Fréttablaðið - 16.06.2022, Síða 27
Bjórböðin á Dalvík eru
þau einu sinnar tegundar
á öllum Norðurlöndunum.
Þar geta gestir notið þess að
baða sig í fallegu umhverfi
í blöndu af óáfengum bjór,
vatni og geri og síðan gætt
sér á gómsætum mat úr
gæðahráefni frá svæðinu.
„Bjórböðin eru þau einu sinnar
tegundar á Íslandi og öllum
Norðurlöndunum, en þau urðu
fimm ára 1. júní síðastliðinn. Eins
og nafnið gefur til kynna bjóðum
við upp á bjórbað, þar sem gestir
okkar liggja í baði sem er fyllt með
vatni, bjór og geri, en við erum
einnig með útipotta,“ segir Ragn-
heiður Ýr Guðjónsdóttir, rekstrar-
stjóri Bjórbaðanna. „Þeir eru mjög
skemmtilegir, enda er gríðarleg
náttúrufegurð hérna allt um kring
og fallegt útsýni yfir í Hrísey, Kald-
bak og Þorvaldsdal.
Við erum líka með frábæran
veitingastað þar sem flestir rétt-
irnir eru tengdir við bjór á ein-
hvern hátt, svo það er hægt að
koma til okkar í dekur, slökun og
njóta þess svo að fá sér frábæran
mat,“ bætir Ragnheiður við. „Við
leggjum áherslu á fallegt og rólegt
umhverfi, góðan bjór og góðan
mat.“
Bað, slökun og dekur
í fallegu umhverfi
„Öllum finnst gaman að prófa
eitthvað nýtt og öðruvísi og við
bjóðum svo sannarlega upp á öðru-
vísi og um leið einstaka upplifun,“
segir Ragnheiður. „Eftir bjórbaðið
er svo boðið upp á sérstakt slök-
unarherbergi til að ná fullkominni
hvíld og mörgum finnst það
toppurinn af upplifuninni.
Við mælum svo með því að
sleppa því að fara í sturtu í minnst
fjórar klukkustundir eftir baðið,
svo að bjórinn og gerið fái sinn
tíma til að vinna almennilega á
húðinni og hárinu, en bæði verður
mjúkt samstundis og heldur svo
áfram að mýkjast þegar líður á,“
útskýrir Ragnheiður.
Matur úr gæðahráefni
frá svæðinu
„Á veitingastaðnum okkar leggjum
við áherslu á að bjóða mat sem er
gerður úr gæðahráefni frá svæðinu,
eins og fiski frá Hauganesi og kjöti
frá B. Jensen. Við reynum líka að
tengja matinn við alls konar bjór
og notum hann mikið í ýmsa rétti,“
segir Ragnheiður. „Kaldaborgarinn
okkar er til dæmis bjórleginn og
gríðarlega vinsæll. Hann er einn
af okkar upprunalegu réttum og
klikkar aldrei.“
Snyrtivörur sem hjálpa húðinni
Bjórböðin bjóða líka upp á ýmsar
sérgerðar snyrtivörur sem hægt
er að kaupa á staðnum eða panta
í vefversluninni og í gegnum síma
og tölvupóst.
„Sápurnar okkar koma frá
Tékklandi, en þetta eru vörur
sem við kynntumst í ferðalagi um
landið. Baðsaltið og baðolíurnar
eru svo þær sömu og við notum í
böðin, þær gefa frá sér góða lykt
og örlitla froðu,“ segir Ragnheiður.
„Vörurnar eru unnar úr bjór, geri
og humlum og eru stútfullar af
B-vítamíni sem hjálpar húðinni að
endurnýja sig og róar um leið kláða
í húð og hársverði.“
Einstök upplifun í
himnaríki baðunnenda
„Ísland er sannkallað himnaríki
fyrir baðunnendur og ég held að
enginn fari skítugur heim eftir
ferðalag um landið okkar. Hjá
okkur er hægt að fá alveg einstaka
upplifun á þessu sviði og bjór-
böðin okkar eru fyrir alla. Það er
ekkert áfengi í bjórnum sem fer
í baðið, svo það geta allir komið
í heimsókn til okkar,“ útskýrir
Ragnheiður. „Hingað kemur ótrú-
lega mikið af fjölskyldum með
börn, sem er bara frábært.
Bjórbað er líka alls ekki bara
fyrir bjóráhugafólk. Þetta er
fyrst og fremst heilsulind og hér
fá gestir fullkomna slökun og
fara héðan endurnærðir,“ segir
Ragnheiður. „Fyrir einhverja er
það auðvitað plús að það er hægt
að drekka bjór á meðan þú ert í
heimsókn, en áherslan er frekar
á einstaka upplifun og góða
þjónustu.“
Stanslausar hugmyndir
um stækkanir
„Við erum svo líka með stanslausar
hugmyndir um alls kyns stækk-
anir og breytingar. Núna næst
erum við að opna gistingu, en það
verður byrjað á fimm herbergjum
og svo förum við í stækkun þegar
líður á árið,“ segir Ragnheiður.
„Við erum líka komin af stað með
hugmyndir um frekari stækkun
Bjórbaðanna, en við látum duga að
gera eitt verkefni í einu.“ n
Bjórböðin eru opin frá kl. 12-22
alla daga nema sunnudaga, en
þá lokar kl. 21. Boðið er upp á
tvær rútuferðir frá Akureyri alla
opnunardaga kl. 11 og kl. 16. Mikil-
vægt að bóka sig í þær í gegnum
bookings@bjorbodin.is. Nánari
upplýsingar fást í síma 414 2828
og á www.bjorbodin.is.
Bjórböðin bjóða upp á einstaka slökun
Ragnheiður Ýr
Guðjónsdóttir,
rekstrarstjóri
Bjórbaðanna,
segir að þar sé
lögð áhersla
á fallegt og
rólegt umhverfi,
góðan bjór og
góðan mat.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
Á veitingastaðnum er boðið upp á mat sem er gerður úr gæðahráefni frá
svæðinu og bjór er mikið notaður í ýmsa rétti.
Í Bjórböðunum
er hægt að
fá einstaka
upplifun og full-
komna slökun.
Bjórböðin henta
líka öllum, því
það er ekkert
áfengi í bjórnum
sem er notaður í
böðin.
Útipottarnir eru mjög skemmtilegir, enda er gríðarleg náttúrufegurð allt í
kringum Bjórböðin og fallegt útsýni yfir í Hrísey, Kaldbak og Þorvaldsdal.
kynningarblað 7FIMMTUDAGUR 16. júní 2022 SUNDLAUGAR OG JARÐBÖÐ