Iðjuþjálfinn - 2021, Page 34
1. tölublað 202134
Mig langar að segja ykkur frá hugmynd sem ég kom í framkvæmd síðasta sumar.
Þessi hugmynd kom út frá því að við Ingibjörg Karlsdóttir höfum verið með
PEERS- námskeið í félagsfærni síðan haustið 2016. Í lok hvers námskeiðs fá öll
börnin verðlaun/gjöf, sem var bíómiði, fyrir að hafa lokið námskeiði.
Vorið 2020 var COVID komið og því var óviðeigandi að gefa börnunum miða í bíó
vegna sóttvarnareglna. Þá var ég líka að fara af stað með fjarkennsluhópa fyrir þá
sem búa á landsbyggðinni og ekki passaði að gefa þeim miða í bíó í Reykjavík.
Þá datt mér í hug að hanna spil þar sem allar liðsandareglurnar eru á hverju spili.
Ég fékk hönnuðinn okkar til að setja upp spilin og ég sendi henni svo þær setningar
sem ég vildi hafa á þeim.
Þetta tókst mjög vel, margir vildu kaupa þessi spil og það ýtti mér aftur af stað. Mig
hafði lengi dreymt um að gera myndir við allar samskiptareglurnar, þannig að ég
næði betur til yngri barna og einnig til þeirra sem þykir gott að hafa allt myndrænt.
Ég var búin að hugsa mikið um hvernig myndirnar ættu að vera og hvort væri hægt
að fá einhvern til að teikna þær fyrir mig. Eins og svo oft áður þá gleymir maður að
líta sér næst, en stjúpsonur minn Jóhann Örn Steinsson er mikill myndlistarmaður. Ég
hringdi í hann, bauð honum verkið og hann var til í að gera tilraun. Þessi tilraun hans
gekk heldur betur vel, hann teiknaði myndir fyrir öll spilin og í framhaldi af því er hann
búinn að teikna fyrir mig næstum því allar samskiptareglurnar. Þegar ég er nú með
börnin/unglingana í tíma þá fá þau líka myndræna skýringu á samskiptareglunum.
Hér eru nokkur dæmi:
Hvernig spilin urðu til
PEERS-námskeið í félagsfærni
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir,
iðjuþjálfi með réttindi sem
leiðbeinandi í PEERS-félagsfærni
Fyrri útgáfa
Seinni útgáfa