Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 202212 Ritið „Búnaðarfélag Andakíls- hrepps og annar búnaðarfélags- skapur þar frá 1850“ hefur nú ver- ið birt á heimasíðu Landbúnaðar- háskóla Íslands. Ritið er skrifað af Bjarna Guðmundssyni prófess- or. Í formála þess segir Bjarni frá því að hann hafi fengið það hlut- verk þegar Búnaðarfélag Andakíls- hrepps varð 100 ára, árið 1981, að skrifa stutta aldar sögu félagsins til að birta í byggðasögu Búnaðar- sambands Borgarfjarðar. Þegar hann hafði lokið við skrifin var verkið orðið mun stærra en áætlað var og skrifaði hann þá úrdrátt sem birtist í ritverkinu Byggðir Borg- arfjarðar. Í mars síðastliðnum var Bjarni beðinn um að annast stutta sögustund á aðalfundi búnaðarfé- lagsins í tilefni 140 ára afmæli þess. Dró hann þá drögin fram á ný. Á aðalfundinum var samþykkt að reyna að koma sögu félagsins fyrir sjónir áhugasamra og hef- ur Bjarni síðan unnið að því að skrifa söguna. „Ekki er þó um að ræða að félags- eða búnaðar- saga hreppsins sé sögð með tæm- andi hætti; til þess hefði þurft að leggja í mun meiri tíma og vinnu við rannsókn heimilda en efni stóðu til hér. Ritið á þó að gefa dálitla hugmynd um það helsta sem bjástrað hefur verið við á vettvangi búnaðarfélagsins og hvernig það hefur með beinum og óbeinum hætti stuðlað að þró- un búskapar og mannlífs á félags- svæðinu,“ segir í formála ritsins „Búnaðarfélag Andakílshrepps og annar búnaðarfélagsskapur þar frá 1850.“ arg Fjárhagsáætlun Akraneskaup- staðar fyrir árið 2022 og þriggja ára áætlun 2023 til 2025 var sam- þykkt á fundi bæjarstjórnar Akra- ness 14. desember. Einnig var fjár- festinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Helstu atriði fjárhags- áætlunar 2022 eru að gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari á árinu 2021, eða 14,52%, gjaldskrár hækka um 3,5%, álagningar prósentur fast- eignaskatta verða óbreyttar og verður 0,2514 fyrir íbúðarhúsnæði og 1,4% fyrir atvinnuhúsnæði og lóðarleiga af nýjum lóðum og endurnýjuðum samningum verð- ur 1,199% af fasteignamatsverði atvinnulóða og 0,3034% af fast- eignamatsverði íbúðarhúsalóða. „Áætlað er að rekstrarhagnað- ur verði 213,8 mkr. á árinu 2022 eða 2,28% sem hlutfall af tekj- um sveitarfélagsins. Spáð er að rekstrar hagnaður Akraneskaup- staðar á árinu 2021 verði 180,7 m.kr. eða sem nemur 2,07% af tekjum sveitarfélagsins. Rekstrar- afkoma næstu ára þ.e. á árunum 2022 til 2025 er áætluð að með- altali 328 m.kr. Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar gerir ráð fyr- ir umfangsmiklum fjárfestingum næstu árin að fjárhæð 6.028 millj- ónir króna. Fyrirhuguð lántaka vegna þess á næstu þremur árum er áætluð 3.300 m.kr. Samhliða því er fyrirhugað að greiða niður lang- tímalán að fjárhæð 1.329 m.kr. og greiðslu lífeyrisskuldbindingar að fjárhæð 992 m.kr. til ársins 2025.