Skessuhorn - 08.12.2021, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 35
Pennagrein
Sameining sveitarfélaga getur
verið mikilvægt skref í styrkingu
byggðar. Sannarlega hafa stærri
sveitarfélög þyngri slagkraft og
geta þannig verið áhrifameiri í
að koma góðum málum til leið-
ar. Ég styð fækkun og stækk-
un sveitarfélaga en aðstæður eru
mismunandi.
Sveitarfélögin á Snæfellsnesi
hafa um langt árabil haft mik-
ið samstarf sín á milli í gegnum
Byggðasamlag Snæfellinga sem
fer með; Skóla- og félagsþjón-
ustuna, rekstur Byggðasafnsins,
Earthcheck og Svæðisgarðinn
og auk þess koma þau að rekstri
Fjölbrautaskólans í Grundar-
firði. Öll þessi samstarfsverkefni
og reyndar fleiri s.s. brunavarnir
hafa komið til af því að ekki hef-
ur verið vilji eða áhugi á að sam-
eina sveitarfélögin. En lítum á
nokkur atriði sem snúa að Snæ-
fellsnesi:
Í sveitarfélögunum fimm eru
um 3.900 íbúar, í Borgarbyggð
eru þeir um 3700 og talið er að
til að sveitarfélag sé sjálfbært -
hvað svo sem það þýðir - þurfi
íbúarnir að vera 4000. Í Eyja- og
Miklaholtshreppi og Snæfells-
bæ eru aðeins um 1700 íbúar –
það yrði því skammvinn gleðin
af þeirri sameiningu, stærri sam-
eining biði.
Talið er að um það bil 95% af
tekjum sveitarfélaga sé bundið í
lög hvernig þeim skuli ráðstafað.
Aðeins um 5% af tekjum hafa
sveitarstjórnarmenn til „frjálsr-
ar“ ráðstöfunar. Fjármál smærri
sveitarfélaga eru erfið og þegar
svigrúmið er lítið takmarkast
þjónustan en á sama tíma er
krafa um aukna nærþjónustu og
jafnframt er vilji ríkisvaldsins til
að færa aukin verkefni til sveitar-
félaganna.
Eitt stærsta vandamál sveit-
arstjórna er mönnun. Sveitar-
stjórnamenn sitja í langflest-
um tilvikum í eitt kjörtímabil,
nokkrir í tvö og einstaka maður
lengur. Framboð fólks til þessara
starfa er af skornum skammti og
oft vandamál að manna lista fyrir
kosningar og/eða fá fólk til starfa
á þessum vettvangi.
Skólamál eru vissulega stórt
verkefni fyrir fámenn sveitarfé-
lög. Með aukinni notkun sam-
félagsmiðla, auðveldu aðgengi
að netspjalli og stöðugt yngri
notendum eykst samanburður-
inn við fjölbreytileikann sem er
í boði í stærri skólasamfélögum.
Vissulega geta fámennari skóla-
samfélög boðið annars konar
þjónustu og sumum hentar betur
fámennið. Ekki er þörf á að sam-
eina sveitarfélög til að taka upp
samstarf um rekstur grunnskóla.
Ég hvet íbúa Eyja- og
Miklaholtshrepps til að kanna
hug sinn vel til þess hvaða kost-
ir eru fólgnir í því fyrir okk-
ur að sameina sveitarfélagið
við Snæfellsbæ. Þrátt fyrir að
ég vilji færri og stærri sveitar-
félög þá sé ég ekki enn kostina
sem fylgja þessari sameiningu –
skrefið er allt of lítið. Ég horfi
hins vegar vonaraugum til þess
að litla sveitarfélagið okkar verði
þátttakandi í stærri sameiningu
á öllu Snæfellsnesi á næsta kjör-
tímabili.
Ef af yrði myndi verða til öfl-
ugt sveitarfélag sem hefði slag-
kraft til nýrra breytinga, taka
núverandi samstarfsvettvanga
Sameinum allt Snæfellsnes
sveitarfélaganna undir sinn
væng og endurskipuleggja.
Svo gæti farið að um yrði
að ræða eina hafnarstjórn,
einn grunnskóla (kenndur á
nokkrum stöðum), eitt tækni-
svið o.s.frv. Krafa er um að
þjónusta við íbúa verði auk-
in t.d. með aukinni stafrænni
þjónustu og lýðræðislegum
vettvangi íbúanna í ákvarð-
anatöku og stefnumótun.
Sameiginlegt sveitarfé-
lag yrði öflug rekstrarein-
ing. Framlag Jöfnunar-
sjóðs yrði a.m.k. 1,8 milljarð-
ur á sjö árum og þar af rúm-
ur milljarður til skuldajöfnun-
ar. Hlutfall skuldaviðmiðs í
sveitarfélaginu, að þeim tíma
liðnum, yrði um 60% en það
skapar sterka rekstrareiningu
og skuldabyrði væri vel inn-
an allra marka meðal sveitar-
félaga.
Styrkjum fjölskylduböndin
og tökum þátt í að sameina allt
Snæfellsnes.
Valgarð S Halldórsson