Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 82

Fréttablaðið - 28.05.2022, Síða 82
Stemmningin baksviðs var rafmögnuð og stórkostleg! Mikil samstaða og stemmari í búningsherberginu. Gógó Starr Á uppstigningardag risu drottningar upp og stigu aftur fram í sviðsljósið eftir almennt skemmtanalífshlé í Dragkeppni Íslands þar sem dragvættir skemmtu áhorf­ endum í glæsilegri og fjöl­ breyttri keppni. margret@frettabladid.is Átta dragdrottningar og dragvættir kepptu fyrir troðfullu Tjarnarbíói í Dragkeppni Íslands. Eftirvæntingin var sannarlega mikil og áttum við dómarar erfitt verk fyrir höndum. Ásamt þeirri sem hér ritar sátu í dómnefndinni hin alræmda drag­ drottning Faye Knús, forðunartíg­ urinn Alexander Sigurður Sigfússon og Gunnlaugur Bragi Björnsson, for­ maður Hinsegin daga. Dragdrottn­ ingin Vera Schtillt kynnti keppnina og hélt uppi orkunni í salnum á milli atriða. Keppendur báru f jölbreyttri dragsenu landsins vitni. Þarna voru hreinræktuð kabarett­ og trúðaatriði, atriði sem léku sér að burlesque­forminu, gjörningalist, áhorfendaþátttaka, neo­drag og nörda­drag, svo fátt eitt sé nefnt. Ekki lengur kynjaskipt keppni Keppnin hefur tekið breytingum í gegnum árin. Í ár var keppninni ekki tvískipt í kónga og drottningar, heldur voru einfaldlega veitt fyrsta, annað og þriðja sætið sem og áhorf­ endaverðlaun. Þessi ákvörðun er í takti við þær áherslur sem eru að gerast í dragheiminum – almennur kynusli er að ryðja sér rúms og margir draglistamenn sem leika sér að kyntjáningu á sviði. „Dragsenan á Íslandi hefur hreinlega sprengt af sér þessa hefðbundnu kynjaskipt­ ingu og draglistafólk er farið að leika sér með það að snúa enn meira upp á kyngervin, blanda, hræra og hrista,“ segir Ásgeir Helgi, annar skipuleggjenda keppninnar, sem einnig kemur fram sem dragdrottn­ ingin Agatha P. „Síðan þótti okkur við hæfi að þetta væri opinn flokkur því þegar öllu er á botninn hvolft þá er það framkoma, hæfileikar, húmor og sviðsnærvera keppenda sem skilar þeim á toppinn, algerlega óháð kyngervi dragpersónunnar.“ Ásgeir segir að þau hafi þurft að hafa nokkra borða með ýmsum titlum. „Keppendur fengu sjálfir að ráða hver vinningstitill þeirra myndi vera, Dragdrottning, Dragkóngur eða t.d. Dragvættur Íslands.“ Rafmögnuð stemmning Sigurður Starr Guðjónsson, sem kemur reglulega fram sem Gógó Blandað, hrært og hrist í kyngervunum Aldrei nóg af confetti! Lazy Zadude er dragdrottning Íslands 2022. Kat Asstrophie með óhuggulegt og áhrifamikið atriði. Agatha P og Vera Schtillt skemmtu áhorfendum í dómarahléi. MYNDIR/ EVA ÁGÚSTA ARADÓTTIR Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fyr irv ar a. Mallorca 17. júní í 12 nætur 595 1000 www.heimsferdir.is 228.600 Flug & hótel frá 12 nætur 153.050 Flug & hótel frá 12 nætur Prinsotel La Doradaaaaa Starr, er hinn skipuleggjandi keppn­ innar. „Stemmningin baksviðs var rafmögnuð og stórkostleg! Mikil samstaða og stemmari í búnings­ herberginu sem ég myndi segja að væri einkennandi fyrir dragsenuna hér á landi – svona oftast!“ hlær hann. „Síðasta æfingin gekk ein­ staklega vel í þessari dúndur upp­ setningu hjá Tjarnarbíó og skýrt var að þetta yrði mögnuð keppni – sem varð svo að sjálfsögðu raunin.“ Fyrir hlé fluttu keppendur þriggja mínútna atriði, en eftir hlé var eins og hálfrar mínútu atriði þar sem átti að sýna hæfileika. Dansandi vírus Kvöldið hófst á orkumiklum dúett Veru Schtillt og Bjarna Snæbjörns­ sonar og svo hófst keppnin. Twinkle Starr stóð á miðju sviði og f lutti lagið My Way á sinn einstaka hátt þar sem látúnsbarkinn naut sín vel, og lagið undirstrikaði hinn ein­ staka stíl Twinkle Starr – með drag­ förðun en samt „5 o’clock shadow“ sem sást langt aftur í sal. Atriðið var fullkomin byrjun á keppninni þar sem Twinkle fangaði áhorfendur og fókus þeirra. Kat Asstrophie var með atriði í myrkum stíl, sem hefur verið áberandi á nýjustu dragsýningum á Gauknum. Hún sýndi frábæra grímuvinnu þar sem líkaminn túlk­ aði vel söguna í