“ Í tilkynningu frá bæjarstjórn kemur fram að Akraneskaupstað- ur mun viðhalda ábyrgri fjármála- stefnu og sjá til þess að vera vel innan þeirra fjárhagslegu viðmiða sem gerð eru til sveitarfélaga, þ.e. að rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára (samanlögð rekstrarafkoma á þriggja ára tímabili) verður já- kvæður sem nemur 528 m.kr. í árs- lok 2022. Fjárhagsáætlunin gerir jafnframt ráð fyrir því að rekstrar- jöfnuður muni nema rúmum 1.098 m.kr. í árslok 2025 þrátt fyrir um- talsverðar fjárfestingar í innvið- um bæjarins á þeim tíma og aukn- ingu rekstrargjalda svo sem vegna nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum og vegna nýs leikskóla. „Skuldaviðmið sveitarfélags- ins, þ.e. heildarskuldir og skuld- bindingar A- og B- hlutans sem hlutfall af reglulegum tekjum mun fara hækkandi samkvæmt fjárhags- áætlun bæjarins. Áætlað skulda- viðmið sveitarfélagsins í árslok 2022 mun nema 47,6% en hámark sveitarfélaga er 150% af reglu- legum tekjum þess. Fjárhagsáætl- un Akraness gerir ráð fyrir því að skuldaviðmiðið fari hækkandi og muni verða um 57,2% í lok árs 2025. Veltufjárhlutfall samstæð- unnar er jafnframt sterkt og er áætlað að nemi 1,13 í árslok 2022 en veltufjárhlutfall segir til um hversu vel í stakk búið sveitarfélag- ið er til þess að mæta nauðsynleg- um greiðslum á næstu 12 mánuð- um og á helst ekki að vera undir 1,0 til lengri tíma litið. Veltufjár- hlutfall sveitarfélagsins mun þá fara lækkandi á tímabili fjárhagsá- ætlunarinnar í samræmi við aukna fjárfestingu. Áætlað er að veltufjár- hlutfallið nemi 0,94 í árslok 2025. Áætlað er að setja um 2.153 m.kr. í fjárfestingar á árinu 2022 og eru 6.028 m.kr. fyrirhugaðar í fjár- festingar og framkvæmdir á næstu fjórum árum.“ Fjárfestingar fram undan Á meðal fjárfestinga og upp- byggingu verkefna Akraneskaup- staðar á árinu 2022 eru: Menntun: Í uppbyggingu er nýr sex deilda leikskóli í Skógarhverfi sem hefur möguleika á stækkun í átta deildir og lýkur framkvæmd- um á árinu. Umfangsmikil stækk- un og endurbótum á Grundaskóla mun hefjast í framhaldi af því að lokahönnun klárast. Endurbætur í Brekkubæjarskóla halda áfram og munu bætast við viðbótar kennslu- stofur á árinu ásamt því að glæsi- legum endurbótum á nýjum skóla- lóðum skóla mun halda áfram. Íþróttir: Stærsta framkvæmd um árabil hefst með byggingu íþróttamannvirkja á Jaðarsbökk- um með uppbyggingu íþróttahúss, geymslu og búningsklefa. Frístundir, endurhæfing og at- vinnuþátttaka: Framkvæmdir við nýja Samfélagsmiðstöð við Dal- braut 8 munu fara í gang í fram- haldi af hönnunarferli, þar sem starfsemi frístundastarfs barna og ungmenna, Fjöliðja og HVER verður boðin aðstaða. Nytjamarkaður, endurvinnsla og áhaldahús: Byggður verður upp nýr vinnustaður þar sem atvinnu- og hæfingartengd þjónusta sem stuðlar að aukinni hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi til jafns við aðra og þar sem þjónusta við viðhald stofnana og mannvirkja kaupstaðarins verður stýrt. Fram- kvæmdir munu hefjast í framhaldi af hönnunarferli. Velferð og mannréttindi: Fram- kvæmdum við byggingu tíu íbúða fyrir fatlaða og öryrkja mun ljúka á Dalbrautarreit. Framkvæmd- ir munu hefjast á Asparskógum í samstarfi við Bjarg íbúðafélag og ljúka á Dalbrautarreit í samstarfi við Leigufélag aldraða. Fram- kvæmdum mun ljúka innanhúss á þjónustumiðstöð fyrir aldraða. Götur og stígar: Gatnaviðgerð- ir eru fyrirhugaðar þ.