Náttúrufræðingurinn - 2021, Síða 83
Tilgangur félagsins er að efla íslensk náttúruvísindi, glæða áhuga og auka þekkingu
manna á öllu er snertir náttúrufræði. Innganga í félagið er öllum heimil.
Einstaklingsárgjald er 5.800 kr. Í því er fólgin áskrift að Náttúrufræðingnum.
Hjónaárgjald er 6.500 kr. og nemendagjald 4.000 kr.
Annual dues, which include the subscription of the society’s journal, are 5.800 ISK.
Yfir vetrarmánuðina stendur félagið fyrir fræðslu- og umræðu-
fundum og verða þeir og aðrir viðburðir, svo sem stuttar gönguferðir
og annað sem tengist náttúrunni, auglýstir á heimasíðunni.
Náttúruminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins, höfuðsafn á sviði náttúrufræða
og heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hlutverk Náttúru-
minjasafns Íslands eru skilgreind í Náttúruminjasafnslögum nr. 35/2007 og Safna-
lögum nr. 141/2011. Náttúruminjasafnið er fræðslu- og vísindastofnun, ætlað að
gegna miðlægu hlutverki við miðlun þekkingar og upplýsinga um náttúrufræðileg
efni og vera ráðgefandi gagnvart öðrum söfnum landsins sem sýsla með náttúr-
una. Stofnunin byggir starfsemi sína á rannsóknum og gagnaöflun á eigin vegum
og í samstarfi við aðra, og á miðlun þekkingar og upplýsinga með staf- og rafrænni
útgáfu, ráðgjöf, fyrirlestrum og sýningahaldi.
Forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands er dr. Hilmar J. Malmquist.
hilmar.j.malmquist@nmsi.is
The Icelandic Museum of Natural History is the property of the
Icelandic state, a public institution appertaining to the Ministry of
Education, Science and Culture. The primary roles of the museum
are to shed light on Icelandic nature, natural history, use of natural
resources and nature conservation, and thereby promote conserva-
tion of natural heritage in Iceland and sustastinable use of nature.
The museum implements its functions by exhibitons, publication
and research.
Dr. Hilmar J. Malmquist is director of the Icelandic Museum
of Natural History. hilmar.j.malmquist@nmsi.is
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, Iceland — www.hin.is / hin@hin.is
Hið íslenska
náttúrufræðifélag
Stofnað 1889
Náttúruminjasafn Íslands
The Icelandic
Natural History
Society
The Icelandic Museum of Natural History
Stjórn félagsins 2021–2022 / Board members 2021–2022
stjorn@hin.is
Ester Rut Unnsteinsdóttir formaður / Chairman
formadur@hin.is Náttúrufræðistofnun Íslands / The Icelandic Institute of Natural History, Garðabær
Hrefna Sigurjónsdóttir varaformaður / Vice-chairman
Háskóli Íslands / University of Iceland, Reykjavík
Snæbjörn Guðmundsson gjaldkeri / Treasurer
gjaldkeri@hin.is Náttúruminjasafn Íslands / Icelandic Museum of Natural History, Reykjavík
Gróa Valgerður Ingimundardóttir ritari og vefstjóri / Secretary
ritari@hin.is Lundarháskóli, Svíþjóð / Lund University, Sweden
Anna Heiða Ólafsdóttir félagsvörður / Board member
felagsvordur@hin.is Hafrannsóknastofnun / Marine and Freshwater Research Institute, Reykjavík
Helena Óladóttir fræðslustjóri / Board member
kynning@hin.is Háskóli Íslands / University of Iceland, Reykjavík
Guðmundur Björnsson kynningarstjóri / Board member
Háskóli Íslands / University of Iceland, Reykjavík
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, Iceland — www.nmsi.is / nmsi@nmsi.is