Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 43
1. tölublað 202143
Neikvæð áhrif félagslegra tengsla
Bakgrunnur
Heimsfaraldurinn af völdum COVID-19 hefur aukið félagslega einangrun fólks og
haft neikvæð áhrif á andlega heilsu þess. Embætti landlæknis sýndi fram á að
slæm andleg heilsa er raunverulegt vandamál þar sem 3 af hverjum 10 fullorðnum á
Íslandi telja andlega heilsu sína slæma. Út frá þessum upplýsingum og aukinni
umræðu um áhrif félagslegrar einangrunar á líðan fólks í kjölfar heimsfaraldurs var
tilefni til þess að kanna hvert sambandið er á milli félagslegra tengsla og andlegrar
heilsu.
Markmið þessa kortlagningaryfirlits var að kanna hvaða gögn eru til um áhrif
félagslegra tengsla á andlega heilsu fullorðinna.
Samantekt
Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að misjafnt sé eftir eðli félagslegra tengsla hvort þau hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á andlega heilsu.
Þá getur fólk með ólíkan bakgrunn brugðist mismunandi við félagslegum tengslum. Til að koma til móts við ólíkar þarfir einstaklinga eru til
félagsleg úrræði sem hafa jákvæð áhrif á andlega heilsu fólks og gerir því kleift að vinna að einstaklings- og samfélagstengdum þáttum.
Aðferðafræði
Stuðst var við fimm þrepa aðferð Arskey og
O’Malley (2005) um skrif á kortlagningar-
yfirliti. Rannsóknirnar sem voru til
umfjöllunar voru fengnar frá leitarvélunum
EBSCOhost og Web of Science.
Grunnleitarorðin voru andleg heilsa,
félagsleg tengsl og fullorðnir auk samheita.
Alls voru 15 rannsóknir notaðar við skrif á
þessu kortlagningaryfirliti.
Áhrif félagslegra tengsla á andlega heilsu fullorðinna
Dagbjört Héðinsdóttir, Sonja Finnsdóttir og Þórdís Jónsdóttir
Iðjuþjálfunarfræðinemar við Háskólann á Akureyri
Niðurstöður
Jákvæð áhrif félagslegra tengsla
Félagsleg úrræði
Arksey, H. og O’Malley, L. (2005). Scoping studies: Towards a methodological framework. International Journal of Social Research Methodology,
8(1), 19–32. https://doi.org/10.1080/1364557032000119616
Embætti landlæknis. (e.d.). Andleg heilsa - slæm: Hlutfall fullorðinna sem metur andlega heilsu sína sæmilega eða lélega. https://bit.ly/3ucmTTv
Fyrir frekari upplýsingar má senda tölvupóst á
Dagbjörtu á netfangið ha170164@unak.is
Einstaklingar sem voru hluti
af sérstæðum hópum fundu
fyrir neikvæðum áhrifum
félagslegra tengsla. Það má
ætla að ólík samhengi verði
til þess að sérstæðir hópar
sem hafa erfiða reynslu að
baki upplifi félagsleg tengsl á
neikvæðan hátt. Því er
mikilvægt að gera sér grein
fyrir samhengi í vinnu með
skjólstæðingum.
Fram komu þrjú félagsleg
úrræði fyrir fólk með andlegar
áskoranir. Þátttaka í þeim
úrræðum hafði fjölda
jákvæðra áhrifa á andlega
líðan eins og bætt sjálfsálit,
lífsgæði og vellíðan notenda.
Að nýta sér félagsleg úrræði
getur dregið úr félagslegri
einangrun og einnig úr
einkennum geðsjúkdóma.
Að finna fyrir trausti, vera
hluti af samfélagi og eiga í
nánu sambandi við aðra
hefur jákvæð áhrif á andlega
líðan. Jafningjastuðningur
hefur bætandi áhrif á líðan
fólks með geðrænar
áskoranir en slíkur stuðningur
dregur úr kvíða og depurð.
Sjá má hagnýt gildi fyrir bæði samfélagið og iðjuþjálfunarfagið. Greinilegt er að
félagsleg tengsl hafa í flestum tilfellum jákvæð áhrif á andlega heilsu. Með því
að auka aðgengi að félagslegum tengslum er hægt að draga úr fjölda þeirra
sem upplifa andlega heilsu sína slæma. Mikilvægt er fyrir iðjuþjálfa að gera sér
grein fyrir mikilvægi félagslegra tengsla á andlega heilsu skjólstæðinga sinna.
Hlutverk iðjuþjálfa í þjónustu við fólk með andlegar áskoranir er að efla vellíðan
og andlega heilsu ásamt því að efla skjólstæðinga sína til þess að taka þátt í
samfélaginu.