Fréttablaðið - 16.06.2022, Side 1
1 1 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 1 6 . J Ú N Í 2 0 2 2
Skartgripir
Dieters Roth
Ziggy reis fyrir
hálfri öld
Menning ➤ 24 Lífið ➤ 28
Hæ, hó,
jibbí, jei!
Allar verslanir
opnar 17. júní
*Lokað í netverslun
Mmm ...
Grillspjót
hitta alltaf
í mark!
Spurt var um áhrif hvalveiða
á orðspor Íslands
n Alfarið góð
n Mjög góð
n Fremur góð
n Hvorki né
n Fremur slæm
n Mjög slæm
n Alfarið slæm
29,6%
1,
2%
2,
1%
2,
7%
32,4%
11,8%
20,1%
VIÐSKIPTI Stjórnendur stærstu
fyrirtækja landsins hafa vaxandi
áhyggjur af því hve erfiðlega gengur
að manna störf. Þetta sýnir ný
könnun Samtaka atvinnulífsins og
Seðlabankans á stöðu og framtíðar-
horfum í atvinnulífinu.
Framk væmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins segir aukinnar svart-
sýni gæta meðal stjórnenda. Hann
segir brýnt að ryðja úr vegi hindr-
unum sem koma í veg fyrir að fólk
utan EES flytji til landsins. SJÁ SÍÐU 10
Vaxandi áhyggjur
af manneklu
Halldór
Benjamín
Þorbergsson,
framkvæmda-
stjóri SA
Þeir voru stóískir trillukarlarnir í Hafnarfjarðarhöfn og létu ekki ljósmyndara Fréttablaðsins raska ró sinni þegar þeir dyttuðu að veiðarfærum í blíðviðri í gær. Veðurspáin fyrir morgundaginn er aftur
á móti ekkert sérstök og kannski ekki vitlausara en hvað annað að róa bara á þjóðhátíðardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
64,3 prósent telja hvalveiðar
skaða orðspor Íslands og 52,5
telja þær hafa lítinn efnahags-
legan ávinning.
kristinnhaukur@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Nærri tveir þriðju
aðspurðra, 64,3 prósent, telja hval-
veiðar skaða orðspor Íslands, sam-
kvæmt nýrri könnun sem Maskína
gerði fyrir Náttúruverndarsamtök
Íslands. 29,6 prósent telja að þær
hafi ekki áhrif og 6,1 prósent að þær
hafi góð áhrif.
33,2 prósent sögðust vera hlynnt
veiðum á langreyðum, sem eru nú
að fara að hefjast á nýjan leik, og
31,8 prósent telja það skynsamlegt
að stunda hvalveiðar. 35 prósent eru
hins vegar á móti veiðunum og 44,3
prósent telja þær óskynsamlegar.
Rétt rúmlega meirihluti svarenda,
52,5 prósent, telja hvalveiðar hafa
lítinn ávinning fyrir efnahagslífið
en 21 prósent telja þær mikilvægar.
Umtalsverður munur er á svörum
eftir bæði kynjum og aldri. 48 pró-
sent karla eru hlynnt hvalveiðum
en aðeins 17 prósent kvenna. 45
prósent 60 ára og eldri styðja veið-
arnar en aðeins 15,5 prósent undir
þrítugu. Lítill munur er á svörum
eftir landsvæðum, en þó aðeins
meiri stuðningur á landsbyggðinni.
Nokkur munur er á afstöðu eftir
stjórnmálaskoðunum. Mestur er
stuðningur hjá kjósendum Sjálf-
stæðisflokks, 63,4 prósent, og Mið-
f lokks, 60,1 prósent. 47 prósent
Framsóknarmanna styðja hval-
veiðar og 45,5 prósent kjósenda
Flokks fólksins. Hjá Viðreisn er
stuðningurinn 26,9 prósent, 22,1
Meirihluti telur skaða af hvalveiðum
hjá Sósíalistum, 17,3 hjá Vinstri
grænum, 12,8 hjá Samfylkingu og
11,2 prósent hjá Pírötum.
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir könnunina sýna
að viðhorfin séu að breytast. Fólki
finnist það ekki lengur þurfa að
verja hvalveiðar með kjafti og klóm.
Hvalaskoðun sé farin að skila mikl-
um ávinningi sem höfuðafþreying.
„Í hvert sinn sem við förum út
að veiða þessar ótrúlegur skepnur
eyðileggur það fyrir þeim sem eru
að selja þá upplifun að skoða hvali,“
segir Jóhannes. „Við vitum það, út
frá könnunum og öðrum gögnum,
að hvalveiðar hafa eyðilagt ótrúlega
mikið fyrir ferðaþjónustunni.“
Könnunin var framkvæmd 19. til
27. maí í Þjóðgátt Maskínu. Svar-
endur voru 957 talsins. n