Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 20222
Á morgun er Þrettándinn og jólun-
um lýkur formlega. Þá er ekkert ann-
að að gera en að taka niður jólatréð,
taka allar jólaseríur í burtu og allt ann-
að jólaskraut sem sést á heimilinu. Í
seinni tíð hafa jólaútiljós fengið að
vera aðeins lengur sem er bara gott
mál í svartasta skammdeginu. Þó er ör-
ugglega stærsta áskorunin að minnka
við sig í mat á nýju ári eftir allar kræs-
ingarnar sem voru á boðstólnum um
jól og áramót og lofa öllu fögru í ára-
mótaheitum fyrir nýja árið. Því er um
að gera að fara varlega af stað í öllu
átaki og feta sig síðan í rólegheit-
um áfram veginn og takast á við nýj-
ar áskoranir.
Nú er lægðagangur í kortunum. Á
morgun, fimmtudag, kemur djúp lægð
upp að landinu. Spáð er sunnan- og
suðaustan 18-25 m/s og rigningu eða
slyddu með köflum en talsverð úrkoma
suðaustan lands. Hiti 1 til 6 stig. Dreg-
ur úr vindi seinnipartinn með skúrum
eða slydduéljum fyrir sunnan og vest-
an en kólnar og styttir upp fyrir norð-
an. Á föstudag má búast við sunn-
an- og suðvestan 8-15 m/s og rign-
ingu eða slyddu með köflum á Suður-
og Vesturlandi og hiti 1 til 5 stig. Þurrt
um landið norðaustan vert og hiti við
frostmark. Gengur í suðaustan hvass-
viðri eða storm um kvöldið með auk-
inni rigningu sunnan til. Á laugardag
er gert ráð fyrir minnkandi suðaustan-
átt með talsverðri rigningu eða slyddu
austanlands í fyrstu, en snýst í hæga
suðlæga átt með lítils háttar rigningu
eða snjókomu. Hiti kringum frostmark.
Á sunnudag gengur í suðaustan hvass-
viðri eða storm með talsverðri úrkomu
fyrir sunnan og austan. Hlýnar.
Í síðustu tveimur vikum desember
var spurt á vef Skessuhorns: „Hvaða
einkunn gefur þú árinu í heild?“ Með-
aleinkunn ársins hjá lesendum vefs
Skessuhorns frá einum upp í tíu var 4,8
og því ljóst að árið í fyrra fær ekki mjög
háa einkunn hjá þeim sem tóku þátt.
Í næstu viku er spurt:
Hvernig fannst þér Áramótaskaup-
ið á RÚV?
Skömmu fyrir jól afhentu Hollvinasam-
tök HVE Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Akranesi þrjú ný sjúkrarúm. Samtök-
in ákváðu haustið 2018 að fara í söfn-
un meðal fyrirtækja, félagasamtaka og
einstaklinga á starfssvæðinu til að fjár-
magna kaup á sjúkrarúmum fyrir HVE.
Árið 2019 afhentu samtökin alls 17
rúm og árið 2020 voru afhent átta rúm
og eru rúmin þá alls orðin 28 talsins.
Að þessu sinni var afhent eitt tæknilegt
rúm á lyflækningadeildina á Akranesi
og tvö rúm á handlækningadeildina á
Akranesi. Hollvinasamtökin eru Vest-
lendingar vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Fjölgar í hópi
smitaðra
VESTURLAND: Samkvæmt
samantekt Lögreglunnar á Vest-
urlandi í gær fjölgar milli daga
um 35 með Covid-19 smit á Vest-
urlandi. Alls voru í gær 180 í ein-
angrun í landshlutanum og 132
í sóttkví. Hlutfallslega var lang-
mest fjölgun smitaðra í Snæfells-
bæ milli daga, þar sem 33 eru nú
með veiruna og 21 að auki í sótt-
kví. Þessi fjölgun hafði m.a. þau
áhrif í Snæfellsbæ að a.m.k. þrír
bátar gátu ekki haldið til veiða
á mánudag. Smituðum fjölgar
einnig á svæði heilsugæslustöðv-
ar HVE í Borgarnesi, þar sem
61 voru í einangrun og 31 í sótt-
kví. Á Akranesi fjölgaði um fimm
milli daga, voru 63 í einangr-
un og 61 í sóttkví. Í Dölum voru
ellefu í einangrun og tíu í sótt-
kví. Í Grundarfirði og Stykkis-
hólmi voru sex á hvorum stað í
einangrun, en að auki þrír í sótt-
kví í Grundarfirði og sex í Stykk-
ishólmi. -mm
Þorrablótið í
streymi
AKRANES: Hið árlega
Þorrablót Skagamanna verð-
ur laugardaginn 22. janúar næst-
komandi og verður í streymi
eins og í fyrra sökum samkomu-
takmarkana. Ef að líkum læt-
ur verður boðið upp á veglegt
happdrætti, valinn Skagamað-
ur ársins, Skagaskaupið sýnt og
vafalaust margt fleira sem verður
til skemmtunar. Miðasala hefst á
næstu dögum. -vaks
Eldur í sinu
SNÆFELLSNES: Eldur kvikn-
aði í sinu rétt fyrir miðnætti á
gamlársdag í mólendi við Ne
sveg og Sundabakka í Stykkis-
hólmi. Slökkvilið var sent á vett-
vang og náðist af viðstöddum að
stappa með snjó og kæfa eldinn
áður en slökkvilið kom á svæðið.
