Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 202224 undanfarin tvö ár er ekki sjálfsagður hlutur, sér í lagi ekki þegar litið er til þeirra hremminga sem við urðum fyrir vegna húsnæðismála. Það er jafnframt jákvætt að við höfum leyst nokkur þeirra stóru húsnæðisvandamála sem við stóð- um frammi fyrir. Leikskólinn Hnoðraból opnaði formlega í nýju húsnæði á Kleppjárnsreykjum strax í upphafi ársins 2021, Ráðhúsið verður um mitt ár 2022 sameinað á Digra- nesgötu 2 og hlakka ég til að taka á móti íbúunum okkar á nýjum stað. Aldan og áhaldahúsið munu síðan flytja í nýtt húsnæði á árinu 2022.“ Styrktum stoðirnar Ný og spennandi verkefni litu dagsins ljós árið 2021. Sam- þætting leiðarkerfis sveitarfélagsins hófst síðla haust, þar sem Strætó og skólabílar samþætta leiðir sínar sem nýtist íbúum sveitarfélagsins og gestum og hefur verkefnið geng- ið vel framan af. Nýsköpunar- og þróunarsetur í samstarfi háskólanna á Vesturlandi var stofnað en um er að ræða spennandi verkefni þar sem áhersla verður lögð á nýsköpun, rannsóknir, fræðslu og frumkvöðlastarf. Þá var Grænfáninn dreginn að húni í áttunda sinn í Grunnskólanum í Borg- arnesi auk þess sem fánanum var einnig flaggað á Klepp- járnsreykjum og á Varmalandi. Slökkvilið Borgarbyggðar útskrifaði slökkviliðsmenn í fyrsta skipti og margir nýliðar eru komnir til liðs við okkar öfluga slökkvilið, þar með tald- ar nokkrar öflugar konur. Stjórnsýsla Borgarbyggðar gekk í gegnum umbreytingarár, en nýtt skipurit tók í lok árs 2020 gildi og hófst þá vinna við að efla starfsemi sveitarfélagsins og auka skilvirkni og þjón- ustu gagnvart íbúum og gestum Borgarbyggðar. Í upphafi árs var komið á fót þjónustuveri þar sem lögð var áhersla á að leysa sem flest erindi við fyrstu snertingu. Auk þess hófst vinna við gerð verkferla og breytt vinnubrögð til að auka þjónustustig og stytta meðferð erinda, með sérstaka áherslu á skipulags- og byggingarmál. Við státum okkur af metnað- arfullu teymi sem vinnur hörðum höndum í þágu íbúa og leggur áherslu á fagmennsku í starfsháttum. Stærsta uppbygging á Kleppjárnsreykjum „Á árinu 2022,“ segir Þórdís; „höldum við ótrauð áfram og ætlum í enn frekari uppbyggingu innviða sveitarfélagsins og góðri þjónustu við íbúa, sem er forsenda fyrir því að sveitar- félagið okkur vaxi og blómstri. Á þessu ári hefst vinna við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem fram- tíðarsýn verður mótuð með tilliti til allra þátta samfélags- ins. Á árinu verður kláruð vinna við skipulagningu íþrótta- mannvirkja og farið verður í framkvæmdir á gervigrasvelli til æfinga og keppnishalds í Borgarnesi. Stærsta uppbygging ársins er áætluð við Grunnskóla Borgarfjarðar, að Klepp- járnsreykjum, en stór hluti húsnæðisins þar er nú ónothæft sökum raka. Lagfæringar á Borgarbrautinni verða einnig töluverðar, þar sem gatan verður að miklu leyti endurgerð og gangstéttar lagfærðar þar sem þörf krefur. Það er því nóg af stórum verkefnum á árinu sem við ætlum að halda vel utan um og munu hafa mikla þýðingu fyrir íbúa okkar.“ Þórdís segir að eitt það ánægjulegasta sem er að gerast í sveitarfélaginu er að íbúðarhúsnæði er að fjölga með fjölda nýbygginga. „Á árinu munum við sjá fleiri tilbúnar lóðir til úthlutunar, m.a. í Bjargslandi og á Hvanneyri, en á árinu verður gerð ný gata á Hvanneyri fyrir íbúðarhúsnæði. Þessi uppbygging og sú staðreynd að fyrirtæki í sveitarfélaginu eru að styrkjast og skortir vinnuafl, hefur orðið til þess að íbúum sveitarfélagsins fer aftur fjölgandi.