Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 08.12.2021, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 202126 Skagakonan Díana Bergsdóttir ætl- ar í janúar á næsta ári að opna sitt eigið dansstúdíó á Akranesi, Dans- stúdíó Díönu. Díana lærði í List- dansskóla Íslands og er með þjálf- araréttindi og hefur verið að kenna fimleika og dans í fimleikum á síð- ustu árum. Blaðamaður Skessu- horns heyrði í Díönu og spurði hana hvað hefði komið til að hún hafi ákveðið að kýla á þetta? „Ég er búin að hafa þetta á bak við eyrað í nokkurn tíma því það hefur ekk- ert verið í boði undanfarin tvö ár í dansi fyrir krakka á Akranesi. Ég setti inn á facebook síðuna Ég er íbúi á Akranesi til að athuga hvort einhver hefði áhuga og fékk rosa- lega góð viðbrögð og bjóst alls ekki við svona miklum undirtekt- um. Fimleikafélag ÍA hafði svo samband við mig um samstarf fyr- ir yngstu krakkana en dans er stór hluti af fimleikum og frábært að koma dansinum fyrr inn. Það hefur sína kosti líka því þá geta foreldr- ar nýtt íþróttastyrkinn frá Akra- neskaupstað.“ Hugsað fyrir 4-7 ára til að byrja með Díana segir að dansnámskeiðin verði í innri salnum á Þekjunni svokölluðu sem er salurinn fyr- ir ofan fimleikasalinn þar sem frí- stund Brekkubæjarskóla er til húsa. Þar verða settir upp speglar og allt gert mjög danshæft. Einnig verða þau með aðstöðu í fimleikahús- inu á dansgólfinu niðri ef þess þarf á lokuðu svæði til að halda krökk- unum við efnið. „Til að byrja með er þetta hugsað fyrir krakka 4-7 ára en síðan er ég að skoða möguleik- ann að hafa námskeið fyrir eldri krakka þegar fyrstu námskeiðin eru búin. Ég verð aðalkennarinn en verð með tvær stelpur til að að- stoða mig í kennslunni og við verð- um með alls 16 krakka í einu. Ég er mjög spennt fyrir þessu því þetta er rosalega skemmtilegur aldur til að kenna dans þar sem aðaláherslan verður að hafa gaman, læra sam- hæfingu og muna rútínu.“ segir Díana að lokum. vaks Námskeiðsúrval Endurmenntunar er í sífelldri þróun og eitt af mark- miðum stofnunarinnar undan- farin misseri hefur verið að auka úrval fjarnámskeiða til muna. Á komandi vormisseri verða á dag- skrá hátt í 60 fjarnámskeið í hinum ýmsu flokkum, allt frá hagnýtum námskeiðum í starfstengdri hæfni yfir í skemmtileg og fróðleg nám- skeið í menningu og persónulegri hæfni. Ein nýjung í framboði Endur- menntunar verður fjarnám- skeiðsval á Íslendingasagnanám- skeiði vormisserisins en þau nám- skeið eru jafnan með vinsælustu námskeiðunum. Að þessu sinni mun Ármann Jakobsson fjalla um Flateyjarbók – Ólafs sögu Tryggvasonar og býðst þátttak- endum utan höfuðborgarsvæðis- ins að fá sendar til sín upptökur af námskeiðinu á hverjum föstudegi frá 28. janúar. Önnur námskeið sem eru líkleg til vinsælda eru til dæmis Skáldleg skrif, Árangurs- rík samskipti, Almenn veðurfræði og túlkun veðurspáa, Öflugt sjálfs- traust, Kínverska í ferðaþjónustu, Gerlar og geðheilsa – hvað segja vísindin?, Verkefnastjórnun – ver- kefnisáætlun, Kvíði barna og ung- linga – fagnámskeið, Persónuleg fjármál, Textílsaga fyrir kennara og Vitræn geta