Náttúrufræðingurinn - 2021, Side 48
Náttúrufræðingurinn
140
stóðu líffræðingarnir Þorleifur Eiríks-
son, Hrefna Sigurjónsdóttir og Hilmar
J. Malmquist. Einnig unnu Þorgerður
Þorleifsdóttir og Finnur Ingimarsson
sitt námsverkefnið hvort úr gögnum
sem safnað var í verkefninu.21
LISTAMAÐURINN
Hollenski listamaðurinn og ljósmyndar-
inn Wim van Egmond (2. mynd) sækir
innblástur og viðfangsefni í náttúr-
una og hefur sérhæft sig í smásjár- og
þrívíddarljósmyndun af smásæjum
ferskvatns- og sjávarlífverum. Hann
gengur lengra í vísindalegum vinnu-
brögðum en flestir aðrir listamenn og
notar eitt helsta tæki vísindamannsins,
smásjána, til að fanga á mynd hið smá-
sæja í ferskvatni og sjó. Þannig tvinnar
hann saman listina og vísindin og veitir
innsýn í heim sem flestum er hulinn
– heim sem á sér engan líkan í marg-
breytileika sínum.
Wim kom að undirbúningi sýningar
Náttúruminjasafns Íslands, Vatnið í
náttúru Íslands, sem opnuð var í
Perlunni í Reykjavík 1. desember 2018.
Einnig átti hann mikinn þátt í gerð
sýningar á eina örverusafni heims,
Micropia, í Amsterdam, þegar það var
opnað árið 2014 (www.micropia.nl).
Nú síðast vann Wim, í samvinnu við
örverufræðinginn Henk Bolhuis, mynd-
bandsverkið BIOFILM um smásætt
líf í örveruþekju leirunnar á hollensku
eyjunni Texel í Vaðlahafi. Megnið af
hafsvæðinu og leirum þess er á heims-
minjaskrá UNESCO. Verkið sýnir kvikar
og litríkar örverur, aðallega blágrænu-
bakteríur (e. cyanobacteria), og er sett
saman úr röð ljósmynda sem teknar
voru af örveruþekjunni á 15 mínútna
fresti í níu mánuði samfleytt.24 Myndir
og myndverk Wims hafa birst víða,
meðal annars í bókum og tímaritum og
á list- og leiksýningum.
Wim van Egmond hefur unnið til
margra verðlauna fyrir myndir sínar.
Hann hefur 35 sinnum hlotið verðlaun
og viðurkenningar í helstu mynda-
samkeppni fyrir smásjármyndir, Nikon
Small World Competition, og tvisvar
hreppt fyrsta sætið.25
Gefum Wim van Egmond orðið (í
þýðingu höfunda): „Ljósmyndun er
óvenjuleg blanda af tækni og skynjun.
Myndavélin er eins konar staðgeng-
ill augans, vélrænt skoðunartæki sem
gerir okkur kleift að fanga mynd. Ég er
sérstaklega hrifinn af þeirri hlið ljós-
myndunar sem er frábrugðin daglegri
skynjun okkar. Það er meðal annars
þess vegna sem ég hef kannað og þróað
ljóstæknilegar aðferðir sem nota má til
að dýpka sjónskyn okkar. Vísindin og
myndheimur þeirra hefur alltaf heillað
mig. Ég kýs að starfa einhvers staðar
mitt á milli lista og vísinda.“26
LEIÐANGURINN
Tilgangur leiðangursins var að taka
ljósmyndir og kvikmyndir af skötu-
ormum í náttúrulegu umhverfi sínu.
Ferðin var farin á vegum Náttúru-
minjasafns Íslands og leiðangursmenn
voru greinarhöfundar og listamaður-
inn Wim van Egmond (2. mynd). Wim
er okkur á Náttúruminjasafni Íslands
að góðu kunnur og því afréðum við að
fá hann til landsins til að taka myndir
af skötuormum til fræðsluefnis á
vegum safnsins. Fáir hafa séð þessi
einkennisdýr vatna á hálendinu með
eigin augum.
Veiðivötn í Landmannaafrétti urðu
fyrir valinu sem vettvangur mynda-
töku vegna þess að þar er skötuormur
algengur og vötnin mörg sem hann lifir
í. Því gerðum við ráð fyrir að nokkuð
auðvelt yrði að finna skötuorm. Einnig
er gistiaðstaða á staðnum sem spar-
aði okkur bæði ferðatíma og daglegan
akstur meðan á dvölinni stóð.
2. mynd. Leiðangursmenn frá sjónarhóli skötuormsins. Frá vinstri: Þóra Hrafnsdóttir líffræðingur,
listamaðurinn Wim van Egmond og Þorgerður Þorleifsdóttir líffræðingur. – The team from a
tadpole shrimp’s viewpoint. From left: biologist Þóra Hrafnsdóttir, artist and photographer Wim
van Egmond and biologist Þorgerður Þorleifsdóttir. Ljósm./Photo: Wim van Egmond.