Iðjuþjálfinn - 2021, Qupperneq 42

Iðjuþjálfinn - 2021, Qupperneq 42
1. tölublað 202142 Heimildir Arksey, H. og O‘Malley, L. (2005). Scoping studies: Towards a methodological framework. International Journal of Social Research Methodology, 8(1), 19–32. Iðjuþjálfunarfræðinemar á 3. ári Umræður Niðurstöður AðferðBakgrunnur NPA þjónustu er ætlað að ýta undir að notendur fái tækifæri til að taka þátt í samfélaginu og lifa sjálfstæðu lífi. Til að mæta þeim markmiðum og réttindum fólks er mikilvægt að bera kennsl á bæði kosti og áskoranir þjónustunnar. Þörf er á íslenskum rannsóknum sem skoða sjónarhorn notenda hér á landi sem gæti gefið vísbendingar um áframhaldandi mótun NPA hér á landi. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) stuðlar að því að fatlað fólk geti lifað sem sjálfstæðustu lífi og byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. NPA gerir fötluðu fólki kleift að stjórna eigin lífi ásamt því að taka þátt í samfélaginu jafnt á við aðra. Þar sem NPA er tiltölulega nýtt þjónustuform hér á landi er lítið til af rannsóknum sem sýna upplifun notenda á Íslandi en NPA var samþykkt af Alþingi í apríl 2018 og lögfest í byrjun október það sama ár. Rannsóknarspurningin var því hvaða gögn eru til um að notendastýrð persónuleg aðstoð hafi áhrif á iðju fatlaðs fólks? Í þessari samantekt var notast við nálgun Arksey og O‘Malley (2005) um gerð kortlagningaryfirlits. Niðurstöður úr 13 rannsóknargreinum voru teknar saman og þemagreindar. Rannsóknargreinarnar þurftu að vera ritrýndar, skrifaðar á ensku eða íslensku og vera birtar á árunum 2011 til 2021. Tilgangur gagnasöfnunarinnar var að finna viðeigandi rannsóknir sem gátu svarað rannsóknarspurningunni. Notast var við þrjú leitarorð sem voru NPA, fatlað fólk og iðja ásamt samheitum til þess að fá nákvæmari niðurstöður. Niðurstöðunum var skipt í fimm þemu; samskipti, atvinna, fjölskyldulíf, kynlíf og tómstundariðja/þátttaka. Niðurstöður sýndu að NPA eflir iðju notandans en hins vegar voru dæmi um takmarkanir þegar kom að atvinnu og kynlífi. Því er mismunandi hvort þjónustan ýti undir eða dragi úr iðju notandans. Nína Björk Þráinsdóttir ha180205@unak.is Karen Sif Eyþórsdóttir ha170652@unak.is Aldís Ösp Sigurjónsdóttir ha160549@unak.is Áhrif notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar á iðju fatlaðs fólks

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.