Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 26
1. tölublað 202126
Hreyfing
Í hreyfingu er boðið upp á einstaklingsþjálfun þar sem unnið er
að auknu úthaldi, styrk, jafnvægi og liðleika. Markmiðið er að
þeir sem þangað koma njóti þessi að hreyfa sig og efli líkams-
vitund sína. Í hreyfingu er meðal annars göngubretti, hjól, lóð,
dýnur og rimlar. Einnig er nærumhverfið nýtt þegar veður leyfir.
Reynsluboltar
Hugmyndin með reynsluboltum er að þangað sé hægt að fara
vilji einstaklingur komast í minna áreiti. Þar er til dæmis boðið
upp á spjall, sögulestur, að skoða myndir og hlusta á tónlist í
rólegu umhverfi.
Aðlögunartími
Þær breytingar sem gerðar voru á innra starfi Skógarlundar
gengu mjög vel fyrir sig. Farið var af stað í breytingar í miðjum
covid-faraldri og var því ekki full þjónusta í boði í Skógarlundi.
Hópnum var skipt niður, bæði þeim sem hingað sækja þjón-
ustu og starfsfólki. Breytingarnar voru gerðar í fjórum hópum,
tveim fyrir hádegi og tveim eftir hádegi. Allir fengu því góðan
aðlögunartíma. Það kom okkur á óvart hvað aðlögunartíminn
gekk hratt og vel fyrir sig og ríkir almenn ánægja um breytt
fyrirkomulag.
Framtíð Skógarlundar
Framtíðin er björt og spennandi þar sem þjónusta Skógar-
lundar er enn í fullri þróun. Í haust verður unnið að vinnumati
sem aðstoðar starfsmenn að fylgja eftir getu og færni á hverju
svæði hjá þeim sem hingað koma. Nú þegar hefur verið send
inn umsókn fyrir augnstýribúnaði, sem er nauðsynleg viðbót
inn í tölvurýmið. Einnig er stefnt að því að búa til nýja starfsstöð.
Þar mun fara fram þjálfun í boðskiptum og leiðum til tjáningar.
Hér í Skógarlundi verður alltaf eitt af aðalmarkmiðunum að
bjóða upp á fjölbreytta þjónustu sem er í takt við tíðarandann.
Heimildaskrá
Akureyrarbær. (2014). Valdefling [bæklingur]. https://www.akureyri.is/static/files/
busetudeild/baeklingur_valdefling_2014.pdf
Akureyrarbær. (2017, 10. apríl). Kynningarrit um þjónandi leiðsögn. https://www.
akureyri.is/is/frettir/kynningarrit-um-thjonandi-leidsogn
Akureyrarbær. (2021). Ársskýrsla 2020: Búsetusvið Akureyrarbæjar. https://www.
akureyri.is/static/research/files/1618231763-busetusvid-arsskyrslan-2020pdf
Áslaug Melax. (2012). Boðskipti í Skipulagðri kennslu (TEACCH) [PowerPoint-
-glærur]. https://www.greining.is/static/files/vorradsstefna-2012/10ma-
i_B_Aslaug-Melax.pdf
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. (e.d.). Skipulögð kennsla (TEACCH). https://
www.greining.is/is/fraedsla-og-namskeid/thjalfunar-og-kennsluadferdir/
skipulogd-kennsla
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. (2010). Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir. https://
www.greining.is/is/fraedsla-og-namskeid/thjalfunar-og-kennsluadferdir/
ohefdbundnar-tjaskiptaleidir
Heilsuvera. (2019, 8. febrúar). Góð samskipti. https://www.heilsuvera.is/efnis-
flokkar/lidan/samskipti-og-tengsl/god-samskipti/
Klara Bragadóttir. (2016). Tengsl og samskipti. SÍBS-blaðið, 32(1), 20–23. https://
s3.amazonaws.com/static.sibs.is/documents/SIBS_01_2016.pdf
Lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992.
Rakel Marteinsdóttir. (2021). Gildi túlkaþjónustu fyrir notendur óhefðbundinna
tjáskipta. https://www.throskahjalp.is/is/samtokin/frettir/gildi-tulkathjon-
ustu-fyrir-notendur-ohefdbundinna-tjaskipta
Sigrún Grendal Magnúsdóttir. (2012, 10. maí). Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir
[PowerPoint-glærur]. https://www.greining.is/static/files/vorradsstefna-
-2012/10mai_B_Sigrun-Grendal.pdf
TEACCH® Autism Program. (e.d.). Structured Teaching TEACCH Staff. https://
teacch.com/structured-teaching-teacch-staff/
Valgý Arna Eiríksdóttir, Ester Einarsdóttir, Dagný Linda Kristjánsdóttir, Gestur
Guðrúnarson, Brynja Vignisdóttir, Halldór S. Guðmundsson og Kristinn Már
Torfason. (e.d.). Þjónandi leiðsögn [grunnkver og kynningarrit]. https://www.
akureyri.is/static/files/01_akureyri.is/pdf/busetudeild_thjonandileidsogn_
single_lr008-loka.pdf
Þröstur Haraldsson. (2017). Nýsköpun í félagsráðgjöf. Tímarit félagsráðgjafa, 11(1),
22–26.