Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 5

Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 5
1. tölublað 20215 Norrænn formannafundur er haldinn árlega þar sem formenn og varaformenn iðjuþjálfafélaga á Norðurlöndum hittast. Fundurinn var 11. október og rafrænn á TEAMS. Danir höfðu veg og vanda að undirbúningi og framkvæmd annað árið í röð. Það er alltaf jafn áhugavert að upplifa hversu mikill samhljómur er í þeim málefnum sem iðjuþjálfar á Norðurlöndunum setja á oddinn. Má þar nefna aðgengi fólks að þjónustu iðjuþjálfa, öldrunarmál, endurhæfingu og geðheilbrigðismál. Á formannafundinum voru fyrstu niðurstöður danskrar rann- sóknar á heilsu og líðan þeirra sem glíma við eftirstöðvar COVID kynntar, en Danir fylgja þessum hópi eftir með mark- vissri endurhæfingu og eftirfylgd á landsvísu. Mikill meirihluti skjólstæðinga nýtur þjónustu iðjuþjálfa í endurhæfingarferlinu. Fram kom að yfir 80% þeirra sem glíma við hamlandi eftirköst COVID sýkingar eru menntaðar konur með lítil börn. Þetta vekur upp spurningar um það hvort álagsþættir í lífsaðstæðum kvenna séu almennt fleiri en hjá körlum og að þær nái því síður heilsu eftir veikindi. Mig grunar að þessar niðurstöður rími við aðrar rannsóknir sem sýna að afleiðingar heimsfaraldursins hafa bitnað mun verr á konum en körlum. SJOT með hæsta skor Ársfundur SJOT (Scandinavian Journal of Occupational Therapy) fór einnig fram í október. Fram kom á fundinum að SJOT er með „Impact Factor“ upp á 2,611 stig og er það mesti stigafjöldi fyrir ritrýnd fagblöð um iðjuþjálfun á heimsvísu. Niðurhal efnis sem birst hefur í SJOT jókst um 40% á síðasta ári. Einstaklingar frá Ástralíu og Bandaríkjunum hlaða mest niður. Sem stendur er um 20% af efni SJOT opið og gjaldfrjálst. Ráðgert er að ritið verði alfarið með opinn aðgang innan skamms og umbreytingaferlið er langt komið. SJOT verður fyrsta fræðiritið innan iðjuþjálfunarfagsins sem innleiðir opinn aðgang fyrir lesendur. Á fundinum kom einnig fram að fjölmargar greinar bíða birtingar og er það fagnaðarefni hversu eftirsótt það er að birta efni í SJOT. Fulltrúi Íslands í ritstjórn SJOT er Björg Þórðardóttir og í ritnefnd eiga sæti þær Snæfríður Þóra Egilson og Guðrún Árnadóttir iðjuþjálfar ásamt öðru fræðafólki á alþjóðavísu. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag. Fyrsta útskrift úr nýrri námsleið Í júní síðastliðnum útskrifuðust 10 kandídatar með viðbót- ardiplóma á meistarastigi til starfsréttinda í iðjuþjálfun og er það fyrsti hópurinn sem lýkur slíku námi frá Háskólanum á Akureyri. Það er sannarlega gleðilegt að fá öflugan liðsauka í félagið og við óskum þeim hjartanlega til hamingju með áfangann. Geta má þess að það var einmitt í júní 2001 eða fyrir 20 árum að fyrstu kandídatarnir brautskráðust sem iðju- þjálfar. Þótt háskólahátíðin væri að mestu rafræn þá var hún afar hátíðleg og hlýða mátti á mörg áhugaverð erindi. Fram kom meðal annars hversu mikilvægt það er að stefna að starfi sem gefur gleði og lífsfyllingu. Kandídatar voru hvattir til þess að setja markið hátt og vera glöð í vinnunni. Andrea Björt Ólafsdóttir hlaut viðurkenningu frá IÞÍ fyrir hæstu einkunn í starfsréttindanáminu og Sigfríður Arna Pálmarsdóttir hlaut viðurkenningu frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, Kristnesi fyrir hæstu meðaleinkunn í iðjuþjálfun í grunnnáminu. Er ekki best að taka nema? Mikil eftirspurn er eftir starfskröftum iðjuþjálfa hér á landi líkt og í öðrum löndum. Heilbrigðisþing 2020 fjallaði um mönnun og menntun heilbrigðisstétta. Þar kom fram að skortur er á iðjuþjálfum og því talið brýnt að mennta fleiri á næstu árum og áratugum. Góðu fréttirnar eru að fjöldi þeirra sem skráir sig í nám í iðjuþjálfun við HA hefur aukist verulega síðastliðin þrjú ár. Á árlegum starfsþróunardegi kennara við námsbraut í iðjuþjálfun og stjórnar IÞÍ, sem haldinn var fyrr í haust kom fram að plássum í vettvangsnámi hefur ekki fjölgað að ráði frá upphafsárum námsbrautarinnar. Erfitt er að fá námspláss fyrir alla nemendur og ljóst að gera þarf átak í þeim efnum. Vakin var athygli á því að leiðbeinendur fá aðgang að námsefni þar á meðal ýmis konar matstækjum sem gagnast geta þeim og vinnustaðnum. Það má því segja að með því að taka að sér nema fái iðjuþjálfar gott sí- og endurmenntunartækifæri upp í hendurnar og ferlið sé ávinningur fyrir báða aðila. Ég vil hvetja starfandi iðjuþjálfa til þess að gerast vettvangsleiðbeinendur og taka að sér nema eins oft og kostur er. Við verðum að taka höndum saman og fjölga nemaplássum til muna!

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.