Fréttablaðið - 28.05.2022, Page 45

Fréttablaðið - 28.05.2022, Page 45
Ómótstæðilegt umhverfi og frábær börn Við leitum að skólastjóra, leikskólakennara og tónlistakennara við Reykhólaskóla í Reykhólahreppi Laus til umsóknar staða skólastjóra Reykhólaskóla Reykhólahreppur auglýsir stöðu skólastjóra Reykhólaskóla lausa til umsóknar. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki sem viðkomandi er ætlað að leiða. Í skólanum eru innan við 30 nemendur á grunnskólaaldri og 12 nemendur á leikskólaaldri. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra á þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Starfssvið: • Að starfa skv. lögum og reglugerð um grunn- og leikskóla • Að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi • Að leiða samstarf nemenda, starfsmanna, heimila og skólasamfélagsins í heild • Að stýra og bera ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið kennari • Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og uppeldis- og menntunarfræða er kostur • Reynsla af störfum á sviði stjórnunar, rekstrar og þróunarstarfi er kostur • Hæfni í mannlegum samskiptum • Faglegur metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði • Hreint sakavottorð Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn í skólamálum, er skapandi og metnaðarfullur. Staðan er laus frá 1. júlí 2022. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsókn skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, í síma 430-3200 eða í gegnum netfangið sveitarstjori@reykholahreppur.is Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Reykhólahrepps á netfangið sveitarstjori@reykholahreppur.is Staða leikskólakennara í 100% starfshlutfalli, best er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og skólastefnu sveitarfélagsins. Menntunar og hæfniskröfur: • Kennaramenntun, leyfisbréf og hæfni til kennslu í leikskóla • Góð íslenskukunnátta • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum • Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum • Reglusemi og samviskusemi • Hefur hreint sakarvottorð Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasam- bands Íslands. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Upplýsingar gefur Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri í síma 430 3200 eða í gegnum netfangið sveitarstjóri@reykholar.is Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra Reykhólahrepps á netfangið sveitarstjori@reykholar.is Laus til umsóknar staða tónlistakennara. Reykhólaskóli- tónlistardeild óskar eftir tónlistakennara í fullt starf frá og með 1.ágúst 2022. Við tónlistadeild Reykhólakóla stunda um 20 nemendur nám á ýmis hljóðfæri. Tónlistadeild er í mikilli samvinnu við grunn- og leikskóladeild Reykhólaskóla. Meirihluti kennslunnar fer fram á skólatima grunn- og leikskóladeildar. Helstu verkefni og ábyrgð. • Almenn tónlistakennsla • Tónmennt í grunnskóladeild. • Önnur verkefni sem skólastjóri felur kennara. Menntunar- og hæfniskröfur • Tónlistakennaramenntun eða haldgóð tónlistamenntun sem nýtist í starfi. • Færni í kennslu á ýmis hljóðfæri. • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Frumkvæði í starfi. • Góð íslenskukunnátta. • Hreint sakarvottorð. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Anna Björg Ingadóttir skólastjóri Reykhólaskóla á netfangið skolastjori@reykholar.is, eða í síma 4347806. Ferilskrá og kynningarbréf sendist á skolastjori@reykholar.is eða á Reykhólaskóli, Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppur. Reykhólar er sveitarfélag með um 230 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Í boði er flutningsstyrkur. Reykhólahreppur auglýsir stöður skólastjóra, leikskólakennara og tónlistakennara. við Reykhólaskóla lausa til umsóknar. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 40 nemendur á leik- og grunnskólastigi. Á Reykhólum er hægt að lifa af launum sínum! Flutningsstyrkur. Í Reykhólaskóla eru 40 nemendur í dag - Umsóknarfrestur er 31. maí í öllum tilfellum. - Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 www.radum.is • radum@radum.is Við ráðum Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.