Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 34

Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 34
1. tölublað 202134 Mig langar að segja ykkur frá hugmynd sem ég kom í framkvæmd síðasta sumar. Þessi hugmynd kom út frá því að við Ingibjörg Karlsdóttir höfum verið með PEERS- námskeið í félagsfærni síðan haustið 2016. Í lok hvers námskeiðs fá öll börnin verðlaun/gjöf, sem var bíómiði, fyrir að hafa lokið námskeiði. Vorið 2020 var COVID komið og því var óviðeigandi að gefa börnunum miða í bíó vegna sóttvarnareglna. Þá var ég líka að fara af stað með fjarkennsluhópa fyrir þá sem búa á landsbyggðinni og ekki passaði að gefa þeim miða í bíó í Reykjavík. Þá datt mér í hug að hanna spil þar sem allar liðsandareglurnar eru á hverju spili. Ég fékk hönnuðinn okkar til að setja upp spilin og ég sendi henni svo þær setningar sem ég vildi hafa á þeim. Þetta tókst mjög vel, margir vildu kaupa þessi spil og það ýtti mér aftur af stað. Mig hafði lengi dreymt um að gera myndir við allar samskiptareglurnar, þannig að ég næði betur til yngri barna og einnig til þeirra sem þykir gott að hafa allt myndrænt. Ég var búin að hugsa mikið um hvernig myndirnar ættu að vera og hvort væri hægt að fá einhvern til að teikna þær fyrir mig. Eins og svo oft áður þá gleymir maður að líta sér næst, en stjúpsonur minn Jóhann Örn Steinsson er mikill myndlistarmaður. Ég hringdi í hann, bauð honum verkið og hann var til í að gera tilraun. Þessi tilraun hans gekk heldur betur vel, hann teiknaði myndir fyrir öll spilin og í framhaldi af því er hann búinn að teikna fyrir mig næstum því allar samskiptareglurnar. Þegar ég er nú með börnin/unglingana í tíma þá fá þau líka myndræna skýringu á samskiptareglunum. Hér eru nokkur dæmi: Hvernig spilin urðu til PEERS-námskeið í félagsfærni Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, iðjuþjálfi með réttindi sem leiðbeinandi í PEERS-félagsfærni Fyrri útgáfa Seinni útgáfa

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.