Náttúrufræðingurinn - 2021, Blaðsíða 62
Náttúrufræðingurinn
154
Ritrýnd grein / Peer reviewed
10. mynd. Tíðni (%) fundarstaða skötuorms eftir landshlutum
(n=237). – Frequency of occurrence (%) of Arctic tadpole shrimp
locations by country regions (n=237).
Í tengslum við hlýnun vatna í seinni
tíð má benda á að skötuormar hafa áður
búið við meiri hita en þeir gera nú. Til
þessa benda meðal annars rannsóknir
á um það bil 7.000 ára gömlu botn-
seti í stöðuvatni við Kangerlussuaq á
Vestur-Grænlandi. Þar fundust leifar
skötuorma, og á þessum tíma var sum-
arhitinn á Grænlandi umtalsvert hærri
en nú tíðkast.59 Fornlíffræðirannsóknir
á setkjörnum úr Syðri-Flóa í Mývatni,
sem spanna um það bil síðustu 2.000 ár,
staðfesta að skötuormar voru til staðar í
vatninu skömmu eftir að það myndaðist
fyrir um 2.000 árum,60 en flest bendir
til að þá og fram á 6. öld e.Kr. hafi loft-
hiti, að minnsta kosti að sumri til, verið
hærri hér á landi en nú er.55 Jafnframt
er talið að á þessum tíma hafi skilyrði
í vötnum almennt verið góð enda þótt
þá hafi verið hafin sú kólnun veðurfars
sem varði fram undir 9. öld þegar hlýna
tók á ný.55,61 Á 9.–11. öld var fremur hlýtt
hér á landi, þó ekki eins og nú,55 en þá
virðist jafnframt hafa verið mikið af
skötuormi í Mývatni. Honum fór svo
fækkandi í vatninu undir lok miðalda og
fram undir 18. öld,60 á sama tíma og kalt
var í veðri hérlendis.55
Auk beinna áhrifa hlýnunar á
skötuorminn þegar hækkandi lofthiti
veldur hlýnun í vötnum getur undir
tilteknum kringumstæðum einnig
verið um óbein áhrif að ræða. Þetta
virðist til dæmis eiga við um norsk
vötn sem liggja mjög hátt í landi, en
þar getur aukin úrkoma verið fylgi-
fiskur hlýnunar.19 Þetta getur haft
í för með sér að vötn kólna á vorin
þegar snjóalög minnka og leysinga-
vatn streymir í vötnin. Kólnun vatna á
þessum árstíma kann að draga úr vexti
og viðgangi skötuorms.45,46
NIÐURLAG
Þessi rannsókn staðfestir að skötu-
ormur er býsna algengur í tjörnum og
vötnum upp til heiða og fjalla á Íslandi,
einkum á miðhálendinu. Dýrin þrífast
við fjölbreyttar aðstæður, í örgrunnum
tjörnum og grunnum og djúpum
stöðuvötnum, bæði með silungi og án.
Útbreiðslumynstrinu hér á landi svipar
til þess sem þekkist í Noregi og Sví-
þjóð og víðar á norðurhveli og bendir
margt til þess að hitastig sé sá þáttur
sem takmarkar og mótar útbreiðsluna
hvað mest.
Vísbendingar eru fyrir hendi í gögn-
unum um áhrif hlýnandi loftslags á
útbreiðslu dýranna. Nauðsynlegt er
þó að renna styrkari stoðum undir
þann grunn og bæta við upplýsingum,
meðal annars með því að fara á marga
gamla fundarstaði, sérstaklega þá sem
liggja lágt í landi, og athuga hvort dýrin
er þar enn að finna. Með þessu móti
er einnig unnt að varpa ljósi á stöð-
ugleika í tilvist dýranna í viðkomandi
tjörnum og vötnum. Eitt og annað í
gögnunum gefur nefnilega tilefni til
að ætla að skötuormurinn sé býsna
lífseigur og geti aðlagast óstöðugu og
erfiðu umhverfi. Að hann skuli þríf-
ast í tjörnum og vötnum með breyti-
legri vatnsstöðu, vötnum sem kunna
að þorna og frjósa, en lifna samt við
og blómstra, líkt og Jón Guðmundsson
lærði lýsti fyrir hartnær fjórum öldum,
það segir sína sögu.
ENGLISH SUMMARY
Distribution of Arctic tadpole shrimps
(Lepidurus arcticus) in Iceland
In this study, the distribution of Arctic
tadpole shrimps (Lepidurus arcticus)
in Iceland was mapped in relation to
Vesturland Vestfirðir Norðurland Austurland Suðurland
0
5
10
15
20
25
30
35
40
T
íð
n
i (
%
) f
u
n
d
a
/
F
re
q
. o
f
o
cc
u
rr
e
n
ce
(%
)