Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 20226
Vegabréf ekki
lengur í póst
LANDIÐ: Um áramótin
tók gildi breyting á reglu-
gerð um íslensk vega-
bréf. Breytingin snýr að af-
hendingarmáta vegabréfa en
frá og með 1. janúar hætti
Þjóðskrá að senda vegabréf
á lögheimili einstaklinga á
Íslandi. Við þessa breytingu
munu einstaklingar einungis
geta sótt vegabréf sín, ann-
að hvort á skrifstofur sýslu-
mannsembætta eða til Þjóð-
skrár. Þessi breyting er til-
komin vegna athugasemda
Persónuverndar um
sendingar vegabréfa með al-
mennum bréfapósti. Áfram
geta einstaklingar fengið
vegabréf sín send heim ef að
búseta er erlendis og verða
þau send á uppgefið heimil-
isfang erlendis með rekjan-
legum pósti. -mm
Bilanir á línum í
upphafi árs
VESTURLAND: Raf-
magnsbilun varð á tveim-
ur stöðum á Vesturlandi
á nýársdag. Sú fyrri varð
á Saurbæjarlínu í Dölum
klukkan 13:16 og lauk við-
gerð klukkan hálf sex næsta
morgun. Síðari bilunin varð
á Melasveitarlínu í Hval-
fjarðarsveit. Þar fór rafmagn
af klukkan 17 á nýársdag
og lauk viðgerð klukkan
þrjú um nóttina. Samhliða
þessum bilunum var nokk-
uð flökt á rafmagni víðar í
landshlutanum, en ekki voru
fleiri bilanir skráðar á vef
Rarik. -mm
Vilja netabáta
í rallið
LANDIÐ: Ríkiskaup
hafa, fyrir hönd Hafrann-
sóknastofnunar, óskað eftir
bjóðendum í gagnvirkt inn-
kaupakerfi (DPS) til leigu
á netabátum til að stunda
netaveiðar í rannsóknar- og
gagnaöflunarskyni vegna
verkefnisins „Stofnmæl-
ing hrygningarþorsks með
þorskanetum“. Verkefnið
hefur farið fram ár hvert frá
1996 og eru lögð net á um
300 stöðvum og fara leið-
angrar yfirleitt fram í apríl
og reynt er að miða upphaf
leiðangra við dagsetningu
sem næst 1. apríl. „Markmið
rannsóknanna er að safna
upplýsingum um kynþroska,
aldur, lengd og þyngd þorsks
á helstu hrygningarsvæð-
um. Einnig að meta árlega
magn kynþroska þorsks sem
fæst í þorskanet á hrygn-
ingarstöðvum og breytingar
í gengd hrygningarþorsks á
mismunandi svæðum,“ segir
í tilkynningu. Sækja þarf um
fyrir hádegi 27. janúar nk.
-mm
Mannamóti
var frestað
LANDIÐ: Forstöðumenn Mark-
aðsstofa landshlutanna ákváðu
skömmu fyrir jól, í ljósi nýjustu
sóttvarnatakmarkanna, að fresta
Mannamóti sem vera átti 20. jan-
úar. Ferðakaupstefnan verður því
haldin í Kórnum í Kópavogi, frá
klukkan 12-17 fimmtudaginn 24.
mars næstkomandi, og munu allar
skráningar sýnenda halda sér. „Þeir
sem vilja gera breytingar á sinni
skráningu er velkomið að gera það
og er bent á að hafa samband við
sína markaðsstofu. Þeir sem hafa
skráð sig sem gestir eru vinsamleg-
ast beðnir um að skrá sig að nýju,
ætli þeir að mæta þann 24. mars,“
segir í tilkynningu. -mm
Foktjón í
upphafi árs
LANDIÐ: Björgunarsveitir
Landsbjargar voru kallaðar út í
þrígang í byrjun nýársdags vegna
foktjóns; á Akranesi, Hellu og
Þorlákshöfn. Lausamunir höfðu
fokið, fánastöng og fiskikör, svo
eitthvað sé nefnt. Á Hellu þurfti
að koma matarvagni í skjól vegna
veðurs. Um klukkan hálf fjög-
ur voru svo björgunarsveitir aft-
ur kallaðar út, þá á Akureyri og
Suðurnesjum þar sem tilkynn-
ingar bárust um fok á þakplötum.
-mm
Tvö dekk fóru
undan rútu
AKRANES: Ökumaður á rútu
varð fyrir því óhappi á mánudag
að tvö dekk fóru undan bílnum
og fór hann út af veginum. Við
það kviknaði sinueldur við veg-
inn en ökumaður bílsins náði að
slökkva eldinn. -vaks
Samanburður á rekstri Borgarbyggðar fyrstu tíu mánuði
ársins við fjárhagsáætlun leiðir í ljós að rekstrarafkoma
sveitarfélagsins er betri en áætlað var á þessum tíma árs
eða um samtals 185 milljónir króna, en frá þessu sagði á
vef sveitarfélagsins fyrir jól.
Skatttekjur Borgarbyggðar eru heldur hærri en gert
var ráð fyrir og munar þar mestu um að staðgreiðsla er
um 150 milljónum krónum hærri og framlag úr Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga er 20 milljónum hærra en áætlað
var. Útsvarstekjurnar eru enn fremur hærri í ár sem er
í takt við fólksfjölgunina í sveitarfélaginu og niðurstaða
ársins stefnir í það að vera jákvæð en áætlanir gerðu ekki
ráð fyrir því á þessu ári.
vaks
Smærri línubátar hafa róið stíft frá
Snæfellsbæ að undanförnu þrátt
fyrir rysjótta tíð. Bátar hafa sótt
suður fyrir Öndverðarnes til þess
að komast í skjól frá norðaust-
an áttinni. Kvika SH var á þriðju-
daginn í síðustu viku búin að landa
tvisvar á Arnarstapa og verið með í
kringum átta tonn í róðri, en Ind-
riði Kristins BA var við bjargið og
sögðu skipverjar að leiðindaveður
hafi verið, en þó sléttur sjór.
Indriði Kristins landaði í Ólafs-
vík á þriðjudaginn 24 tonnum á
rúmlega eina lögn. „Við urðum að
skilja eftir næstum helming línunn-
ar í sjó vegna þess að öll kör í bátn-
um voru orðin full,“ sagði Magn-
ús skipverji á Indriða í samtali við
Skessuhorn. „Við förum út aftur
strax og við erum búnir að landa en
þessi afli fer í vinnslu hjá Kambi í
Hafnarfirði, en við munum landa
næst heima á Tálknafirði,“ sagði
hinn síbrosandi Magnús að lokum.
af
Indriði Kristins að
koma til hafnar í
Ólafsvík í kaldaskít
síðastliðinn þriðjudag.
Stíft róið þegar gefur til sjós
Frændurnir Tómas og Magnús að landa aflanum.
Stefnir í betri rekstrarafkomu
hjá Borgarbyggð