Fréttablaðið - 28.05.2022, Blaðsíða 84
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
„Það er alveg makalaust hvernig
ráðamenn um allan heim, sem eru
lýðræðislega kosnir til embættis,
geta vikið sér undan ábyrgð út í
hið óendanlega. Tali eins og þeir
hafi engin völd. Kenna öðrum um í
sífellu,“ segir Lilja Katrín Gunnars-
dóttir, útvarpskona á Bylgjunni,
um einhverja skelfilegustu frétt
vikunnar sem er að líða.
„Ungur maður kaupir sér ekki
einn, heldur tvo, riff la, gengur inn
í fullan skóla af börnum og drepur
21 manneskju með köldu blóði.
Bandaríkjaforseti skilur ekki neitt
í neinu. Kennir skotvopnaiðnað-
inum og hans öf lugu lobbíistum
um að það sé auðveldara að kaupa
sér byssu vestanhafs en að panta
Big Mac. Kannski tímabært að
klukka forseta Bandaríkjanna og
benda honum á að hann sé valda-
mesti maður heims. Pæling,“ veltir
Lilja fyrir sér og snýr sér að íslensku
pólitíkinni.
„Síðan á að vísa tæplega 300
flóttamönnum úr landi. Ráðherrar
rífast. Benda á lögin. Benda hver á
annan. Bíddu, ha? Er þeim alvara?“
spyr Lilja og siglir á mið pólitískrar
greiningar.
„Sjálfstæðisflokkurinn útilokaður
úr meirihlutasamstarfi. Ekki út af
fólkinu á lista. Ekki út af málefnum.
Nei, landspólitík og valdagræðgi
andstæðinga skal það vera, heillin.
Það er svo innilega ósjarmerandi að
taka ekki ábyrgð. Það mætti halda
að verandi Íslendingur ætti ég að
vera orðin vön því en þetta lúkk fer
öllum bara einstaklega illa.“ n
Endalaus flótti ráðafólks undan ábyrgð
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, útvarps-
kona á Bylgjunni. MYND/AÐSEND
Saga Garðarsdóttir og Snjó-
laug Lúðvíksdóttir eru svo
fegnar að hafa lifað það af
að sameina grínkrafta sína í
sýningunni Allt eðlilegt hér
í Bæjarbíói í vor, að þær eru
æstar í að endurtaka leikinn
aftur og aftur. Þær taka því
upp þráðinn í byrjun júní
þegar Saga steytir Hnefa
Óðins á ný.
toti@frettabladid.is
„Við verðum náttúrlega eins og allir
Íslendingar svo manískar þegar
sólin byrjar að skína og grímurnar
fara að fjúka að við ákváðum bara
að henda okkur í að gera uppi-
standssýningu saman,“ segir leik-
konan Saga Garðarsdóttir, um
uppistand hennar og Snjólaugar
Lúðvíksdóttur, grínara og handrits-
höfundar, Allt eðlilegt hér, sem gerði
mikla lukku í Bæjarbíói í Hafnar-
firði í apríl.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við
Snjólaug gerum sýningu saman og
þótt ég sé búin að vera með uppi-
stand í mörg, mörg ár þá er þetta í
fyrsta skipti sem ég geri svona í leik-
húsi og stend 100 prósent með því
og er ekkert að fela mig bak við ein-
hverja stráka.“
Sameiginleg valdefling
Saga segir aðspurð að þær Snjó-
laug eigi sér ekkert langa sögu. „Við
erum eiginlega bara að verða vin-
konur núna en við vorum báðar á
þeim stað að vilja skrifa nýtt efni
en vorum báðar eitthvað hikandi
þannig að við ákváðum að gera
þetta saman og fundum þá að við
urðum ótrúlega öflugar í samein-
ingu.
Þá urðum við svo æstar að við
hlupum upp í Bæjarbíó og ákváðum
dagsetningar og miðaverð. Síðan
föttuðum við bara að við þurftum
að semja sýninguna og svo neydd-
umst við til að búa til grín,“ segir
Saga hlæjandi.
„Þá upphófst náttúrlega mjög
kvalafullt tímabil þar sem ég spurði
manninn minn svona hundrað
sinnum á dag hvort þetta eða hitt
væri fyndið og hann var alveg búinn
að missa húmorinn fyrir mér og ég
gat ekki tekið þátt í neinum heim-
ilisstörfum því ég var svo upptekin
af sjálfri mér,“ segir Saga, þegar
hún rekur hvernig grínið bitnaði á
Snorra Helgasyni tónlistarmanni
sem hún notar hiklaust sem grín-
mælikvarða.
