Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 20228 Aflatölur fyrir Vesturland 25. til 31. desember. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu. Akranes: 2 bátar. Heildarlöndun: 4.393 kg. Mestur afli: Emilía AK-57: 2.785 kg. í þremur löndunum. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 16.354 kg. Mestur afli: Kvika SH-23: 16.354 kg. í tveimur löndunum. Grundarfjörður: 1 bátur. Heildarlöndun: 56.766 kg. Mestur afli: Harðbakur EA-3: 56.766 kg. í einni löndun. Ólafsvík: 4 bátar. Heildarlöndun: 52.374 kg. Mestur afli: Indriði Kristins BA-751: 23.305 kg. í einni löndun. Rif: 3 bátar. Heildarlöndun: 47.803 kg. Mestur afli: Gullhólmi SH- 201: 24.614 kg. í einni löndun. Stykkishólmur: 1 bátur. Heildarlöndun: 3.386 kg. Mestur afli: Fjóla SH-7: 3.386 kg. í einni löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Harðbakur EA-3 GRU: 56.766 kg. 30. desember. 2. Gullhólmi SH-201 RIF: 24.614 kg. 28. desember. 3. Indriði Kristins BA-751 ÓLA: 23.305 kg. 28. desember. 4. Tryggvi Eðvarðs SH-2 ÓLA: 18.456 kg. 28. desember. 5. Stakkhamar SH-220 RIF: 13.652 kg. 28. desember. -frg Ungir hrekkjalómar AKRANES: Ungir drengir gerðu sér það að leik að kasta Vítisflugeldum í bíla á Faxa- brautinni í vikunni en ekkert tjón hlaust af. Ekki er vitað hverjir voru að verki. -vaks Óhapp á Snæfellsnesi SNÆFELLSNES: Hringt var í Neyðarlínuna í síðustu viku og tilkynnt um slys á Snæfellsnesvegi austan við Böðvarsholt og var send að- stoð. Engin slys reyndust hafa orðið á fólki. -vaks Svalahurð fauk af AKRANES: Svalahurð fauk af í heilu lagi á Seljaskógum á Akranesi á dögunum, gler í hurðinni brotnaði og hurðin skemmdist. Björgunarsveit- armenn voru kallaðir til og aðstoðuðu eftir atvikum. -vaks Óbreytt á landamærunum LANDIÐ: Á fundi ríkis- stjórnar í gær var ákveðið að framlengja óbreytta reglu- gerð um sóttvarnaráðstaf- anir á landamærum vegna Covid-19 til 28. febrúar nk. Þá var ákveðið að tillaga um fyrirkomulag á landamærum fyrir vorið verði kynnt fyrir 20. febrúar. -mm Bæjarstjórn Akraness hefur fall- ið frá áformum um byggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Jör- undarholti á Akranesi. Íbúðakjarn- anum var ætlaður staður á svæði á milli efra og neðra Jörundarholts sem í dag er óbyggt en nýtt af íbú- um undir útivist, knattspyrnuiðk- un og fleira. Þar eru grasflatir, lítið leiksvæði, spennistöð og göngu- stígur. Óhætt er að segja að áformin um íbúðakjarnann hafi vakið hörð við- brögð þegar þau voru kynnt. Bent var á að húsið væri stórt og að mik- ið ónæði og rask myndi hljótast af framkvæmdunum. Bæjarstjórn hef- ur einsett sér það verkefni að finna kjarnanum nýja staðsetningu í sátt við samfélagið og þá sem málið varðar. Þessi ákvörðun var einróma samþykkt á bæjarstjórnarfundi um miðjan desember. frg Hollvinasamtök HVE afhentu Heilbrigðisstofnun Vestur- lands á Akranesi þrjú ný sjúkrar- úm skömmu fyrir jól. Samtök- in ákváðu haustið 2018 að fara í söfnun meðal fyrirtækja, félaga- samtaka og einstaklinga á starfs- svæðinu til að fjármagna kaup á sjúkrarúmum fyrir HVE. Að sögn Steinunnar Sigurðardóttur, for- manns hollvinasamtakanna, fór söfnunin langt fram úr vænting- um. „Þetta hefur gengið ævin- týralega vel,“ segir Steinunn í samtali við Skessuhorn. Árið 2019 afhentu samtökin alls 17 rúm og árið 2020 voru afhent átta rúm. Nú verða afhent þrjú rúm til við- bótar og eru rúmin þá alls orðin 28 talsins. Að þessu sinni verður afhent eitt tæknilegt rúm á lyf- lækningadeildina á Akranesi og tvö rúm á handlækningadeildina á Akranesi. „Við erum alveg að nálgast markmið okkar en stefn- um á að senda tvö eða þrjú rúm til viðbótar í Stykkishólm og þá er markmiði okkar náð,“ segir Steinunn. Alls hafa 22 aðilar; félagasamtök, fyrirtæki, sveitarfélög og einstak- lingar, komið að þessari söfnun auk þess sem samtökin hafa fengið fé úr minningarsjóði þegar keypt eru minningarkort. „Félagsgjöld okkar eru um átta til níu hundruð þúsund á ári og þau hafa líka farið öll í kaup á þessum rúmum,“ seg- ir Steinunn. „Við höfum líka verið gríðarlega heppin með það að Bif- reiðastöð ÞÞÞ hefur hjálpað okk- ur með alla flutninga. En við höf- um fundið mikinn velvilja í sam- félaginu gagnvart stofnuninni,“ bætir hún við. arg Fyrir skömmu afhenti Ingvar Sam- úelsson Reykhólahreppi fyrir hönd Lions, myndvarpa, rafstýrt sýn- ingartjald og hljóðkerfi ásamt upp- setningu. Frá þessu er greint á vef Reykhólahrepps. Búnaðinum var komið fyrir í matsal Reykhólaskóla sem oft er notaður fyrir fundi. Til- gangur gjafarinnar er að hluta til að eiga þess kost að bjóða upp á að- stöðu við fjölmennar athafnir eins og til að mynda jarðarfarir, þegar fjöldi gesta er slíkur að ekki er pláss í kirkjunni fyrir alla. Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri tók á móti gjöfinni fyr- ir hönd Reykhólahrepps og þakk- aði Lions kærlega fyrir þessa góðu gjöf en hún ætti eftir að koma sér mjög vel og bæta fundaraðstöðu töluvert fyrir sveitarfélagið og fleiri aðila. vaks Svæðið milli efra og neðra Jörundarholts þar sem áformað var að reisa nýjan íbúðakjarna fyrir fatlaða. Fallið frá uppbyggingu íbúðakjarna í Jörundarholti Ingibjörg Birna og Ingvar við afhendinguna. Ljósm. af vef Reykhólahrepps Myndarleg gjöf frá Lions í Reykhólahreppi Hollvinasamtök HVE gáfu Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þrjú ný rúm rétt fyrir jól. Hollvinasamtök HVE gáfu þrjú sjúkrarúm Steinunn Sigurðardóttir afhenti Stefáni Þorvaldssyni yfirlækni rúmin.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.