Fréttablaðið - 16.06.2022, Page 20
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB
SKOÐIÐ
LAXDAL.IS
SUMARKJÓLAR
FRÁ
Glamúrinn réð ríkjum á
Tony-verðlaunahátíðinni
sem fór fram um síðustu
helgi. Þar voru bestu leikrit
og söngleikir síðasta árs á
Broadway verðlaunaðir og
það bættist við nýr EGOT-
verðlaunahafi.
oddurfreyr@frettabladid.is
Tony-verðlaunin voru haldin í 75.
sinn síðasta sunnudag í Radio City
Music Hall í New York og þar voru
bestu Broadway-sýningar síðasta
árs verðlaunaðar.
Sigursælustu sýningarnar voru
leikritið The Lehman Trilogy, sem
vann fimm verðlaun, meðal ann-
ars sem besta leikritið, og endur-
flutningurinn á söngleik Stephen
Sondheim, Company, sem vann
einnig fimm verðlaun, meðal ann-
ars fyrir besta endurflutninginn.
Söngleikurinn A Strange Loop,
sem hefur einnig unnið Pulitzer-
verðlaun, vann verðlaun sem
besti söngleikurinn. Hann fékk
11 tilnefningar, sem voru flestar
þetta árið, en vann bara til tvennra
verðlauna.
Jennifer Hudson vann verðlaun
sem aðalframleiðandi A Strange
Loop og varð þar með 17. ein-
staklingurinn í sögunni sem hefur
unnið Emmy-, Grammy-, Óskars-
og Tony-verðlaun.
Að sjálfsögðu mættu allar stjörn-
urnar á rauða dregilinn í fínustu
kjólum og jakkafötum sem völ er
á og miðillinn People tók saman
lista yfir best klæddu stjörnurnar.
Hér eru nokkur þeirra sem komust
á listann. ■
Best klæddu stjörnurnar á Tony-verðlaununum
Nýi EGOT-verðlaunahafinn Jennifer
Hudson var í hlýralausum og fallega
skreyttum kjól frá Pamella Roland.
Billy Porter var í silfurlituðum jakka-
fötum frá Dolce & Gabbana, rúllu-
kragabol og með silfurlitaða fléttu.
Ariana DeBose þótti sérlega glæsileg
í þessum sérsaumuða kjól frá Boss
og með skartgripi frá Or & Elle.
Hugh Jackman
og Sutton Fost-
er voru glæsileg,
hann var í klass-
ískum smóking
og hún var í
grænum Dolce
& Gabbana kjól
með skartgripi
frá Tiffany & Co.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Andrew Garfield mætti í flauels-
jakkafötum frá Tom Ford.
Sarah Paulson vakti athygli í þessum
sérstaka Moschino kjól með dökk-
rauðan varalit og hárið sleikt aftur.
Zach Braff kom með skemmti-
legan snúning á klassískan fatnað í
þessum brúna smóking úr flaueli.
Jessica Chastain var í bleikum Gucci
satínkjól og með dökkrauðan varalit.
Ungstirnið Gaten Mattarazzo var
flottur í ljósbrúnum og svörtum
jakkafötum og svartri skyrtu.
4 kynningarblað A L LT 16. júní 2022 FIMMTUDAGUR