Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 36
1. tölublað 202136
matslistum sem mæla félagsfærni, samkennd og félagsvirkni.
Á matslistum yngri aldurshópsins sem mæla kvíða kom fram
marktækur munur í svörum foreldra utan BUGL.
Nokkrar stofnanir voru í samstarfi við BUGL varðandi inn-
leiðingu PEERS á Íslandi árið 2015. Má þar nefna Greiningar- og
ráðgjafarstöð ríkisins, Þroska- og hegðunarstöð heilsugæsl-
unnar og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. Í samstarfi við
Endurmenntun Háskóla Íslands hafa verið haldin fjögur PEERS
Training-námskeið fyrir leiðbeinendur á Íslandi. PEERS-nám-
skeið fyrir börn / unglinga og foreldra þeirra eru haldin víða
á landinu.
Einnig eru PEERS-námskeið haldin á vegum sjálfstætt starf-
andi aðila en það er m.a. fagfólk sem starfar á BUGL sem fór
af stað með námskeiðin utan BUGL á vorönn 2017. Á þeirra
vegum eru haldin 6–7 námskeið fyrir mismunandi aldurshópa
barna, unglinga og ungs fólks á hverri önn. Einnig eru haldin
PEERS-fjarnámskeið á vegum sömu aðila og geta fjarnám-
skeiðin hentað vel fyrir fólk á landsbyggðinni, sjá nánar á
www.felagsfaerni.is.
PEERS-námskeið í félagsfærni fyrir ungt fólk 18–34 ára er
svipað uppbyggt en það er 16 skipti í 90 mínútur hvert sinn.
Algengast er að foreldrar unga fólksins taki þátt í námskeiðinu
en einnig getur verið um að ræða að stuðningsaðili taki þátt
sem félagsþjálfi. Af 16 skiptum þar sem farið er í svipað efni
og á námskeiðum fyrir börn og unglinga, þá eru 4 skipti þar
sem fjallað er um stefnumót eða „date“-framkomu og fleira
áhugavert því viðkomandi, sjá nánar á www.felagsfaerni.is.
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, iðjuþjálfi er með réttindi sem
leiðbeinandi í PEERS-félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk,
skóla-PEERS-réttindi, einnig til að halda Telehealth PEERS-nám-
skeið í félagsfærni í fjarkennslu.
Ingibjörg Karlsdóttir, félagsráðgjafi MPH er með réttindi sem
leiðbeinandi í PEERS-félagsfærni fyrir börn, unglinga og ungt fólk,
einnig skóla-PEERS-réttindi.
Yfirlit yfir nokkrar rannsóknir á
PEERS erlendis og einnig hérlendis:
(Heimildir sóttar 10. feb. 2020 af https://www.semel.ucla.edu/peers/research fyrir
utan íslensku rannsóknirnar tvær í lok listans)
• Parent-assisted social skills training to improve friendships in teens with
autism spectrum disorders (Laugeson o.fl., 2009).
• Evidence-based social skills training for adolescents with autism spectrum
disorders –The UCLA PEERS program (Laugeson o.fl., 2012).
• A replication and extension of the PEERS intervention – Examining effects
on social skills and social anxiety in adolescents with autism spectrum
disorders (Schohl o.fl., 2013).
• Long-term treatment outcomes for parent-assisted social skills training
for adolescents with autism spectrum disorders – The UCLA PEERS program
(Mandelberg o.fl., 2013).
• Measuring the plasticity of social approach – A randomized controlled trial
of the effects of the PEERS intervention on EEG asymmetry in adolescents
with autism spectrum disorders (Van Hecke o.fl., 2013).
• Predicting treatment success in social skills training for adolescents with
autism spectrum disorders – The UCLA program for the education and
enrichment of relational skills (Chang o.fl., 2013).
• Using a CBT approach to teach social sk ills to adolescents with autism
spectrum disorder and other social challenges – The PEERS method
(Laugeson og Park, 2014).
• Parent and family outcomes of PEERS – A social skills intervention for
adolescents with autism spectrum disorder (Karst o.fl., 2014).
• Examination of a parent-assisted, friendship-building program for
adolescents with ADHD (Gardner o.fl., 2015).
• Parents perceive improvements in socio-emotional functioning in
adolescents with ASD following social skills treatment (Lordo o.fl., 2016).
• Changes in depressive symptoms among adolescents with ASD comp-
leting the PEERS® social skills intervention (Schiltz o.fl., 2017).
• Brief report: Does gender matter in intervention for ASD? Examining the
impact of the PEERS® social skills intervention on social behavior among
females with ASD (McVey o.fl., 2017).
• Mat á árangri PEERS-námskeiða í félagsfærni: Börn og unglingar á
aldrinum 9–14 ára. (Guðrún Helga Andrésdóttir, 2019). http://hdl.handle.
net/1946/34613
• Árangursmat PEERS-námskeiða í félagsfærni: Unglingar 15–18 ára. (Snædís
Gerður Hlynsdóttir, 2019). http://hdl.handle.net/1946/34614