Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2021, Page 18

Skessuhorn - 08.12.2021, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 202118 Gengið hefur verið frá eigenda- skiptum á Bílasölu Akraness ehf., sem rekur Bílás við Smiðjuvelli 17 á Akranesi. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1983 hafa bræðurnir Ólafur og Magnús Óskarssynir frá Beitistöð- um átt fyrirtækið og unnið þar sjálfir. Kaupendur eru tveir; þeir Kristján Einarsson og Alexander Þórsson og taka þeir við rekstrin- um um áramótin. Að sögn kaupendanna stendur ekki til að breyta rekstri bílasölunn- ar. Fyrirtækið er með söluumboð fyrir bíla frá Öskju og Heklu en sel- ur auk þess bíla frá fleiri innflutn- ingsfyrirtækjum. Þá er Bílás með umboð frá Bílaleigunni Höldi. Að jafnaði segja bræðurnir að salan sé um 350 notaðir bílar á ári og um eða yfir 50 nýir bílar. Alexander Þórsson hefur starfað á bílasölunni þetta árið og er því öllum hnútum kunnugur. Hann segist spenntur við að eignast reksturinn en tek- ur fram að þeir þurfa að bæta við sig starfsmanni á nýju ári. Með- eigandi hans, Kristján Einarsson, rekur hins vegar Trésmiðju Akra- ness í sama húsi og hyggst gera það áfram. Kristján er hins vegar ekki ókunnur rekstrinum en hann var fyrsti bílasalinn í fullu starfi hjá Bílásbræðrum árin 1984-87. Þeir Magnús og Ólafur segja að Bílasala Akraness sé elsta bíla- sala landsins í samfelldum rekstri. Þeir rifja það upp að á fyrstu árum í rekstrinum hafi þeir selt bílinn E-100 fyrir Bíla Berg, sem margir eldri Skagamenn muna eftir. „Sem greiðslu fyrir sölulaun á bílnum E-100 fengum við nafnið Bíla- sala Akraness hjá Bíla Bergi. Það var Daníel í Vogatungu sem keypti umræddan bíl og hefur átt númer- ið E-100 allar götur síðan,“ segja þeir. Aðspurðir um hvað nú taki við segja þeir Magnús og Ólafur að það sé óráðið. Þeir þurfi ekki að vinna frekar en þeir vilja, en Óli er 72 ára og Magnús verður sjötugur í vetur. „Það er samt aldrei að vita. Kannski verðum við bara fastagest- ir í kaffi hér á sölunni eða sendumst með bíla fyrir strákana. Við höfum alltaf haft einhverja lipra karla hér með okkur og kannnski grípum við þann bolta á lofti,“ segja Magnús og Ólafur Óskarssynir. mm Fuglaskoðun nýtur sívaxandi vin- sælda í heiminum og Ísland er þar engin undantekning. Sem dæmi má nefna að á Facebook eru a.m.k. tvær síður sem birta ljósmyndir af íslenskum fuglum, annars vegar „Fuglar á Íslandi“ og hins vegar „Íslenskar fuglategundir“, og svo er ein þar í viðbót sem heitir ein- faldlega „Fuglafóðrun“. Fylgjendur þeirra eru samtals um 30 þúsund og fjölgar dag frá degi. Það er ekki síst með þennan hóp í huga sem Siglfirðingurinn Sig- urður Ægisson skrifaði nýjustu bók sína, sem nefnist Fuglar á Íslandi og árstíðirnar fjórar: Fugladag- bókin 2022, en hún kom út fyrir skemmstu. Bókin er nýjung á ís- lenskum bókamarkaði og er þannig upp sett að á undan hverri viku, þar sem hægt er að skrá hvern dag þá fugla sem maður sér og fjölda þeirra eða þá hvað annað, eins og t.d. hvenær næsti danstími verð- ur, því minnið getur verið brigð- ult, er fróðleikur um einhverja eina tiltekna fuglategund. Í alls eru þær 52 í bókinni, eins og vikur ársins. Um helmingur er flækingsfuglar. Þar á meðal má nefna býsvelginn sem sást innfjarðar í Siglufirði í maí árið 2011 og var þá að sjást í annað sinn á Íslandi; sá fyrri hafði sést á Eskifirði í júní árið 1989. Upplýsingar um þessa framandi gesti suma hverja hafa ekki ver- ið aðgengi- legar almenn- um lesendum til þessa, held- ur nær ein- göngu verið um þá fjall- að í lokuðum hópum eða þá í sérhæfð- um tímarit- um eins og Blika, Fugl- um og Nátt- úrufræðingn- um. Má því öruggt telja að þarna muni lesendum opnast nýr heim- ur, enda fæstir sem vita um þess- ar spennandi heimsóknir til Ís- lands frá nágrannalöndum okkar, beggja vegna Atlantsála, og jafnvel mun lengra að í sumum tilvikum, til dæmis frá Litlu-Asíu og þaðan austur og norður um, sem og frá Kyrrahafi og aðliggjandi löndum. Þess má geta að rúmlega 