Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 25
1. tölublað 202125
og einum með myndrænu dagsskipulagi. Einnig er umhverfið
sett upp á myndrænan hátt til að auka sjálfstæði þeirra sem
sækja þjónustu í Skógarlund.
Starfið í Skógarlundi
Húsnæði Skógarlundar hafði lengi verið skipt í tvær deildir
sem hafa nú verið sameinaðar. Nú er starfið því töluvert fjöl-
breyttara fyrir alla, bæði þá sem hingað koma og starfsfólk.
Það starf sem áður var unnið hefur verið eflt og gert mark-
vissara. Auk þess hafa tölvur og önnur tækni verið innleidd
í starfið. Í dag er húsnæðinu skipt í átta starfsstöðvar en þeir
sem hingað sækja þjónustu fara á tvær stöðvar daglega, fyrir
og eftir kaffitíma. Þær eru: Skapandi starf, vinnuþjálfun, tölvur
og rofar, skynörvun, smíðar og handverk, gagnaeyðing, hreyf-
ing og reynsluboltar.
Skapandi starf
Í skapandi starfi fá einstaklingar tækifæri til að efla sköpunar-
gleði sína og virkja ímyndunaraflið í gegnum ýmiss konar efni-
við og áhöld. Unnið er að fjölbreyttum verkefnum með ólíkum
aðferðum til þess að koma til móts við færni hvers og eins. Í
skapandi starfi er meðal annars unnið með leir, gler, textíl og
alls konar málningu og liti. Þannig fá einstaklingar tækifæri til
að upplifa ólík efni og örva skynfæri sín í gegnum gleði og
fegurðarskyn. Þeir listmunir og nytjahlutir sem einstaklingar
skapa eru svo hafðir til sýnis og sölu á vorsýningu og jólamark-
aði Skógarlundar.
Vinnuþjálfun
Í vinnuþjálfun er unnið eftir hugmyndafræði TEACCH.
Einstaklingurinn hefur yfirsýn á það verkefni sem hann vinnur
frá upphafi til enda og veit því til hvers er ætlast af honum.
Verkefnunum er skipt upp í nokkra flokka eftir tilgangi þeirra
en lögð er áhersla á að verkefnin auki og viðhaldi færni, hafi
tilgang og séu vinnutengd. Dæmi um verkefni eru að para
saman sokka, æfa sig að hefta og klippa, flokka hnífapör og
ýmis bókleg verkefni. Í gegnum verkefnin má meðal annars
efla fínhreyfingar, samhæfingu augna og handa sem og að
efla úthald og einbeitingu.
Tölvur og rofar
Í tölvurýminu eru þrjár borðtölvur. Ein af þeim er með snertiskjá
á hreyfanlegum armi og geta því flestallir nýtt sér tölvurnar til
gagns og gamans. Fyrir þá sem geta ekki nýtt sér hefðbundinn
tölvubúnað er hægt að tengja rofa við tölvu og ná fram virkni
með honum. Einnig má tengja rofabox við alls kyns raftæki í
sama tilgangi. Á þessari stöð geta einstaklingar þjálfað upp
leikni í tölvunotkun með því að æfa sig að nota mús og lykla-
borð sem og lært á ákveðin forrit og leiki. Einnig eru nokkrir
iPadar sem hægt er að grípa í.
Skynörvun
Í skynörvun er rólegt og þægilegt umhverfi þar sem markmiðið
er að slaka á og njóta. Boðið er upp á fjölbreytta upplifun,
meðal annars í gegnum lýsingu, hljóð og mynd. Þannig er hægt
að aðlaga skynáreitið að þörfum hvers og eins, hvort sem það
er að fá hvíld frá amstri dagsins eða fá örvun frá umhverfinu. Í
rýminu er skjávarpi sem er tengdur tölvu og hljóðkerfi, bolta-
bað og aðstaða bæði til þess að setjast í þægilega stöðu og
leggjast niður.
Smíðar og handverk
Í smíðum og handverki er unnið með timbur. Á svæðinu eru
ýmis verkfæri og fá því einstaklingar að spreyta sig á fjöl-
breyttum verkefnum. Meðal annars er verið að saga, pússa,
negla, bora og mála. Í smíðum og handverki eru verkferlar
hvers verkefnis mjög skýrir þar sem ljúka þarf hverju verkþrepi
fyrir sig áður en hægt er að halda áfram. Einstaklingarnir gera
verkefnin frá grunni þar til það er tilbúið til sölu.
Gagnaeyðing
Í gagnaeyðingu eru fjórir tætarar og þar af er einn tengdur við
rofabox og rofa. Til þess að hægt sé að tæta pappírinn þarf
að fjarlægja hefti og bréfaklemmur. Því geta þeir einstaklingar
sem eru í gagnaeyðingu valið á milli þessara tveggja verkefna.
Þannig geta flestir unnið á þessari stöð með einum eða öðrum
hætti. Skógarlundur hefur tekið að sér að eyða gögnum fyrir
tvö fyrirtæki í bænum. Það skapar jákvæðni og eykur virkni
þar sem þau upplifa sig sem hluta af heild og eru að sinna
mikilvægu starfi.