Iðjuþjálfinn - 2021, Page 33
1. tölublað 202133
Lífsbrunnur er iðjuþjálfamiðstöð sem var stofnuð árið
2020 og hefur að markmiði að bjóða iðjuþjálfaþjónustu til
barna, unglinga, foreldra og skóla. Boðið er upp á mat á
skynúrvinnslu, félagsfærninámskeið og þjálfun í athöfnum
daglegs lífs, ásamt fleiru.
Hugmyndin að Lífsbrunni hefur verið lengi í huga mér. Mig
hefur alltaf langað að sameina í eitt allt sem ég kann og hef
réttindi til að gera. Frá 2004 hef ég verið með sjálfstæðan
rekstur og námskeið fyrir lesblinda einstaklinga, auk þess
sem ég er með réttindi til að nota Davis-aðferðina. Árið 2012
útskrifaðist ég sem iðjuþjálfi og árið 2015 fékk ég síðan réttindi
til að vera með PEERS-félagsfærninámskeið.
Þegar COVID-19 skall á þá þurftum við hjá Lífsbrunni, eins og
fleiri, að nota fjarkennslubúnað meira. Sú reynsla hefur kennt
okkur margt þar sem við færðum m.a. PEERS-námskeiðin
okkar yfir í fjarkennslu og fengum fleiri fyrirspurnir um
fjarkennslu af ýmsu tagi. Öll þessi þjónusta gekk mjög vel í
fjarfundabúnaði, sem varð til þess að mig langaði að geta
hjálpað fleirum sem hvorki hafa tök á að fá þjónustu í sínum
heimabæ né koma til Reykjavíkur.
Til þess að mega veita iðjuþjálfun í fjarheilbrigðisþjónustu þá
varð ég að sækja um leyfi landlæknis sem og ég gerði vorið
2020 og er núna með staðfestingu frá Embætti landlæknis til
að starfa sjálfstætt sem iðjuþjálfi, bæði á stofu og til að veita
fjarheilbrigðisþjónustu.
Þá kom upp hugmyndin um að gefa fyrirtækinu nýtt nafn og
sameina alla þessa þætti en með aðaláherslu á fjarkennslu.
Ég mun þó að sjálfsögðu halda áfram að sinna öllum þessum
þáttum líka á stofunni sem ég er með að Arnarbakka 2-4 í
Reykjavík, og í nærumhverfi skjólstæðinga.
Þá langaði mig að stækka þetta enn frekar og hringdi í Rósu
Gunnsteinsdóttur iðjuþjálfa og fjölskyldufræðing. Þar sem við
erum gamlir vinnufélagar og höfum alltaf náð vel saman fag-
lega var upplagt að bjóða henni með og var hún til í þetta með
mér. Við erum tvær saman með heimasíðuna idjutjhalfun.is.
Rósa hefur verið með réttindi frá Embætti landlæknis til að
vera með iðjuþjálfun á stofu frá 2017 en hún sinnir þeirri þjón-
ustu á Domus Mentis geðheilsustöð og í nærumhverfi skjól-
stæðinga. Framtíðarsýn okkar er að veita iðjuþjálfun á stofu,
fara á vettvang og í fjarþjónustu.
Þjónustan sem ég mun veita í fjarþjónustu er: Skynúrvinnslu-
mat og ráðgjöf fyrir börn, unglinga, foreldra og skóla. Mat á
færni til að takast á við athafnir daglegs lífs, dagleg rútína,
áhugamál, andleg líðan og geðrænar áskoranir. Ráðgjöf varð-
andi það sem viðkomandi vill geta gert og þarf að geta gert.
Námskeið fyrir lesblinda og PEERS-félagsfærninámskeið.
Sama þjónusta verður í boði á stofu og á vettvangi hjá bæði
Guðrúnu og Rósu.
Hægt er fylgjast með okkur á Facebook og Instagram.
www.idjuthjalfun.is
gudrun@idjuthjalfun.is
rosa@idjuthjalfun.is
Lífsbrunnur
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir, iðjuþjálfi
Rósa Gunnsteinsdóttir,
iðjuþjálfi og fjölskyldufræðingur