400 fuglategundir hafa sést á Íslandi frá upphafi skráningar, þótt einungis 75–80 verpi hér að staðaldri. Bókin er jafnframt byggð upp í kringum misseristalið gamla og því er merkt inn í skýringartextann efst hvenær gömlu mánuðirnir byrja, auk þess sem hver árstíð fær sinn lit. Í gamla misseristalinu var vorið bara einn mánuður og haustið líka, en hinir fimm hvor um sig. Í aðfaraorðum Fugladagbókar- innar 2022 segir, að það sé von höf- undar og útgefanda að hún megi þykja upplýsandi og gefandi, auka skynjun fólks á íslenskri náttúru og ekki síður opna augu þess fyrir tengslum hennar við umheiminn. Gert er ráð fyrir að bókin komi út árlega héðan í frá og þá með nýj- um textum í hvert sinn. Bókin, sem Sigurður tileinkar barnabörnum sínum, er í litlu og handhægu broti og það er Bókaútgáfan Hólar ehf. sem gefur hana út. -fréttatilkynning Sýnishorn úr bókinni – bláþyrill (Alcedo atthis) Bláþyrillinn er af ættbálki meit- ilfugla og tilheyrir svo þyrlaætt. Með honum í Alcedo-ættkvíslinni eru 14 aðrar tegundir. Varpheim- kynnin eru hér og þar í Evrasíu, allt austur að Kyrrahafi, til Japans og eyjanna norður af Ástralíu, sem og Norður-Afríku. Norðlægir fuglar leita suður á bóginn til vetursetu. Bláþyrillinn er 16–18 cm að lengd, 23–46 g að þyngd og með 24–26 cm vænghaf. Deilitegundir eru sjö og á þeim er nokkur stærðar- og útlitsmun- ur. Nafntegundin er skærblágræn á krúnu, baki og vængjum, en kóbalt- blá á gumpi og óverulegu stéli, hvít á framhálsi og á eyrnaskúfum eða hálshlið, og rauðbrún að neðan og á vanga. Fætur eru litlir og hárauð- ir. Bolurinn er kubbslegur, höfuðið stórt og nefið langt, um 4 cm, og fleyglaga. Lithimna augna er svört. Kynin eru svipuð í útliti en kven- fuglar eru aðeins stærri og rauð- leitur blær við rót neðri skolthelm- ings, og fyrir kemur að nefið sé allt þannig. Sumarkjörlendið er ár, lækir, skurðir og fersk eða ísölt vötn. Á veturna er fuglinn einnig við sjáv- arstrendur og -fitjar. Hreiðrinu er komið fyrir innst í um eins metra löngum holum, sem parið grefur í ár- eða lækjarbakka. Það er ekki fóðrað, en hálfmelt- ar matarleifar — nánast grautur úr hreistri og beinum — notaðar sem undirlag. Lyktin er ekki góð. Eggin geta verið 4–10, en eru oft- ast 6–7 að tölu. Foreldrin liggja á til skiptis í þrjár vikur. Ungarnir eru í hreiðrinu í 23–26 daga. Ung- fuglar eru með brúna fætur, stutt nef og eru allir dauflitari en hinir fullorðnu. Utan varptíma er bláþyrill ein- fari. Hann flýgur venjulega í beinni línu og með afar hröðum vængjatökum. Honum er illa við hvers konar truflun. Komi að hon- um styggð er hann rokinn burt og líkist þá mjórri ör í loftinu eða bláu striki. Veiðiaðferðin er steypiköfun. Situr hann þá iðulega á varðbergi á reyr- eða sefstöngli eða trjá- grein, slútandi fram yfir vatn, og skyggnist um eftir bráð, og kastar sér á eftir henni, þegar færi gefst. Stundum grípur hann til andófs- flugs áður, ekki ósvipað og kría. Fiðrið er vel olíuborið. Aðalfæðan er smáfiskur, einkum af ætt vatnakarfa, sem og hornsíli, en einnig tekur hann litla froska, krabbadýr, skeldýr og vatnaskordýr og lirfur þeirra — og eina og eina drekaflugu sem flýgur hjá. Rannsóknir hafa sýnt, að bláþyr- illinn þurfi 20 g af æti á dag. Hann er mikill veiðigarpur. Frakkar, Ítalir og Spánverjar kalla hann til dæmis Martein fiskimann. Í erlendri þjóðtrú er hans ríku- lega getið, bæði fyrr og síðar, einkum í tengslum við undrafygl- ið halkíon, sem einnig hefur verið nefnt ládeyðufugl. Bláþyrill hefur einu sinni fundist á Íslandi. Það var á Mógilsá á Kjal- arnesi í ágúst 2019. Hélt hann sig þar í nokkrar vikur. Önnur heiti eru svo ísfugl, kom- ið úr dönsku eða þýsku, og svo konungsfiskari/kóngsfiskari, sem er bein þýðing á latneska orðinu alcedo. Í sýningarsalnum hjá Bílási. F.v. Alexander Þórsson, Ólafur Óskarsson, Magnús Óskarsson og Kristján Einarsson. Bræður selja Bílás - elstu bílasölu landsins Fugladagbókin 2022 segir m.a. frá sjaldgæfum flækingsfuglum

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.