Iðjuþjálfinn - 2021, Síða 35
1. tölublað 202135
Um PEERS-námskeið í félagsfærni
PEERS er námskeið í félagsfærni fyrir börn, unglinga og
ungt fólk með félagslega erfiðleika, einhverfu, ADHD, kvíða
og þunglyndi og einnig foreldra þeirra eða félagsþjálfa.
PEERS er skammstöfun fyrir Program for the Education and
Enrichment of Relational Skills.
Námskeiðið er ætlað fyrir börn og unglinga 9–17 ára og
foreldra þeirra, einnig ungt fólk 18–34 ára og foreldra þeirra
eða félagsþjálfa.
PEERS-námskeið í félagsfærni er gagnreynt námskeið
sem brýtur upp félagslega einangrun barna og unglinga
og stuðlar þannig að bættri líðan þeirra, vinatengslum og
aukinni félagslegri virkni. Félagsleg einangrun og vinaleysi
getur leitt til alvarlegra kvíðaeinkenna og þunglyndis, slakari
námsárangurs, brottfalls úr námi, áhættuhegðunar, neyslu
fíkniefna og sjálfsvígshugleiðinga. Sjá nánar rannsóknir á
PEERS á heimasíðu UCLA Semel Institute for Neuroscience &
Human Behavior https://www.semel.ucla.edu/peers/research
og meðfylgjandi heimildaskrá.
Á PEERS-námskeiði í félagsfærni er markmiðið að:
• Barnið/unglingurinn læri að eignast vini og halda þeim.
• Foreldri læri að styðja barnið/unglinginn í að finna sér
viðeigandi vini.
• Foreldri læri leiðir til að styrkja færni barnsins/unglingsins
við að eignast nýja vini.
• Foreldri læri leiðir til að efla félagslegt sjálfstæði barnsins/
unglingsins.
Aðalstyrkleiki félagsfærniþjálfunar PEERS er að námskeiðið er
fyrir bæði börn/unglinga og foreldra þeirra og læra foreldrar
hvernig þeir geta haldið áfram og fylgt eftir félagsfærniþjálfun
barnanna/unglinganna eftir að námskeiðinu lýkur.
Um PEERS
-námskeið í félagsfærni
PEERS-námskeiðið er vikulega í 14 skipti og hvert skipti er
90 mínútur. Á námskeiðinu eru börn eða unglingar saman
í hóp og foreldrar eru saman í hóp. Unnið er með sama
kennsluefni samtímis í hvorum hópnum samkvæmt PEERS-
handbók. Barnahópnum/unglingahópnum er kennt í gegnum
beinar leiðbeiningar, samræður, hlutverkaleiki, myndbönd og
heimaverkefni. Foreldrum er kennt að leiðbeina börnunum/
unglingunum með því að farið er yfir heimaverkefni í hverjum
tíma og fylgt vel eftir hvernig hvert og eitt foreldri leiðbeinir
barni/unglingi heima. Unnið er út frá styrkleikum og áhugasviði
hvers barns/unglings. Í lok hvers tíma koma hóparnir tveir
saman í 10–15 mínútur og heimaverkefni eru skipulögð í
sameiningu. Hvert námskeið er fyrir 8–10 börn/unglinga og
foreldra þeirra.
Á hverju PEERS-námskeiði er kennd samtalsfærni, örugg
notkun netsins og samfélagsmiðla, viðeigandi húmor, viðeig-
andi leiðir við að blanda sér í samræður og fara út úr sam-
ræðum í hóp, skipulagning hittinga og viðeigandi framkoma í
hittingum, góður liðsandi og íþróttaandi, viðbrögð við stríðni
og niðurlægjandi athugasemdum, viðbrögð við einelti og
hvernig er hægt að breyta slæmri ímynd, leiðir til að leysa
ágreining og viðbrögð við kjaftasögum, slúðri og neteinelti.
Farið hefur fram rannsókn á árangri PEERS á Íslandi bæði
innan Barna- og unglingageðdeildar LSH og utan. Tveir
meistaranemar í félagsráðgjöf unnu tölfræðilega úr svörum
matslista sem foreldrar og börn/unglingar svara fyrir og
eftir hvert námskeið. Meistaranemarnir tóku fyrir sinn hvorn
aldurshópinn. Um var að ræða matslista af 22 námskeiðum
sem haldin voru á tímabilinu frá byrjun haustannar 2016 til
loka vorannar 2019. Matslistarnir mæla félagsfærni, kvíða,
félagsvirkni og samkennd. Niðurstöður svara unglinga (15–18
ára) og foreldra sýndu marktækan mun á öllum matslistum.
Niðurstöður svara barna og unglinga (9–14 ára) sýndu mun á