Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 43
Í græna hagkerfinu er dyggð að nýta vel hið gamla og fara vel með þær
auðlindir og eignir sem við gætum fyrir komandi kynslóðir. Auk þess að
vinna rafmagn úr endurnýjanlegum auðlindum leggjum við hjá Landsvirkjun
áherslu á að viðhalda mannvirkjum okkar sem best, til að lengja líftíma
þeirra og nýtingu. Nú þurfum við viðhaldsstjóra á Mývatnssvæði til að
hjálpa okkur að skila rekstrinum í góðu ástandi til komandi kynslóða.
Viðhaldsstjóri á Mývatnssvæði hefur umsjón með rekstri, eftirliti og viðhaldi
aflstöðva og veitumannvirkja og er staðgengill stöðvarstjóra.
Hæfniskröfur:
– Menntun á véla- og/eða rafmagnssviði
– Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni
– Stjórnunarreynsla æskileg
– Reynsla og þekking á sviði gæðastjórnunar, viðhaldsstjórnunar,
verkefnisstjórnunar, rafmagnsöryggisstjórnunar, verkstjórnunar
og áætlunargerðar er æskileg
– Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í starfi
– Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní
Fyrirspurnir um starfið má senda á
starf@landsvirkjun.is
Sótt er um starfið á vef Landsvirkjunar
landsvirkjun.is/laus-storf
Starf
Viltu hjálpa okkur að
varðveita auðlindina?
kopavogur.is
Menntasvið Kópavogsbæjar rekur 19 leikskóla í sveitarfélaginu. Í leikskólum Kópavogs eru u.þ.b.
2100 börn og um 700 starfsmenn í um 550 stöðugildum.
Kópavogsbær er barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag þar sem leikskólarnir vinna að innleiðingu
Barnasáttmálans í öllu sínu starfi. Starf leikskóla Kópavogs einkennist af faglegum metnaði þar sem
lögð er áhersla á skapandi og ánægjulegt starfsumhverfi barna og starfsmanna.
Talmeinafræðingur sinnir m.a. greiningum á málþroska- og framburðarfrávikum, talþjálfun, ráðgjöf og
fræðslu til foreldra og starfsfólks leikskóla. Mikilvægt er að talmeinafræðingur sé jákvæður og upp-
byggjandi í samskiptum, hafi ríkan vilja til að ná árangri og brennandi áhuga á að veita börnum þjálfun
og sinna fræðslu til foreldra og starfsfólks.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Löggiltur talmeinafræðingur.
· Réttindi á helstu próftæki.
· Reynsla af vinnu með börnum á leikskólaaldri æskileg.
· Góð færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni og vönduð vinnubrögð.
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
· Færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti.
· Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi við aðra sérfræðinga
· Ef ekki fæst löggiltur talmeinafræðingur kemur til greina að ráðinn verði nýútskrifaður talmeina-
fræðingur, þ.e. án löggildingar, sem starfar undir eftirliti og handleiðslu reynds talmeinafræðings.
Umsóknarfrestur er til og með 7.júní 2022. Ráðið verður í stöðuna eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð.
Talmeinafræðingur
á leikskóladeild
Kópavogsbæjar Grunnskóli Seltjarnarness
Dönskukennari, fullt starf
Þroskaþjálfi, fullt starf
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á
Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar
undir www.seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2022.
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
seltjarnarnes.is
Seltjarnarnesbær
Laus störf
Erum við
að leita að þér?
ATVINNUBLAÐIÐ 11LAUGARDAGUR 28. maí 2022