Iðjuþjálfinn - 2021, Blaðsíða 16
1. tölublað 202116
en þátttakendur hafa verkfærni til að vinna handverk. Tíu til
tólf manns er boðið í hvert sinn og eru verkefnin í samræmi við
færni og getu einstaklinganna.
Nokkrir handafimihópar eru í boði en hver þeirra er með
fjórum þátttakendum og koma þeir einu sinni í viku. Markmiðið
með hópnum er að viðhalda og auka liðleika, minnka verki,
auka styrk handa og fingra. Grjónabakstrar eru notaðir til að
hita hendur og axlir. Síðan eru gerðar æfingar sem reyna á
samhæfingu huga og handa og getu til að fylgja fyrirmælum.
Handaæfingar stuðla að betri færni við athafnir í daglegu lífi,
til dæmis að hneppa skyrtu.
Samverustundir eru á hverri deild með það markmið að
örva vitræna færni með upplestri, endurminningum, land-
kynningum, umræðum, söng og fleiru. Einnig er lesin fram-
haldssaga í hverri viku á öllum deildum. Tónlist er í forgrunni
í samverustundum á heilabilunareiningum en einnig hefur
verið unnið með nálgun Namaste á þessum einingum. Í því
felst að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að því að lifa
og njóta í stað þess að vera bara til. Lykilatriði er virðing fyrir
einstaklingnum. Áhersla er lögð á að skapa rólegt og notalegt
umhverfi, rólega tónlist, dempuð ljós, snertingu og kærleika.
Boccia er spilað á hverri hæð einu sinni í viku en það reynir á
líkamlega, vitræna og félagslega færni. Allir sem áhuga hafa
eru velkomnir, er ávallt mikil gleði og keppnisskapið kemur
bersýnilega fram hjá mörgum.
Auk þeirrar starfsemi sem fram er komin, er í boði mikið og virkt
félagsstarf í samkomusal eða úti í garði þegar viðrar til þess (þó
það hafi verið með öðru sniði síðastliðið ár). Meðal þess sem er
í boði er vikuleg söngstund þar sem spilað er undir á gítar eða
píanó, boðið er í bingó aðra hvora viku og reglulega eru haldin
böll. Þá rifjast upp gamlir taktar og gleðin tekur öll völd. Auk
þessa eru árlegir viðburðir eins og þorragleði, vorhátíð, kaffihús
og basar fyrir jólin sem aðstandendum er boðið á og margt
fleira. Einnig koma reglulega listamenn og syngja, spila á hljóð-
færi eða skemmta íbúum. Starfsmaður félagsstarfs hefur séð
um samstarf við grunnskóla í hverfinu og hefur það gefist mjög
vel. Börn í 5. bekk komu í 6–8 manna hópum í heimsókn og tóku
þátt í boccia og/eða spilamennsku. Þetta hefur að sjálfsögðu
legið niðri síðastliðið ár vegna samkomutakmarkana.
Eins og áður kom fram er Laugaskjól ein deild Skjóls í formi
sambýlis í íbúðarhverfi skammt frá heimilinu. Íbúar njóta
þjónustu iðjuþjálfa bæði með því að koma á Skjól og einnig
í heimaumhverfi. Lögð er áhersla á að umhverfið sé heimilis-
legt, hver og einn hefur sérherbergi en sameiginleg setustofa,
borðstofa og eldhús er í húsinu. Íbúar sambýlisins eru fremur
vel á sig komnir líkamlega, með mislangt gengna heilabilun en
geta sinnt athöfnum daglegs lífs með eftirliti og tekið þátt í
daglegum störfum á heimilinu. Iðjuþjálfi hefur undanfarið lagt
áherslu á vikulega íhlutun í formi matargerðar eða baksturs
með þátttöku íbúa og boðið starfsfólki fræðslu um persónu-
miðaða nálgun í umönnun og notkun lífssögu.
Markmið þessa verkefnis er að starfsfólk bjóði íbúum enn
meiri þátttöku í daglegum verkefnum sem fram fara á heim-
ilinu. Kiwanisklúbburinn Elliði í Reykjavík styrkir gerð gróður-
kassa fyrir matjurtir sem verður komið fyrir í garði sambýlisins
og eykur möguleika íbúa á þátttöku í garðvinnu. Einnig veitti
Samfélagssjóður Eflu styrk til að kaupa plöntur og fegra
umhverfið.
Ljóst er að öldruðum mun fjölga mikið á næstu áratugum og
þörf fyrir búsetu á hjúkrunarheimilum mun aukast með hækk-
andi aldri þjóðarinnar. Iðjuþjálfar veita mikilvæga þjónustu nú
þegar, eftirspurnin mun ekki minnka og þurfa þeir enn frekar
að marka sér stað innan þessa vettvangs. Mikilvægt er að hug-
myndafræði iðjuþjálfunar sé höfð að leiðarljósi og sé sýnileg í
daglegu starfi.
Heimildir:
Jón Snædal. (2019). Málefni einstaklinga með heilabilun. https://www.
stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/
Stefnumo%CC%81tun%20i%CC%81%20ma%CC%81lefnum%20einstaklinga%20
me%C3%B0%20heilabilun%20(3)fr%C3%A1%20JSuppsetningGEMEGE080420.
pdf
Kitwood, T. (2007). Ný sýn á heilabilun: Einstaklingurinn í öndvegi (Svava
Aradóttir þýddi). JPV útgáfa (frumútgáfa 1997).
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir. (2019). Ný menning í öldrunarþjónustu. Ömmuhús.
Taylor, R. R. (ritstjóri). (2017). Kielhofners’s Model of human occupation (5.
útgáfa). Wolters Kluwer.
World Health Organization. (2017). Global action plan on the public health
response to dementia, 2017–2025.
World Health Organization. (2020). The decade of healthy aging: A new UN-wide
initiative. https://www.who.int/news/item/14-12-2020-decade-of-healthy-
ageing-a-new-un-wide-initiative