Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 9 Sérfræðingur á Vesturlandi STARFSSVIÐ l Framkvæmdaeftirlit; gatnagerð, byggingar, veitur l Hönnun bygginga l Líkan- og skýrslugerð l Þéttbýlistækni, skipulags- og umhverfisráðgjöf l Ráðgjöf og verkefnavinna l Samskipti við viðskiptavini og hagaðila HÆFNISKRÖFUR l Háskólamenntun sem nýtist í starfi l Reynsla af framkvæmdaeftirliti og hönnun bygginga l Þekking á helstu teikniforritum l Góð færni í textagerð og upplýsingamiðlun l Góð hæfni í íslensku og ensku l Afburða hæfni til samskipta og samvinnu l Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starf- rækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem fjórðungur starfsfólks starfar. Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum ráðningarvef EFLU efla.is/laus-storf fyrir 16. janúar 2022. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Daníelsson, svæðisstjóri á Suðurlandi. EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum aðila til starfa á Vesturlandi. Í dag er starfsstöð á Hvanneyri, en vilji er til að byggja upp þjónustu víðar á svæðinu. Starfið er tilvalið fyrir aðila sem er nú þegar búsettur á Vesturlandi eða sem horfir til þess að flytja þangað. efla.is412 6000 Eins og fram kom í frétt Skessu- horns í byrjun desember hafa bræð- urnir Magnús og Ólafur Óskars- synir selt Bílasöluna Bílás eftir tæp- lega fjörutíu ára rekstur. Formleg eigendaskipti gengu yfir um ára- mótin og tóku nýir eigendur, þeir Alexander Þórsson og Kristján Einarsson, við rekstrinum. Bræð- urnir afhentu síðasta bílinn daginn fyrir gamlársdag, nýjan Kia fólks- bíl. Kaupandinn var reyndar innan fjölskyldunnar, Jóhanna Ólafsdótt- ir. mm/ Ljósm. jtó. Hvalaskoðunarbáturinn Íris hjá Láki Tours í Grundarfirði hefur ver- ið að sigla með ferðamenn undan- farna daga í von um að sjá þessi stóru spendýr spóka sig um í íslenskri lögsögu. Hvalaskoðunarferðirn- ar hófust aftur 20. desember síðast- liðinn og hafa verið farnar nokkrar ferðir yfir hátíðarnar og svo núna í byrjun janúar. Samkvæmt heimasíðu Láki Tours hefur verið hægt að sjá hnúfubak, háhyrninga og höfrunga í þessum ferðum og upplifun ferða- manna verið góð. tfk Í byrjun árs tók Einar R Ísfjörð við sem rekstrarstjóri hjá N1 í Ólafs- vík. Einar sagði í stuttu spjalli við fréttaritara Skessuhorns að hann hafi verið rekstrarstjóri hjá N1 í Staðarskála í Hrútafirði undan- farin sjö ár og þar áður starfað í Keflavík. „Mér var boðið þessi staða og þáði hana,“ sagði Einar. „Ég mun sjá í framhaldinu hvort einhverjar breytingar verða gerðar hér en til að byrja með mun ég hafa opið til klukkan 18 í stað 17 sem áður var og svo mun ég sjá til með laugardagsopnun og finna taktinn í þessu.“ af Orri Magnússon hefur tekið við sem skipstjóri á netabátnum Ólafi Bjarnasyni SH af föður sínum Magnúsi Jónassyni. Magnús hefur stýrt Ólafi í sex ár og þar áður var Björn Erlingur Jónasson skipstóri í 42 ár eða frá því að Ólafur Bjarna- son SH kom nýr til Ólafsvíkur frá Akranesi árið 1973. Orri var í sinni jómfrúarferð sem skipstjóri á mánudaginn og var faðir hans Magnús með í ferðinni syninum til halds og trausts, að sögn Magnúsar. Hann mun verða í nokkra daga um borð til þess að koma Orra vel inn í netaveiðarnar. Eins og svo oft áður var Ólafur Bjarnason SH með þeim fyrstu til að landa í Ólafsvík á nýju ári. Land- aði sjö tonnum af góðum þorski á mánudaginn sem fékkst í sjö tross- ur. Á sunnudag landaði netabátur- inn Bárður SH 17 tonnum í Rifi sem jafnframt var fyrsti aflinn sem berst að landi í Snæfellsbæ á nýju ári. af Einar Hjörleifsson og Vilhjálmur Birgisson áhafnarmeðlimir á Ólafi Bjarnasyni SH. Skipstjóraskipti á Ólafi Bjarnasyni Orri og Magnús í brúnni. Ólafur afhendir Jóhönnu dóttur sinni síðasta bílinn áður en eigendaskiptin gengu í gegn. Afhentu síðasta bílinn í árslok Magnús og Ólafur Óskarssynir með Alexander á milli sín, en hann er annar tveggja nýrra eigenda bílasölunnar. Einar R Ísfjörð, eiginkona hans Guðný María Bragadóttir og sonurinn Ágúst. Nýr rekstraraðili N1 í Ólafsvík Íris kemur í land með ánægða ferðamenn eftir góða ferð mánudaginn 3. janúar. Hvalaskoðunin komin af stað aftur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.