og endurhæfing fólks með geðraskanir. Er þetta einungis lítið brot af frábæru úr- vali vormisserisins og áhugasamir eru hvattir til að finna sitt fjarnám- skeið á endurmenntun.is -fréttatilkynning Landsvirkjun og nýsköpunarfyrir- tækið PlastGarðar ehf. hafa undir- ritað samning um aðstöðu fyr- ir verkefnið Hey!rúlla í skrif- stofuhúsnæði Landsvirkjunar við Bjarnarflag í Mývatnssveit. Þetta verkefni PlastGarðars snýst um að vinna að þróun og hönnun á margnota heyrúllupokum, sem markmiðið er að skipt verði út fyrir einnota heyrúlluplast í landbúnaði. Þetta er því margnota lausn sem er bæði betri og umhverfisvænni. Þegar fyrstu pokarnir verða tilbúnir verða þeir prófaðir samhliða hefð- bundnum geymsluaðferðum á heyi í heyrúllum. Garðar Finnsson, eigandi Plast- Garðars, stofnaði fyrirtækið fyrr á þessu ári. Hann tók nýlega þátt í verkefninu Vaxtarrými, sem var fyrsti viðskiptahraðallinn á Norð- urlandi, átta vikna hraðall með áherslu á sjálfbærni, mat, vatn og orku. „Hey!rúlla ætlar að skapa hring- rásahagkerfi landbúnaðarplasts innan Íslands. Markmið okkar er að margnota heyrúllupokar endist í allt að 15 ár og verði svo að fullu endurunnir í nýja poka. Það er mikilvægt fyrir þróun og vöxt fyr- irtækisins að fá góða aðstöðu og ég er bjartsýnn á framhaldið,“ seg- ir Garðar Finnsson, eigandi Plast- Garðars ehf. mm Hversdagslegar, en samt sérstakar myndir í bland við fróðleik í kringum búskap og sveitalífið fyrr og nú – það hefur ver- ið sérstæða Hvamms- hlíðardagatalsins síðan það kom út í fyrsta skipti haustið 2018. Það ár var tilgangurinn sá að fjár- magna kaup á dráttarvél sem tókst vonum fram- ar og blessaður Zetor- inn 7245, árg. 1990, hef- ur komið fram í hverju dagatali síðan. Að þessu sinni er áherslan lögð sérstak- lega á gamlar mynd- ir af kindum og hross- um, margir um landið allt lögðu sitt af mörk- um og sendu ljósmynd- ir, m. a. úr Borgarfirði og úr Dölunum. En líka Hvammshlíðarskepn- ur nútímans og einstak- lega fallega náttúran þar í kring koma sterklega fram – ásamt fróðleik um sauðfjárliti, ull og margt fleira. Eins og síð- ast fylgir „viðauki“ með upplýsingum um gamla norræna tímatalið, ís- lenska merkisdaga og gamlar íslenskar mæli- einingar. Dagatalið er í stóru broti á 28 blaðsíðum og fæst hjá Kaupfé- lagi Borgfirðinga ásamt nokkrum stöðum á Norður- og Suðurlandi. Ekki síst er hægt að fá þetta sent í pósti hvert sem er – bæði innanlands og til útlanda. Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð er höfund- ur og útgefandi, það má panta hjá henni í síma 865 8107 eða í Face- book-skilaboðum. Daga- talið kostar 3.900 kr. -fréttatilkynning Fjarnámskeið hjá Endurmenntun Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun og Garðar Finnsson, stofnandi og eigandi PlastGarðars ehf. Garðar heldur á frumgerð heyrúllupoka í smækkaðri útgáfu. Hey!rúlla ætlar að þróa margnota rúllupoka Díana Bergsdóttir opnar dansstúdíóið sitt í janúar á næsta ári. Ljósm aðsend. Dansstúdíó Díönu verður opnað í janúar Hvammshlíðardagatal í fjórða skipti

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.