„Ég held að hann sé minn besti
dómari. Bæði af því að mér finnst
hann svo fyndinn og svo líka af
því að ég reyni hvað mest að ganga
í augun á honum. Það skiptir mig
svo miklu máli að hann hætti ekki
að vera skotinn í mér.“
Öruggt grín á Tene
Saga segir vissulega taugatrekkjandi
að semja grín enda líklega fátt jafn
niðurlægjandi og að standa á sviði
og takast ekki að vera fyndin. Fyrir
utan auðvitað að nú þurfa grínistar
að gæta orða sinna sem aldrei fyrr.
„Maður er náttúrlega alltaf að
vanda sig, vill gera vel en svo finnst
mér ég hafa komist ágætlega hjá
þessu með því að gera mest grín
að sjálfri mér og næst mest grín að
Snorra. Þegar ég er búin að gera grín
að okkur þá sný ég mér að svona
valdamiklu fólki sem þolir þetta
alveg. Svo finnst mér líka mjög auð-
velt að gera grín að fólki sem hefur
farið til Tenerife af því að þá ertu
eiginlega búin að gera grín að öllum
Íslendingum. Það er líka svolítið
öruggt því þá erum við öll einhvern
veginn sek.“
Saga minnir síðan á að hún hafi
stofnað hljómsveitina Hnefa Óðins,
ásamt vini sínum Mána Arnarsyni,
sérstaklega fyrir sýninguna og þau
muni halda áfram að troða upp í
lokin.
„Ég hef náttúrlega alltaf verið
svolítið í skugganum af Snorra
Helgasyni. Óhjákvæmilega,“ segir
Saga um tónlistarferil sinn. „Þann-
ig að ég ákvað að stofna hljómsveit
með vini mínum sem kann smá á
klarinett. Við sömdum nokkur lög
og æfðum alveg tvisvar, þrisvar. Þau
eiga kannski svolítið sameiginlegt
að vera mjög stutt og okkur finnst
mjög erfitt að spila þau af því að við
kunnum ekki nógu vel á hljóðfæri.“
Allt eðlilegt
Saga segir þær Snjólaugu hafa
ákveðið að kalla sýninguna Allt
eðlilegt hér. „Af því að það er eitt-
hvað svona sem fólk segir þegar
hlutirnir eru alls ekki í lagi. Og svo
líka af því að nú er allt eiginlega
orðið eðlilegt eftir kóvíd dæmið
og fólk vill aftur fara að lúðra í sig
bjór og sitja mjög nálægt öðru fólki
og hlæja hátt,“ segir Saga og víkur
að marglaga merkingu yfirskriftar
sýningarinnar.
„Við erum svo djúpar. En fyrst og
fremst erum við svo glaðar að hafa
tekið svona mikið stökk og lifað það
af og þess vegna erum við svo æstar
að okkur langar að gera þetta aftur
og aftur.“
Þær ætla því að byrja á því að láta
vaða í Bæjarbíói föstudaginn 3. júní
og sjá svo til með framhaldið. n
Tenefólk þarf að þola grínið
Saga og Snjólaug komust lifandi af og
halda ótrauðar áfram. MYND/AÐSEND
Saga Garðarsdóttir gerir grín að sjálfri sér við eðlilegar aðstæður. MYND/AÐSEND
n Fréttir vikunnar
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
HOUSTON sófi
2,5 sæta sófi í koníakslituðu bonded leðri.
212 x 92 x 85 cm. Fullt verð: 179.900 kr.
LICATA u-sófi
Fallegt Kentucky koníakslitað bonded
leður. 366 x 226 x 82 cm.
Fullt verð: 369.900 kr.
Nú 143.920 kr.
Nú 295.920 kr.
SÓFADAGAR
Lýkur á mánudag
AUSTIN sófi
3ja sæta stillanlegur sófi. Hægra og vinstra sæti eru
hallanleg með skammel. Miðjusæti niðurfellanlegt
og verður að borði. 198 x 95 x 98 cm.
Fullt verð: 299.900 kr. Nú 239.920 kr.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð,
afsláttarkóða eða aðgang að útsölum
á undan öðrum með því að skrá þig á
póstlista Dorma.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
52 Lífið 28. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