info@smidagarpar.is