Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 202214 Einar Gestur Jónasson hefur verið ráðinn vallarstjóri hjá Golfklúbbn- um Leyni á Akranesi en um heils- árs starf er að ræða. Samkomulag milli Einars Gests og golfklúbbsins var handsalað skömmu fyrir áramót og mun Einar Gestur hefja störf hjá klúbbnum í febrúar/mars. Einar Gestur er menntaður grasvallafræðingur og lauk námi frá SRUC Elmwood College í Skotlandi árið 2005. Hann hefur víðtæka reynslu í sínu fagi og hefur meðal annars starfað hjá Golfklúbbi Húsavíkur, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Golfklúbbi Mos- fellsbæjar og nú síðast Golfklúbbi Brautarholts sem vallarstjóri. Þá hefur hann einnig starfað við golf- velli í Skotlandi með námi og í Noregi. Einar Gestur er uppalinn á Húsavík en hefur búið með eig- inkonu sinni og þremur börnum á Akranesi í nokkur ár. vaks Rekstrargrunnur hjúkrunarheim- ila verður styrktur varanlega um einn milljarð króna með fjárlög- um næsta árs sem samþykkt voru á Alþingi skömmu fyrir áramót. Að auki er í fjárlögunum gert ráð fyr- ir 1,2 milljarða króna framlagi sem jafnframt er varanlegt, til að mæta auknum launakostnaði sem stafar af styttri vinnutíma vaktavinnu- fólks. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra segir það mikilvægt skref að fjárlaganefnd og Alþingi hafi nú ákveðið að renna styrkari stoð- um undir rekstur hjúkrunarheim- ilanna. Vinnuhópur skipaður full- trúum heilbrigðisráðuneytis, fjár- málaráðuneytis, Sambandi sveitar- félaga og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu fjallaði fyrr á þessu ári um aukna fjárþörf hjúkr- unarheimila og hve miklu þyrfti að bæta inn í rekstrargrunninn til að tryggja rekstur. „Þessi hækkun á rekstrargrunninum um einn millj- arð króna er í samræmi við niður- stöðu vinnuhópsins. Það er því óhætt að segja að breið samstaða sé um þessa auknu fjármuni sem tvímælalaust munu skapa hjúkr- unarheimilunum betri stöðu og gera þeim betur kleift að veita íbú- um sínum góða þjónustu,“ segir heilbrigðisráðherra. mm Nú um áramótin hóf Díana Ósk Heiðarsdóttir starf sem markaðs- stjóri hjá Skessuhorni. Tekur hún við starfinu af Hrafnhildi Harðar- dóttur sem gegnt hefur því undan- farin fimm ár. Díana Ósk hef- ur lengst af sínum starfstíma ver- ið verslunarstjóri í lyfsölu og mat- vöruverslunum, m.a. í Búðardal og á Akranesi. Undanfarin tvö ár hef- ur hún verið í námi til löggildingar sem fasteignasali. Skessuhorn býð- ur hana velkomna til starfa, þakk- ar Hrafnhildi góð störf og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi hjá Sparnaði í Garðabæ. mm Fiskmarkaður Íslands hf. hefur ráð- ið Ragnar Smára Guðmundsson sem nýjan framkvæmdastjóra fé- lagsins. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá Guðmundi Smára Guðmundssyni formanni stjórn- ar Fiskmarkaðs Íslands. Ragnar er fæddur og uppalinn í Grundarfirði. Undanfarin tíu ár hefur hann starf- að sem fjármálastjóri hjá flutninga- fyrirtækinu Ragnar og Ásgeir ehf. Ragnar lauk BS.c gráðu i viðskipta- fræði við Háskóla Íslands 2010. Hann er giftur Guðrúnu Hrönn Hjartardóttir og eiga þau þrjú börn. Aron Baldursson sem gegnt hefur stöðunni í rúm fimm ár læt- ur nú af störfum að eigin ósk. mm Svandís Svavarsdóttir, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp sem hef- ur það hlutverk að fjalla um blóð- töku á fylfullum hryssum. Hópn- um er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kring- um hana. Í hópnum eiga sæti þau Iðunn Guðjónsdóttir, sér- fræðingur í atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytinu sem er for- maður hópsins, skipuð án tilnefn- ingar, Sigríður Björnsdóttir, yfir- dýralæknir í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun (tilnefnd af MAST) og Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Háskóla Íslands, til- nefndur af Siðfræðistofnun Há- skóla Íslands. Ráðherra hefur falið hópn- um að funda með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gef- ast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. júní nk. Verkefni starfshópsins er aðskilið rannsókn Matvælastofn- unar, en stofnunin rannsakar nú meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssa. mm Umhverfisstofnun auglýsir til- lögu að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. að Hurðarbaki í Hvalfjarða- sveit, er varðar þéttbært eldi ali- fugla (kjúklinga) en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins. Um er að ræða stækkun á eldisheimild Matfugls ehf. Tillagan gerir ráð fyrir eldisrými fyrir 136.000 fugla og að uppfylltum skilyrðum fyrir frekari stækkun í eld- isrými fyrir 192.000 fugla. Framkvæmdin fór í mat á um- hverfisáhrifum og birti Skipulags- stofnun álit vegna þessa þann 14. ágúst 2019. Í áliti Skipulagsstofn- unar kemur fram að stofnunin telji að neikvæðustu áhrif vegna stækk- aðs kjúklingabús verði vegna ólykt- ar frá eldishúsum og að áhrif á loft- gæði á nærliggjandi bæjum vest- an við Hurðarbak verði talsvert neikvæð. Vegna óvissu um hversu mikil óþægindi nágrannar Hurðar- baks muni upplifa í kjölfar stækk- unarinnar lagði Skipulagsstofnun til að ekki yrði ráðist í fulla stækk- un í 192.000 fuglastæði í einum áfanga, heldur yrði heimiluð stækk- un bundin við smærri áfanga. Að teknu tilliti til álits Skipulagsstofn- unar og hagkvæmra eininga rekstr- araðila leggur Umhverfisstofn- un því til að fyrsti áfangi stækk- unar verði 136.000 fuglastæði. Að loknum tveggja ára reynslutíma af rekstri eldishúsanna og ákveðn- um skilyrðum uppfylltum, er snúa að losun lyktarvaldandi ammon- íaks (NH3), verði heimilt að hefja rekstur í viðbótareldishúsum að fengnu samþykki Umhverfisstofn- unar og heildareldisrými verði þá fyrir allt að 192.000 fugla. Starfsleyfistillagan tekur tillit til þeirra krafna sem gerðar eru í bestu aðgengilegu tækni (BAT-niður- staðna) og starfsreglum um góða búskaparhætti í landbúnaði ásamt krafna skv. stjórn vatnamála m.t.t. starfsvenja, losunar í loft (ryk/lykt) og mögulegrar losunar næringar- efna í nærliggjandi vatnshlot vegna meðhöndlunar húsdýraáburðar. Tillagan ásamt umsókn rekstr- araðila verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 16. desember til og með 15. janúar 2022. vaks Starfshópur um blóðtöku hefur vinnu sína Hjúkrunarheimili fengu aukin framlög Tillaga að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. í Hvalfjarðarsveit Einar Gestur er nýr vallarstjóri hjá Leyni. Ljósm. úr einkasafni. Golfklúbburinn Leynir kominn með vallarstjóra Díana Ósk Heiðarsdóttir til vinstri og Hrafnhildur Harðardóttir. Nýr markaðsstjóri til starfa á Skessuhorni Ragnar Smári tekur við Fiskmarkaði Íslands

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.