á.m. áfram- hald á Garðagrund ásamt Suður- götu og hluti Hafnarbrautar ásamt viðhaldi gatna sem verð- ur kynnt á næstu mánuðum. Ný gatnagerð er fyrirhuguð í Flóa- hverfi, Skógarhverfi 3A og byrj- að í Skógarhverfi 3C og Breiðar- götu. Gatnagerð mun hefjast sam- hliða uppbyggingu innan Sem- entsreits. Í stígagerð verður byrjað á stíg upp í Flóahverfi ásamt frek- ari gatnagerð þar. Atvinnutengd verkefni: Mark- aðssetning á bænum til búsetu og bein markaðssókn til kynningar atvinnulóða á Grænum iðngörð- um í Flóahverfi og samstarf við Flói.is. Vefurinn 300akranes.is verður nýttur til kynningar á Flóa- hverfi, Dalbrautarreit, Sements- reit og Skógarhverfi. Fyrirhug- uð er sókn í uppbyggingu atvinnu í samstarfi við þróunarfélögin á Breið og Grundartanga en árlegt rekstrarframlag þar er 20 mkr. og 15. mkr. á ári. Má þar nefna áfram- haldandi uppbyggingu á rann- sóknar- og nýsköpunarstarfsemi og rekstur hitaveitu á Grundar- tanga. Mikill áhugi er meðal fjár- festa á uppbyggingu á nýjum mið- bæ og verður unnið með það næstu mánuðina. Stór opin hug- myndasamkeppni er fyrirhuguð á Breið og ætlunin að vinna áfram með áherslur sem komu út úr hug- myndasamkeppni á Langasands- svæði. Grænir iðngarðar og fjölgun á Breið Að sögn Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra er fjárhagsstaða Akra- neskaupstaðar góð og sjást merki þess að það hefur fjölgað hratt á vinnumarkaði og laun hækkað á Akranesi. „Þetta er afar mikilvægt og er að hafa jákvæð áhrif á rekstur eftir samdrátt sem fylgdi áhrifum heimsfaraldurs á tekjur árið 2019 og 2020. Stefnir í að rekstraraf- koma ársins verði nokkuð góð og áfram er rekstrarhagnaður hjá Akraneskaupstað. Þar skiptir verulegu máli að ábyrg fjármála- stjórn hefur verið við líði á Akra- nesi undanfarin ár. Tekist hefur að vernda grunnþjónustu en nú ætl- um við okkur stórsókn í atvinnu- uppbyggingu. Við erum að sjá að vinna undanfarinna ára í atvinnu- sókn er byrjuð að skila árangri. Upp úr áramótum verða nálægt 100 einstaklingar farnir að starfa á Breið og við sjáum verulegan áhuga á uppbyggingu atvinnu- starfsemi í Grænum iðngörðum í Flóahverfi. Fjárfestar eru farn- ir að banka á dyrnar með upp- byggingaráform við Guðlaugu, á Breiðinni, á Sementsreit, hótel við golfvöllinn og síðast en ekki síst á Grundartanga þar sem mögnuð tækifæri eru til staðar með upp- byggingu gufuaflsvirkjunar, hita- veitu og framleiðslu rafeldsneyt- is. Jafnframt hefur líklega aldrei verið jafn mikið byggt á Akranesi en nú hefur lóðum verið úthlutað til bygginga 572 íbúða, gríðarleg uppbygging innviða er í kortunum í uppbyggingu leikskóla, grunn- skóla, frístundastarfs, íþrótta- húss ásamt umfangsmikilli gatna- gerð. Það má því með sanni segja að fram undan er ár mikillar upp- byggingar í innviðum, í íbúðaupp- byggingu og sóknar í atvinnumál- um,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri. mm Rafrænt rit gefið út um Búnaðarfélag Andakílshrepps Stóraukin uppbygging í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar Fjölbýlishús í byggingu við Þjóðbraut 3. Ljósm. frá í haust/mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.