Náttúrufræðingurinn - 2021, Page 11
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
103
Ritrýnd grein / Peer reviewed
1965 1970 1975 19801965 1970 1975 1980
1980 1985 1990 19951980 1985 1990 1995
Ár / YearÁr / Year
Ár / YearÁr / Year
400
600
800
1000
0
20
40
0
40
500
1500
80
L
an
d
ið
v
ei
d
d
d
ýr
F
o
xe
s
ki
lle
d
L
an
d
ið
v
ei
d
d
d
ýr
F
o
xe
s
ki
lle
d
H
o
rn
st
ra
n
d
ir
v
ei
d
d
d
ýr
F
o
xe
s
ki
lle
d
H
o
rn
st
ra
n
d
ir
v
ei
d
d
d
ýr
F
o
xe
s
ki
lle
d
árlega, athuga hvort þau séu í ábúð og
meta gotstærð. Stærð svalbarðastofns-
ins er ekki metin en fjöldi para á flat-
armál notaður sem vísir um þéttleika
ýmissa svæða.29 Nýlega var birt fjölþætt
stofnlíkan refsins á Svalbarða með því
að skeyta saman ólíkum gagnasöfnum
sem hvert og eitt dugði ekki til en gefa
saman ágæta heildarmynd um stofn-
vistfræði svalbarðarefa.30
Á Íslandi er hefðin fyrir veiðum afar
sterk og því er lítið til af annars konar
gögnum en þeim sem fengin eru með
veiðum, enda fá svæði þar sem refir
eru ekki veiddir. Þrátt fyrir að megin-
regla villidýralaganna sé sú að refir
séu friðaðir, á friðun sér almennt ekki
stað nema þar sem bann við veiðum er
sérstaklega tilgreint (5. mynd). Refa-
veiðar eru til dæmis stundaðar innan
tveggja af þremur þjóðgörðum landsins,
Vatnajökulsþjóðgarðs og Þjóðgarðsins
á Þingvöllum.
Í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð
segir m.a. að leita skuli „álits Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands á vistfræði-
legu þoli þeirra svæða þar sem ætlunin
er að veiðar og búfjárbeit verði heimil“.31
Ekki hefur verið leitað þessa álits svo
höfundi sé kunnugt um. Í reglugerð um
Vatnajökulsþjóðgarð segir jafnframt:
„Refaveiðar eru, eins og verið hefur,
óheimilar á eftirtöldum svæðum: Í
Skaftafelli, í Jökulsár gljúfrum og í Esju-
fjöllum.“32 Er þar átt við sömu svæði og
listuð eru upp í viðauka reglugerðar um
refa- og minkaveiðar54 (1. innskotsgrein)
en veiðar eru að öðru leyti heimilar með
sama hætti og á öðrum landsvæðum.
Þess ber að geta að sveitarfélögum er
ekki skylt að leita grenja ofan hálendis-
línu, sem er skilgreind í reglugerðinni
frá 1995. Sé sú lína hnituð upp sést að
töluverður munur er á þeirri afmörkun
sem nú er í gildi fyrir miðhálendis-
línu, eins og hún er skilgreind í lands-
skipulagsstefnu Skipulagsstofnunar33
(5. mynd), og óvíst hvort tekið er tillit til
þessa eða hvor línan á við þegar sveitar-
félög ákvarða grenjavinnslu á sínum
svæðum. Veiðitölur úr Vatnajökuls-
þjóðgarði liggja ekki fyrir. Þau sveitar-
félög sem eiga land í þjóðgarðinum, og
ráða refaskyttur til að sinna refaveiðum,
aðskilja ekki veiðitölur eftir því hvort
veitt var innan eða utan þjóðgarðs.
Samkvæmt lögum um Þjóðgarðinn á
Þingvöllum34 getur Þingvallanefnd sett
sérstakar tímabundnar reglur um veiðar
dýra og fugla innan þjóðgarðsins. Í
reglugerð um Þingvallaþjóðgarð eru
enn fremur ákvæði um að skotveiði sé
óheimil innan þjóðgarðsins35 en Þing-
vallanefnd er heimilt að „gera ráðstafanir
til eyðingar á dýrum eftir því sem þörf
krefur vegna friðunar þjóðgarðsins“.
Ekki liggur fyrir hvaða reglur Þing-
vallanefnd hefur sett sér en vegna þess
að þar eru af og til veiddir refir má ætla
að refaveiðar séu meðal þeirra ráðstaf-
ana sem gripið hefur verið til á svæðinu.
Tölur um refaveiðar í Þingvallaþjóðgarði
liggja þó ekki fyrir samkvæmt svörum frá
þjóðgarðsverði í mars 2021.
Svo virðist sem ákveðinn ótti sé ríkj-
andi um afleiðingar þess að hætta refa-
veiðum, að þá muni refum fjölga óstjórn-
lega, sjá t.d. í greinargerð með þingsá-
lyktunartillögu sem ítrekað hefur verið
sett fram um breytt fyrirkomulag refa-
veiða. Í þingskjalinu á 141. löggjafarþingi
segir meðal annars að „friðun ákveðinna
landsvæða [hafi] leitt af sér óhóflega
stækkun refastofnsins“.36 Því er áhuga-
vert að athuga hvort til eru gögn sem
gefa tækifæri til að kanna hvort sá ótti
eigi við rök að styðjast, með því að meta
6. mynd. Stofnbreytingar refs á landinu í heild (vinstri) og á Hornströndum (hægri) samkvæmt veiðitölum sem eru til frá þeim tíma þegar veiðar
voru þar stundaðar. Efri myndirnar sýna tímabilið 1962–1980 (fækkun) og neðri myndirnar sýna tímabilið 1981–1994 (þegar refum fjölgaði á
landsvísu). Á Hornströndum eru meiri sveiflur í gögnunum á tímabili fjölgunar og tveir toppar sjást í fjölda veiddra dýra (1984 og 1992). – Hunting
statistics reveal similar trends in the number of killed foxes in Iceland (left) and Hornstrandir area (right) in the period before hunting was
forbidden in Hornstrandir Nature Reserve in 1995. The upper graphs show harvest numbers in the years 1958–1980 when the number of killed
foxes declined. The lower graphs show harvest numbers in the years 1980–1994 when the hunting bag increased in the country as a whole but
with fluctuations (two peaks) in the nature reserve. Gögn/Data: Umhverfisstofnun / The Environment Agency of Iceland.