Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 13
1. tölublað 202113
Á Reykjalundi fer fram þverfagleg endurhæfing á átta með-
ferðarsviðum og þar starfa alls 18 iðjuþjálfar sem gegna mik-
ilvægu hlutverki í allri teymisvinnu. Iðjuþjálfar vinna einstak-
lingsmiðað með hverjum og einum skjólstæðingi og sinna
auk þess öflugu hópastarfi og fræðslu samkvæmt áherslum
hvers teymis.
Starfsemi Reykjalundar hefur raskast undanfarna mánuði
vegna COVID-19, líkt og gerst hefur um allan heim. Vegna
sóttvarnaaðgerða þurfti í tvígang að gera meðferðarhlé
á Reykjalundi hjá vissum hópum, vinnustaðnum var skipt
upp í tvö meðferðarsvið og faghópum í meðferðarhólf.
Skjólstæðingar voru hálfan dag í meðferð og hinn hlutann með
dagskrá heima. Með stuttum fyrirvara tileinkaði starfsfólk sér
fjarmeðferð og öll teymisvinna var unnin þannig, sem þýddi
nýjar áskoranir fyrir alla. Einnig var hluti af fræðsluefni gerður
aðgengilegur fyrir skjólstæðinga á heimasíðu Reykjalundar.
Eftir fyrstu bylgju heimsfaraldursins bárust beiðnir vegna
skjólstæðinga sem glímdu við eftirköst COVID-19 og hafist var
handa við að undirbúa meðferð fyrir þennan hóp. Samhliða
því var farið að undirbúa þverfaglega rannsókn á langvinnum
einkennum og árangri endurhæfingar eftir COVID-19. Lítið er
vitað um langtímaáhrif sjúkdómsins en afleiðingarnar hafa
veruleg áhrif á daglegt líf fólks. Endurkoma til vinnu og að sinna
daglegum verkefnum hefur reynst mörgum erfitt, eftirköstin
oft ófyrirsjáanleg og fólk fær jafnvel ítrekuð bakslög. Ljóst er
að skjólstæðingahópurinn er mjög fjölbreyttur og fólk glímir
við margs konar afleiðingar af COVID-19. Þar má nefna einkenni
frá lungum, mikla þreytu, orkuleysi, verki, einbeitingarskort,
breytingu á skynúrvinnslu, andlega vanlíðan og streitu. Áfallið
að veikjast ásamt óvissu og ótta í samfélaginu við áður óþekktan
sjúkdóm hefur litað upplifun margra. Skjólstæðingar virðast hafa
þörf fyrir að deila reynslu sinni og finna styrk hver hjá öðrum.
Í lok maí 2021 höfðu 60 skjólstæðingar lokið meðferð á Reykja-
lundi, 20 voru í meðferð og 30 á biðlista. Áður en endurhæfing
hefst fer fólk í endurhæfingarmat þar sem metin er þörf fyrir
þverfaglega endurhæfingu og hvaða meðferðarsvið henti
best. Flestir koma inn í meðferð á lungna-, verkja-, geð- og gigt-
arsviði og fleiri svið hafa einnig sinnt þessum skjólstæðingum.
Í endurhæfingarmati felast m.a. viðtöl við fjórar fagstéttir; iðju-
þjálfa, sjúkraþjálfara, lækna og hjúkrunarfræðinga. Lagðir eru
fyrir sérhæfðir matslistar og einnig gerðar ýmsar rannsóknir til
frekari greiningar. Iðjuþjálfar leggja fyrir Mat á eigin iðju (OSA).
Endurhæfing er að meðaltali sex vikur og koma þá fleiri fag-
stéttir að meðferð þar sem þörf er á, t.d. félagsráðgjafar, nær-
ingarfræðingar, talmeinafræðingar og sálfræðingar. Til viðbótar
við hefðbundna teymismeðferð hvers sviðs var sett saman
þverfagleg fræðsla sem allir skjólstæðingar sitja (sjá töflu 1).
Iðjuþjálfar eru með fræðslu um orkusparandi vinnuaðferðir og
temprun en þar er m.a. fjallað um forgangsröðun og skipulag
daglegrar iðju, mikilvægi þess að huga að réttri líkamsbeitingu
og tempra hraðann við framkvæmd verka og athafna. Þreyta
og orkuleysi hefur þau áhrif að fólk á erfiðara með að sinna
daglegri iðju eins og sjálfu sér, heimilisstörfum, áhugamálum
og vinnu á þann hátt sem það kýs. Fyrir marga getur reynst
erfitt að átta sig á hvað veldur þreytu þar sem hún kemur oft
ekki fram fyrr en næsta dag. Það er ekki endilega eitthvað eitt
einstakt verk sem er erfitt, heldur samansafn alls þess sem gert
er yfir daginn eða vikuna.
Margir skjólstæðingar hafa setið námskeiðið Jafnvægi í
daglegu lífi. Markmið þess er að þátttakendur skoði jafnvægi
starfa, tómstunda, eigin umsjár og hvíldar og fræðist um
streitu. Áhersla er lögð á sjálfsskoðun, þ.e. að einstaklingurinn
verði meðvitaðri um hlutverk sín, þekki helstu streituvalda
og streitueinkenni. Velti fyrir sér hvernig samskipti hafa áhrif
Nýjar áskoranir
á tímum heimsfaraldurs
Endurhæfing fyrir einstaklinga
sem veiktust af COVID-19
Ásta Margrét Jónsdóttir, Erla Alfreðsdóttir,
Herdís Halldórsdóttir og Ingibjörg Bjarnadóttir,
iðjuþjálfar á Reykjalundi