Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 4

Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 4
96 2 Á undanförnum árum hefur binding kolefnis með ræktun skóga verið til umræðu. Einstaklingum og fyrirtækjum hefur gefist kostur á að kolefnisjafna eigin neyslu með því að styrkja gróðursetningu. Vistfæðingar hafa hins vegar goldið varhug við að stórfelld gróðursetning skóga kunni að vinna gegn öðrum markmiðum og skuldbindingum tengdum umhverfis- vernd. Þannig getur umfangsmikil ræktun nytjaskóga raskað náttúru- legum gróðri og búsvæðum fugla og annara dýra og þar með unnið gegn líffræðilegri fjölbreytni sem Ísland hefur einnig skuldbundið sig að vernda. Varnaðarorð heyrast einnig um aukna nytjaskógrækt með framandi tegundum, sem síðar geta reynst ágengar. Dæmið sýnir hvað það er mikil- vægt að horfa vítt á aðstæður og meta áhrif aðgerða á aðra þætti en þá sem athyglin beinist að í upphafi. Hugsan- lega koma slík áhrif ekki í ljós fyrr en eftir að farið er af stað. Þá þarf að vera mögulegt að laga aðgerðaráætlanir að nýjum veruleika. 3 Sumar umhverfisáskoranir geta reynst verulega flóknar. Þótt almennt samkomulag sé um að við- brögð þoli enga bið, þá getur ríkt óvissa um heppilegar aðgerðir. Dæmi er um- búðamenning samtímans. Komið hefur æ betur í ljós sú mikla óheillaþróun sem einnota umbúðir og áhöld hefur valdið. Notkun þeirra hefur aukist gríðar- lega á heimsvísu undanfarna áratugi og er orðin svo samofin aðfanga- og virðiskeðjum heimsins að erfitt reyn- ist að vinda ofan af henni. Framleiðsla umbúðanna er oft á tíðum orkufrek og óumhverfisvæn, líftími vörunnar stuttur og afdrif hennar eftir notkun vandamál. Brugðist hefur verið við með ýmsum hætti, og taka þau viðbrögð oft á tíðum á sig sérkennilegar myndir. Bönn hafa verið sett á einstaka vöruflokka, vöru- þróun með nýjum hráefnum efld, hvatar innleiddir til aukinnar endurnýtingar, endurvinnslu eða minni umbúðanotk- unar. Sumar af þessum tilraunum hafa þó reynst óhagkvæmar eða skaðlegar umhverfinu á annan og ófyrirséðan hátt. Enn virðist því nokkuð í land með lausn umbúðavandans. Líkt og í verkefnum þar sem langtí- markmið eru ekki að fullu ljós og leiðin að þeim óviss er mikilvægt að gera ráð fyrir sífelldri endurskoðun aðgerðaá- ætlana í umhverfismálum. Það verður helst gert með því að vera stöðugt vak- andi fyrir upplýsingum, innleiða nýja tækni, og hafa kjark til að viðurkenna mistök, læra af þeim og jafnvel skipta um skoðun. Einnig má læra af yngri kynslóðum sem virðast opnari fyrir lausnum sem þeim eldri kann að þykja óhugsandi. Droplaug Ólafsdóttir líffræðingur og MPM-verkefnastjóri er formaður ritstjórnar Náttúrufræðingsins og starfsmaður vinnuhóps Norður- skautsráðsins um lífríkisvernd (CAFF). Kveðja frá ritstjóra Þetta hefti Náttúrufræðingsins er hið 16. og síðasta sem ég ritstýri í þessari lotu frá hausti 2014, en áður var ég ritstjóri tímaritsins árin 1996–2006. Á þessum árum hef ég unnið með og kynnst mörgum tugum höfunda og öðrum eins fjölda ritrýna. Það er ekki einfalt að skrifa um flóknar og sérhæfðar rannsóknarniðurstöður þannig að allur almenningur hafi gagn af lestrinum − en það er einmitt markmið tímaritsins og hefur verið frá upphafi. Sá stóri hópur nátt- úruvísindamanna sem hér á hlut að máli hefur lagt sig fram um að fylgja þeirri stefnu af metnaði og í sjálf- boðavinnu, að öðru leyti en því að sumir höfundar fá greinar sínar metnar til framgangs innan stofnunar sinnar. Náttúrufræðingurinn er eitt elsta tímarit landsins og eina tímaritið sem birtir ritrýndar greinar í náttúrufræðum á íslensku, sem er lykilatriði − því aðeins þannig geta ný hugtök og hugmyndir, til að mynda í náttúruvernd, þroskast og orðið til gagns sem sameiginleg þekking og skilningur fjöldans á mikilvægustu málefnum samtímans. Náttúrufræðingurinn stendur á krossgötum. Fram undan er löngu tímabær ferð inn i hinn stafræna heim með nýju vefsetri sem vonandi verður að veruleika á árinu 2022. Ég óska nýjum ritstjóra prentútgáfu og netút- gáfu Náttúrufræðingsins allra heilla í starfi um leið og ég þakka virki- lega ánægjulegt og gefandi samstarf við höfunda efnis, ritrýna og ekki síst formann ritstjórnar og ritstjórn tímaritsins á undangengnum árum. Útgáfa tímarits kallar einnig á sam- starf við aðra fagmenn: prófarka- lesara, ljósmyndara, grafíska hönnuði og prentara. Þessum góða hópi vil ég líka þakka samstarfið. Útgefendum tímaritsins, Hinu íslenska náttúru- fræðifélagi og Náttúruminjasafni Ís- lands, sendi ég baráttukveðjur á nýrri og spennandi vegferð. Álfheiður Ingadóttir

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.