“ Við höfum allt til brunns að bera til að vaxa Þórdís segist horfa björtum augum á árið 2022 og er full til- hlökkunar að takast á við komandi verkefni. „Við höldum áfram í uppbyggingu og undirbúningi fyrir komandi tíma. Við leggjum áherslu á bætt aðgengi að þjónustu og gæði hennar. Ég hlakka til að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum á. Borgarbyggð er í nálægð við allt sem skiptir máli, eins og ómaði í ljósvakamiðlum landsins í sumar. Við höf- um allt til brunns að bera til að vaxa í takt við breytt starfs- umhverfi og nútímatækni sem gerir einstaklingum kleift að starfa nánast hvar sem er, óháð staðsetningu. Íbúaþróunin er jákvæð sem er mjög ánægjulegt og vonir standa til þess að þróunin verði upp á við eftir því sem fram líður. Mikil uppbygging er á öllum þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins og einnig erum við með tvo öfluga háskóla sem hafa verið í mik- illi sókn undanfarin ár. „Borgarbyggð verður enn eftirsóttari staður en nú til að búa og starfa,“ segir Þórdís. „Okkur eru allir vegir færir í því sam- félagi sem við búum í sem hefur einkennst af samkennd og vilja til samfélagslegrar þátttöku eins og fram kom hér að framan. Samfélagið okkar er auðugt og tækifærin eru mik- il. Höldum áfram að að búa til jákvætt samfélag þar sem fólk þrífst vel og dafnar. Ég er stolt af því sem þið, kæru íbúar og starfsfólk, hafið lagt fram á árinu. Stolt af þolinmæði ykk- ar allra til breyttra lifnaðarhátta og skerðinga sem hafa sett mark sitt á líf okkar undanfarið. Árið hefur verið lærdómsríkt og krefjandi fyrir okkur öll, en við stöndum sterkari að baki þess. Ég hlakka til áframhaldandi samvinnu við ykkur á ár- inu og vona að við fáum enn fleiri tækifæri til að hittast, ræða saman og gleðjast saman á þessu nýja bjarta ári. Lífið bíður þín í Borgarbyggð,“ segir Þórdís að lokum. frg Í útdrætti í Víkingalottóinu mið- vikudaginn fyrir jól var Íslending- ur sem datt í lukkupottinn. Hreppti hann annan stærsta vinning sem hingað til lands hefur komið frá upphafi; 439 milljónir króna. Í til- kynningu frá Íslenskri getspá kem- ur fram að miðaeigandinn hafi átt miðann sinn í áskrift. „Það var lítil fjölskylda sem vann stóra vinn- inginn. Fjölskyldufaðirinn, sem er um þrítugt, hafði gerst áskrifandi eftir að stóri vinningurinn kom til landsins síðastliðið sumar og það var ekki lengi að bera árangur, því hann er nú rétt tæpum 439 milljón- um krónum ríkari,“ segir í tilkynn- ingu. Vinningshafinn segist strax hafa fengið ákveðinn fiðring þegar frétt- ir byrjuðu að birtast á miðviku- dagskvöldið um að áskrifandi á Ís- landi hefði tekið þann stóra en hann ákvað að bíða með að athuga tölurnar enda á leiðinni á jólatón- leika. „Mig langaði líka að upp- lifa þetta símtal sem ég hef svo oft heyrt um,“ sagði hann aðspurð- ur og, mikið rétt, símtalið frá Ís- lenskri getspá kom á endanum! Vinningshafinn og kærastan eru nú í íbúðaleit fyrir sig og lítið barn sem þau eiga. Það var þó ekki kærastan sem fékk fréttirnar fyrst. „Mín fyrstu viðbrögð voru að hring ja í mömmu!