-vaks
FJARNÁM
Skráning á haustönn fer fram dagana 22. ágúst til
5. september á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Skráning á vorönn stendur frá 4. til 18. janúar
l .
Á Þorláksmessu var raflínan frá
Króksfjarðarnesi að Gilsfjarðar-
múla tekin úr sambandi, líklega í
síðasta skipti. Frá þessu var greint
á vef Reykhólahrepps. Við þetta
fækkar enn loftlínum í sveitarfé-
laginu en við hennar hlutverki tók
þriggja fasa jarðstrengur sem lok-
ið var að plægja niður í sumar.
Gilsfjarðarlína, sem er rúmlega
sex kílómetra löng, var orðin afar
viðhaldsfrek og óörugg í vondu
veðri enda orðin meira en hálf-
rar aldar gömul. Ætlunin er að
nýi jarðstrengurinn sem nú flytur
rafmagn inn í Gilsfjörð flytji raf-
magn frá Galtarvirkjun í Garps-
dal inn á kerfið þegar hún kemst
í gagnið.
vaks
Lyflækningadeild HVE
opnuð eftir breytingar
Um miðjan desember var verið að
leggja lokahönd á framkvæmdir við
endurnýjun A deildar, lyflækninga-
deildar, á Heilbrigðisstofnun Vest-
urlands á Akranesi. Undanfarna
sex mánuði hafa iðnaðarmenn ver-
ið að störfum, allt verið hreinsað út
og endurnýjað; innréttingar gólf-
efni, milliveggir og fleira. Fimmtu-
daginn 16. desember komu síðan
fyrstu sjúklingarnir og lögðust inn
á endurnýjaða deildina.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti
sama morgun í heimsókn á lyf-
lækningadeildina sem er á þriðju
hæð og hitti þar að máli þau Stef-
án Þorvaldsson yfirlækni og Valdísi
Heiðarsdóttur hjúkrunardeildar-
stjóra. Þau segja að endurbæturn-
ar hafi löngu verið orðnar tímabær-
ar en lyflækningadeildin var opnuð
1. febrúar árið 1977 og í grunninn
verið óbreytt síðan. Búið er að
breyta herbergjaskipan, nú eru fleiri
eins manns herbergi í staðinn fyr-
ir tveggja manna á kostnað fjölda
sjúklinga en deildin hefur minnk-
að með þessum breytingum. Hins
vegar er aðstaðan orðin miklu betri,
allt miklu bjartara en allir veggir
voru frekar gamaldags í appelsínu-
gulum og dökkgrænum litum.
En hvað er helst verið að fást
við á lyflækningadeildinni? „Það
eru blönduð vandamál, lyflækn-
ingar svokallaðar. Hjartavanda-
mál, meltingarvandamál, sýkingar,
taugaheilablóðföll. Í raun allt sem
ekki tilheyrir skurðlækningum og
einnig almenn veikindi eldra fólks
með fjölþætt vandamál,“ segir Stef-
án. „Þá er betri aðstaða nú til að
einangra fólk með smitandi sjúk-
dóma. Við erum með lokuð her-
bergi þar sem hægt er að hafa yfir
og undir þrýsting á loftinu og þá
er minni hætta á að það smitist út
á deildina.“
Nýlega fékk HVE á Akranesi
peningagjöf frá Lionsklúbbi Akra-
ness sem ráðstafað verður til kaupa
á svokölluðum vökturum sem er
búnaður til að fylgjast með heilsu
og líðan sjúklinga, hjartslætti,
lífsmörkum og hjartalínuriti. Val-
dís segir að lokum að það sé alltaf
ánægjulegt að fá þess konar gjaf-
ir því alltaf vanti peninga til tækja-
kaupa. Hún nefndi einnig að núna
sé nóg pláss fyrir myndir á veggi og
þá eru hægindastólar, eða Lazyboy
stólar, alltaf góð gjöf fyrir sjúklinga.
vaks
Valdís og Stefán eru hæstánægð með nýju aðstöðuna.
Línuleiðin; Gróustaðir næst, svo Garpsdalur og Gilsfjarðarmúli fjærst.
Ljósm. af vef Reykhólahrepps.
Gilsfjarðarlína sett í jörð
í Reykhólahreppi
Það er bjart yfir lyflækningadeildinni eftir breytingarnar.