Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 80
Það er alltaf jafn
spennandi að sjá
hvernig fólk bregst við
og við hefðum ekki
getað ímyndað okkur
betri viðtökur.
Anton Máni
ninarichter@frettabladid.is
CBBC, barnastöð breska ríkis-
sjónvarpsins, leggur niður sjón-
varpsútsendingar fyrir árið 2025.
Tim Davie, framkvæmdastjóri BBC
staðfesti við fjölmiðla í vikunni að
breytingin væri hluti af nýjustu
niðurskurðarlotu BBC.
Hann sagði við sama tilefni
að mannlífs- og menn-
ingarmiðaða sjónvarps-
stöðin BBC Fou r og
útvar psstöðin Radio 4
Extra myndu færa sig úr
línulegri dagskrá og yfir
á stafræna miðla, á iPlayer
og BBC Sounds. Sömu-
leiðis yrði dregið
ve r u le g a ú r
framleiðslu á
nýju efni.
Hann sagði
forsendur breytinganna vera að
yngri áhorfendur væru í síaukn-
um mæli að færa sig til annarra
streymisveita á borð við Disney+ og
Netflix. Þannig sé breytingin sam-
kvæmt áætlun sem miðar að því að
setja stafrænt aðgengi í fyrsta sæti.
Einnig eru breytingar í frétta-
miðlun, en BBC World News
og BBC News Channel
er ætlað að sameinast
og mynda eina sólar-
hringsfréttarás sem þjóni
bæ ði i n n lendu m og
alþjóðlegum markaði.
Þá liggur fyrir að leggja
niður svæðisbundna íþróttaum-
fjöllun í Oxford og Cambridge sem
ætlað er að renna saman við miðlun
frá Southampton og Norwich.
Í janúar tilkynnti breska menn-
ingar málaráðuney tið
um frystingu afnota-
gjalda næstu tvö árin,
sem leiðir til kröfu
um viðbótarhag-
ræðingu í rekstri
sem nemu r 285
milljónum punda.
Í fyrstu lotu sparn-
aðaraðgerða er
reiknað með 500
milljóna punda
spa r naði í for mi
endurfjármögnunar
og niðurskurðar.
Starfsmönnum var
tilkynnt um breyt-
inguna 26. maí og samhliða
því að 1.000 stöðugildi yrðu lögð
niður. 1.200 stöðugildi hafa verið
lögð niður á síðustu 18 mánuðum,
síðan Tim Davie tók við af Tony
Hall sem framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins.
Barnastöð BBC hefur framleitt
vinsælt barna-
efni á borð
við Hrútinn
Hrein og Tele-
tubbies. n
Barnastöð BBC undir hnífinn
ninarichter@frettabladid.is
Skjaldborg, hátíð íslenskra heim-
ildarmynda, fer fram í Skjaldborgar-
bíói á Patreksfirði hvítasunnuhelg-
ina 3.-6. júní. Þetta er í fimmtánda
sinn sem hátíðin fer fram. Miðasala
á hátíðina er hafin, en auk kvik-
myndasýninga er boðið upp á plokk-
fiskveislu og skrúðgöngu.
Opnunarmynd hátíðarinnar er
verðlaunamyndin Nelly & Nadine
eftir sænska kvikmyndagerðar-
manninn Magnus Gertten, sem er
jafnframt heiðursgestur hátíðar-
innar í ár.
Kvikmyndasafn Íslands verður
með sérstakan dagskrárlið þetta
árið sem nefnist Ísland á filmu.
Heimamyndadagur er einnig hluti af
hátíðinni, en þar verður boðið upp á
heimamyndabingó sem spilað er
upp úr heimagerðu myndefni Vest-
firðinga. n
Bíó og plokkfiskur
á Patreksfirði
Stubbarnir eða
Teletubbies
eru marg-
verðlaunaðir
barnaþættir úr
smiðju CBBC.
MYND/BBC
Hrúturinn Hreinn
hefur skemmt
áhorfendum um
allan heim frá
árinu 2007.
MYND/BBC
Patreksfjörður verður bíóborg um
hvítasunnuhelgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
toti@frettabladid.is
Mið-eldri borgarar fá óvænt og
sjálfsagt að sumra mati nokkuð
einstakt tækifæri til þess að sletta
úr klaufunum, í öruggu umhverfi
og 30 ára aldurstakmarki, eins og
árið væri 1990 í nostalgísku reif
partíi úti á Granda í kvöld.