atriðinu. Hápunktur atriðisins var þegar hún f letti sig klæðum og saumaði saman á sér magann. Óhuggulegt og sýndi einn­ ig hæfileika hennar sem förðunar­ fræðings, sem hún fór svo betur í eftir hlé. Því næst tók Lola von Heart við, og sýndi atriði sem sýndi vel klass­ ísk drag­minni, vogue­dans, ýmsar leiðir til að kasta sér í gólfið og frá­ bæra varavinnu. Salurinn var algjör­ lega með á nótunum. Næst á svið var MorningStarr, sem hefur staðið fyrir Apocalipstick­sýningunum á Gauknum, þar sem drag­grasrótinni er sinnt afar vel. Atriði hennar þar sem hún lék nær ósigrandi Covid­ vírus hafði tvo aukadansara og gaf góða mynd af því dragi sem Morn­ ingStarr stendur fyrir. Því næst var komið að Úllu la Del­ ish. Atriðið hennar var með klapp­ stýruþema og náði hún salnum vel á sitt band – en það er spurning hvort að klappstýrudúskar í venjulegri stærð séu nóg á glitrandi dragsviði við hliðina á lengstu leggjum drag­ senunnar. Dagdraumar herbergisþernu Lady Zadude söng lag úr Litlu Haf­ meyjunni við lifandi undirleik. Lady Zadude er ein keppenda sem ekki kemur reglulega fram á hefð­ bundnum dragsýningum. Hún hefur frábæra baritónrödd og sneri vel út úr textanum svo hann varð meira fullorðins. Lifandi tónlistar­ flutningur er alltaf eftirminnilegur á svona sýningum og í hléi ræddu áhorfendur enn um atriðið hennar. Mr.Mrs.Rammstück lein hélt áfram uppi merkjum Apocalipstick­ sýninganna með orkumiklum kyn­ usla. Hán er frábær dansari og hefur heillandi sviðsframkomu. Í þessu atriði sem og nokkrum öðrum söknuðu dómarar þess að sjá betur framan í keppendur. Síðust á svið fyrir hlé var svo dragdrottningin Jenny Purr sem notaði ABBA­lagið Money Money í flutningi Meryl Streep. Hún byrjaði sem herbergisþerna sem umbreytt­ ist í burlesque­dansara, en í fyrri hluta atriðisins gleypti sviðið og umgjörðin leikmunina hennar og hefði farið betur að vera með kómískt­stóra hluti. Jenny Purr er algjör drottning „lipsynchsins“ og þarna sást vel hversu framarlega hún stendur á því sviði. Hraðbrúðkaup og glóðarauga Í síðari hluta keppninnar var komið að hæfileikaatriðum. Morning­ Starr hóf leika með dramatísku og afhjúpandi atriði um mennskuna, en Twinkle Starr var með hraðbrúð­ kaup með hjálp áhorfenda. Kaó­ tískt, en skemmtilegt. Þegar sett var upp fyrir seinna atriði Lady Zadude heyrðist andvarp í salnum: „Annað söngatriði?“ en andvarpið var óþarft, Lady Zadude flutti stórgott lag við dónalegan texta, sem var eins og masterclass í kabarettfram­ komu. Jenny Purr var með djöggl­ og poiatriði, mjög sjónrænt. Kat Asstrophy kallaði móður sína upp á svið og farðaði á hana glóðarauga, íklædd boxarasloppi með tilheyr­ andi boxklisjum. Skemmtileg inn­ pökkun á atriði sem hefði annars getað týnst í stóra sal Tjarnarbíós. Lola Von Heart skipti á kómískan hátt úr konu­ í karlaföt, nýtti svið og leikmuni vel og gaman var að sjá valdið sem hún hafði á líkamlegri tjáningu í takti við búningaskiptin. Línudans og bardagalistir Úlla la Delish kenndi víst línu­ dans á sínum, þótt ótrúlegt megi virðast, yngri árum. Hún sýndi mismunandi línudansa við mikinn fögnuð. Mr.Mrs.Rammstücklein lauk síðari hlutanum með bar­ dagaatriði í tölvuleikjastíl. Unun var að sjá hversu vel stúderaðar hreyfingarnar voru hjá henni og andstæðingi hennar. Áhorfendur þekktu vel vísanir í hljóðklippum. Í lok kvöldsins kusu áhorfendur sitt uppáhald, og var það Lady Zadude sem sigraði hjörtu þeirra, lifur og nýru. Twinkle Starr var í þriðja sæti og Lola von Heart í öðru. Áhorfendur og dómnefnd voru svo sammála: Lady Zadude er drag­ drottning Íslands 2022 og verður með atriði á fjölskylduskemmtun­ inni á Hinsegin dögum. Það er þó einlæg ósk dómnefndar að hún taki alls ekki síðara lagið sitt sem hún tók í keppninni. Að lokum ber að þakka Hinsegin­ dögum og dragdrottningunum Gógó Starr og Agöthu P fyrir stór­ kostlega keppni. Keppnin var dúnd­ urskemmtun og gaf breiða mynd af reykvískri dragsenu. n 50 Lífið 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.