“ Hann kveðst ætla að þiggja þá fjármálaráðgjöf sem Ís- lensk getspá býður öllum þeim sem hreppa stóra vinninga. mm Vegna margra ábendinga til Mat- vælastofnunar um sölu og dreifingu á unnum afurðum frá villtum fugl- um, bendir stofnunin á að ekki má selja afurðir gæsa, anda eða annarra villtra fugla, né dreifa þeim, nema með leyfi Matvælastofnunar eða viðkomandi Heilbrigðiseftirlits- svæðis. Auglýsing á Facebook get- ur talist til sölu eða dreifingar. Matvælastofnun er skylt og mun fylgja eftir auglýsingum um sölu og dreifingu á þessum afurðum. „Undantekning er þegar veiði- maður afhendir heilan fugl (óreytt- an) til neytenda, markaða eða veitingastaða. Sérhver meðhöndlun á gæs telst sem vinnsla og er leyfi- skyld ef selja eða dreifa á afurðun- um. Þetta á t.d. við um pakkaðar gæsa- og andabringur (kryddaðar og ókryddaðar), um pate og kæfu frá þessum fuglum og um grafnar afurðir þeirra. Þegar neytt er villi- bráðar sem hefur verið skotin þarf ávallt að hafa í huga að hætta er á að leifar af skotfærum getur leynst í kjötinu og að blýmengun getur ver- ið til staðar en blý er þungmálmur sem ber að varast,“ segir í tilkynn- ingu frá Matvælastofnun. mm Samtök íþróttafréttamanna til- kynntu 29. desember niður- stöðu í kjöri íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2021. Þau tíu sem höfnuðu í efstu sætunum í kjörinu voru: Aron Pálmarsson handknattleiksmaður, Bjarki Már Elísson handknattleiksmaður, Júl- ían J.K. Jóhannsson kraftlyftinga- maður, Kári Árnason knattspyrn- umaður, Kolbrún Þöll Þorradótt- ir fimleikakona, Kristín Þórhalls- dóttir kraftlyftingakona, Martin Hermannsson körfuknattleiks- maður, Ómar Ingi Magnússon handknattleiksmaður, Rut Arn- fjörð Jónsdóttir handknattleiks- kona og Sveindís Jane Jónsdóttir knattspyrnukona. Það var Ómar Ingi Magnús- son handknattleiksmaður sem varð efstur í kjörinu og hlaut þann eft- irsótta titil, Íþróttamaður ársins 2021. Ómar Ingi keppir með Mag- deburg í Þýskalandi. Hann var valinn í lið ársins í Þýskalandi. Í öðru sæti varð Kolbrún Þöll Þorra- dóttir fimleikakona og í þriðja sæti Kristín Þórhallsdóttir kraftlyft- ingakona úr Borgarfirði. Það var kvennalandsliðið í hóp- fimleikum sem tók titilinn fyrir lið ársins að þessu sinni og þjálf- ari ársins var Þórir Hergeirsson þjálfari kvennaliðs Noregs í hand- knattleik. Einar í heiðurshöll ÍSÍ Einar Vilhjálmsson frjálsíþrótta- maður var við sama tækifæri valinn í Heiðurshöll ÍSÍ og er hann 23. einstaklingurinn sem þann heiður hlýtur. mm Lionsklúbbur Ólafsvíkur stóð fyrir árlegu leikfangahappdrætti og var dregið út á aðfangadagsmorgun. Vegna samkomutakmarkana var ekki hægt að koma saman og var því dregið í beinni útsendingu á YouTube. Föst jólahefð er að mæta á staðinn og fylgjast með útdrættin- um, en nú fylgdist fólk með heima í stofu. Vinninga var svo hægt að vitja að útdrætti loknum. Vilja Lionsmenn koma á framfæri þakk- læti til þeirra sem styrktu happ- drættið sem og til þeirra sem tóku þátt. þa Annar stærsti lottó- vinningur frá upphafi Útdráttur leikfanga- happdrættis í streymi Sala og dreifing á unnum afurðum villtra fugla Einar Vilhjálmsson var valinn í heiðurshöll ÍSÍ. Ómar Ingi er Íþróttamaður ársins 2021 Ómar Ingi Magnússon íþróttamaður ársins 2021.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.