Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 81

Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 81
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 173 Við Svanhildur skiptumst á fáeinum bréfum vorið 2008 í tengslum við samningu Sveppabókar minnar. Þar segir hún m.a.: Sjálf hef ég unnið fyrir mér við að kenna grunnatriðin um sveppi, og í því skyni lesið um eðli og sérkenni sveppa, ásamt greiningum þeirra. Strax í lok náms kenndi ég við polytekniska háskólann í Kaupmannahöfn ræktun og grein- ingar á myglusveppum og lærði þar að rækta þá. Í Árósum kenndi ég grunnatriði og sérkenni sveppa, en út yfir það sem nauðsynlegt var að kunna til að kenna þessi grunn- atriði, hef ég eingöngu unnið við skófir.7 Í bókinni birtist mynd af henni að leiðbeina við sveppa- greiningu í Árósum, og tók hana Jens H. Petersen, samstarfs- maður hennar, haustið 2003. Í eftirmælum Mehlsen segir ennfremur: Í byrjun sjötta áratugarins tók Svanhildur virkan þátt í að byggja upp tengslanet áhugamanna um sveppafræði á Árósasvæðinu, og var ómissandi lykilpersóna á mánu- dagsfundum Sveppafræðifélagsins í húsakynnum háskól- ans. Hún samdi snemma nokkur drög að greiningarlyklum fyrir þessa fundi, og kom þannig af stað því mikla verki við sveppalykla sem enduðu í bókinni Danske Storsvampe. (Kaupmannahöfn 1990).6 Fléttusöfnun og rannsóknir Eins og fyrr segir voru fléttur eða skófir (Lichenes) valgrein Svanhildar við meistarapróf í Höfn og ávallt síðan var fléttu- söfnun og -rannsóknir helsta áhugamál hennar. Þá hafði enginn Íslendingur lagt fyrir sig flétturannsóknir, en Daninn Christian Grønlund o.fl. höfðu kannað fléttuflóru landsins allt frá 1870 og ritað ýmislegt um hana. Lá því beint við að helga sig þessu vanrækta sérsviði. Áður var getið ritgerðar hennar um mosaþembur á Íslandi (1964), þar sem fléttur eru tals- verður þáttur í gróðrinum. Á Íslandi safnaði Svanhildur fléttum hvenær sem færi gafst á árunum 1949 til 1997, og munu íslensk fléttusýni í safni hennar vera um 2000 talsins. Auk þess safnaði hún fléttum í Færeyjum og Danmörku, svo og á ferðum þeirra Gunnars um Balkanskaga þegar hann var að rannsaka slavneskar mál- lýskur, og meira að segja á Grikklandi og Krít.5 Engin skrá hefur fundist um ritgerðir Svanhildar. Hörður Kristinsson hefur grennslast fyrir um þær hjá kollega sínum, Steen N. Christensen, við Botanisk Museum í Kaupmanna- höfn. Fram kom að Steen og Svanhildur eru samhöfundar tveggja vísindagreina um fléttur á Krít (2007), og á megin- landi Grikklands (2009) í þýska tímaritinu Willdenowia. Byggjast þær að miklu leyti á söfnun hennar, en Steen mun hafa annast endanlegar nafngreiningar (sjá ritaskrá). Á meginlandi Grikklands safnaði Svanhildur árin 1976, 1983 og 1991, og á Krít 1987 og 1993. Á Grikklandi voru skráðar 55 nýjar tegundir fyrir landið og 34 nýjar fyrir Krít. Auk þess er Svanhildur höfundur einnar smágreinar og meðhöfundur fimm stuttra greina um fléttuflóru Danmerkur í tímaritinu Graphis Scripta, með Vagni Alstrup, Ulrik Søchting, Steen N. Christensen o.fl., og byggjast þær að líkindum mest á söfnun hennar. Ekki hefur fundist grein með hennar nafni um fléttur í Færeyjum. Árið 1997 hélt Félag norrænna fléttufræðinga (Nordic Lichen Society) tólftu samkomu sína á Eiðum, dagana 7.–13. ágúst. Þátttakendur voru 21, frá Norðurlöndum og Rússlandi, og þar á meðal var Svanhildur, þá orðin 72 ára. Fyrir fundinn endurbætti Hörður Kristinsson fléttuskrá sína. Svanhildur sendi nokkrar athugasemdir við hana í bréfi 19. apríl 1997, og segir þar meðal annars: Gunnar og Svanhildur Svane, líklega um 2010. Mynd frá Jóni Olaf Svane.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.