Mikið er lagt í hljóðkerfi og ljósa-
gang enda á ferðinni fagmenn með
þriggja áratuga reynslu þar sem
plötusnúðarnir og frumkvöðlarnir
Maggi Lego og Agzilla ætla að rifja
upp valda takta sem snarvirkuðu
á mannskapinn á djamminu undir
lok síðustu aldar.
Þá átti reif senan sitt varnarþing
í Rósenbergkjallaranum í Tunglinu
og þótti furðuleg og framandi en er
nú orðin hluti af skemmtanamenn-
ingunni og þeir félagar ætla að gera
Ægi brugghús við Ægisgarð úti á
Granda að ígildi Rósen með svo
„old school“ setti að búast má við
að fólk fái f lassbökk fram á nótt.
Reifið er sem fyrr segir aðeins
ætlað fullorðnum enda mun þar
enduróma reifið sem reif mann-
skapinn í gang í Reykjavík á sínum
tíma og setti senuna af stað.
Aldurstakmarkið veldur því
mög u lega að ef t ir vænt ing in
eftir reifinu mælist einna mest á
skjálftamælunum í íbúahópi Vest-
urbæjar á Facebook þar sem fólk
virðist iða í skinninu að fá loksins
að djamma almennilega í sinni
heimabyggð.
Þau sem kunna á internetið geta
nálgast miða á Tix.is og þá ætti
eftirleikurinn að verða auðveldur.
Og mátulega villtur. n
Reif í Vesturbæinn
Maggi Lego og Agzilla verða í stuði.
Kvikmyndaheimspressan
hefur ausið nýjustu mynd
Hlyns Pálmasonar, Volaða
land, lofi eftir að hún var
heimsfrumsýnd í Cannes og
gagnrýnendur hafa sumir
furðað sig á því að myndin
hafi ekki verið valin í aðal-
keppnina um Gullpálmann.
toti@frettabladid.is
„Við vissum að við værum með
mjög einstaka mynd í höndunum,
en það er alltaf jafn spennandi að sjá
hvernig fólk bregst við og við hefð-
um ekki getað ímyndað okkur betri
viðtökur en þær sem við höfum
fengið til þessa og erum því alveg
í skýjunum hér í Cannes,“ segir
Anton Máni Svansson, framleiðandi
Volaða lands, nýjustu kvikmyndar
leikstjórans Hlyns Pálmasonar, sem
hefur gert stormandi lukku á hátíð-
inni í Cannes sem lýkur í dag.
Heimsfrumsýning myndarinnar
var liður í aðaldagskrá hátíðarinnar
þar sem hún var sýnd í hinum virta
flokki Un Certain Regard og í kjölfar
dynjandi klappsins tók kvikmynda-
heimspressan við og jós myndina
stjörnum og lofi. Myndin er meðal
annars sögð einstaklega frumleg,
að með henni stígi Hlynur fram sem
mikill kvikmyndahöfundur, hún sé
dýrmætur fjársjóður.
Þá er talað um myndina sem
mestu uppgötvunina á hátíðinni og
gagnrýnendur sumra miðla skilja
lítið í að hún hafi ekki verið í aðal-
keppni hátíðarinnar auk þess sem
því er spá að ekki sé þess lengi að
bíða að Hlynur blandi sér í keppnina
um Gullpálmann.
„Öll þessi jákvæða gagnrýni og
umtal á hátíðinni hefur nú þegar
skilað okkur f leiri og betri sölum
til fjölda landa víðs vegar um heim-
inn. Mikilvægast fyrir okkur er þó
einfaldlega að geta haldið áfram,
gert okkar næstu kvikmyndir og
gert þær vel, og þessi árangur gefur
ansi góðan byr í seglin,“ segir Anton
Máni. n
Volaða land
rís hátt í Cannes
Það er ekk-
ert volæði á
fólkinu á bak
við Volaða land
við Miðjarðar-
hafsströnd
Frakklands þar
sem stjörnum
rignir yfir Anton
Mána Svansson,
Hilmar Guð-
jónsson, Vic
Carmen Sonne,
Hlyn Pálmason,
Elliott Crosset
Hove, Ingvar
Sigurðsson, Ídu
Mekkín Hlyns-
dóttur og Katrin
Pors.
Aðalleikarinn Elliott Crosset Hove, Hilmar Guðjónsson, Vic Carmen Sonne og
framleiðandinn Anton Máni Svansson í sýningarhöllinni þar sem Volaða land
fékk standandi lófaklapp að frumsýningu lokinni.
Ingvar er kunnur staðháttum í Cannes og var reffilegur og svalur á heims-
frumsýningunni. MYNDIR/ LAURENT VU
48 Lífið 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 28. maí 2022 LAUGARDAGUR