Iðjuþjálfinn - 2021, Qupperneq 38
1. tölublað 202138
Mikilvægt er að öll börn fái tækifæri til að taka þátt í því sem
þau vilja og þurfa að gera. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar
þar sem börn með þroskahömlun eru sjálf þátttakendur og
eru spurð um lífsgæði sín. Algengara er að foreldrar þeirra séu
spurð fyrir þeirra hönd.
Markmið fyrirhugaðrar rannsóknar er að afla gagna um hvernig
börn með þroskahömlun meta lífsgæði sín og hvort munur sé
á mati barna og foreldra þeirra. Rannsóknarspurningarnar eru:
Hvert er mat barna með þroskahömlun á lífsgæðum sínum?
Hvernig meta foreldrar barna með þroskahömlun lífsgæði
barna sinna? Er munur á mati barna með þroskahömlun og
foreldra þeirra? Rannsóknin verður megindleg samanburðar-
rannsókn.
Þátttakendum verður aflað í samvinnu við Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins og verður þeim fjölskyldum sem uppfylla
þátttökuskilyrðin boðin þátttaka. Skilyrði fyrir þátttöku eru að
barnið sé á aldrinum 8-18 ára, sé með greiningu þroskahömlunar
samkvæmt ICD-10 og að foreldri eða forsjáraðili barns taki þátt
Ágrip útskriftarnema 2021
Leiðbeinandi: Linda Björk Ólafsdóttir
í samanburðarhóp. Til að afla gagna verður KIDSCREEN-27
matstækið lagt fyrir börnin og foreldra. Matstækið er ætlað til
að meta lífsgæði barna út frá fimm víddum; hreyfiathöfnum
og heilsu, almennri líðan og sjálfsmynd, fjölskyldu og frjálsum
tíma, vinatengslum, skóla og námi.
Við greiningu gagna verður notast við lýsandi tölfræði. Einnig
verða svör barna og foreldra pöruð saman og t-prófi háðra
úrtaka beitt til að kanna mun á milli hópa. Hagnýtt gildi rann-
sóknarinnar er að fá innsýn í hvernig börn með þroskahömlun
meta lífsgæði sín og hvaða þættir það eru sem skipta þau og
foreldra þeirra máli. Nýtast niðurstöðurnar við skipulagningu
á þjónustu við þennan hóp og til að stuðla að bættum lífs-
gæðum þeirra.
Lykilhugtök:
Börn, foreldrar, þroskahömlun og lífsgæði
Guðrún Hildur Einarsdóttir
Lífsgæði barna
með þroskahömlun
- Mat barna og foreldra. Rannsóknaráætlun.
Í námskeiðinu Fræðileg skrif og gagnreynt starf, sem kennt er
á þriðja námsári í iðjuþjálfunarfræði, unnu nemendur fræðilega
samantekt um efni að eigin vali.
Samantektin flokkaðist undir kortlagningaryfirlit og var unnið
eftir vinnulagi Arksey og O‘Malley (2005).
Til að kynna niðurstöður sínar útbjuggu nemendur síðan
v eggspjöld sem við deilum hér með ykkur.
Linda Björk Ólafsdóttir
og Sigrún Kristín Jónasdóttir,
umsjónarkennarar námskeiðsins
Fræðileg skrif og gagnreynt starf vorið 2021.
Viðfangsefni þeirra eru fjölbreytt og eiga án efa erindi til
starfandi iðjuþjálfa.
Hér á eftir koma kynningarspjöld nemanna frá námskeiðinu.
Við vonum að þið hafið gagn og gaman af.