Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 23 Kristján Sturluson, sveitarstjóri Dalabyggðar Samvinna samfélagsins í Dalabyggð Aðspurður segir Krist- ján Sturluson, sveitar- stjóri Dalabyggðar, árið í heildina tekið hafa ver- ið gott, ef frá eru talin Covid-19 áhrifin sem eru býsna mikil alls stað- ar. „Þeim tengist samt já- kvætt hvernig starfsfólk sveitarfélagsins hefur tek- ist á við þessar aðstæð- ur og sú samstaða sem samfélagið í Dalabyggð sýndi þegar upp kom hópsmit en á tímabili var um fjórðungur íbúa ann- að hvort í einangrun eða sóttkví. Umhverfis- og loftslagsmál eru alltaf að verða stærri þáttur og á árinu var tekið upp nýtt fyrirkomulag í Dalabyggð með söfnun á sorpi þar sem lögð er áhersla á aukna flokkun. Á árinu var úthlutað lóðum fyrir fimm íbúðir sem verða byggðar á árinu 2022. Þá er afskaplega ánægjulegt að börn- um hefur fjölgað og á árinu var tekinn upp skólaakstur fyrir leikskólabörn. Á næsta ári munu svo daggjöld leikskóla lækka um 50%. Loks vil ég nefna sameiningarmál og vinnu við aðal- skipulag. Bæði þessi atriði móta stefnuna fyrir samfélagið hér í Dölum til framtíðar.“ Miklar framkvæmdir á áætlun Kristján segir margt framundan í Dalabyggð. „Nýsamþykkt fjárhagsáætlun Dalabyggðar gerir ráð fyrir miklum fram- kvæmdum vegna byggingar íþróttamiðstöðvar, gatnagerðar og tengdum framkvæmdum svo sem við vatns- og fráveitu. Umhverfismálin halda áfram að vera fyrirferðamikil. Gert er ráð fyrir að hreinsibúnaði vegna fráveitu fyrir Búðardal verði komið upp og þá er aðeins eftir ný útrás og þá munum við uppfylla gildandi reglur á þessu sviði. Ég vona að tekin verði markviss skref í sameiningu sveitar- félaga. Það blasir við að þyngra verður fyrir fæti í fjárhag sveitarfélagsins á næsta ári. Þar er staða Dalabyggðar sú sama og margra sveitarfélaga að tekjustofnar þurfa að vera styrk- ari. Við erum t.d. að reka heilbrigðisstofnun sem er verkefni ríkisins en ég er bjartsýnn á að nýr heilbrigðisráðherra sé til- búinn að svara jákvætt erindum frá Dalabyggð sem varða þau málefni. Maður hefur auðvitað áhyggjur af rekstrargrund- velli landbúnaðarins sem er undirstaða fyrir hérað eins og Dalabyggð. Framundan er þátttaka í verkefninu „Brothætt- ar byggðir“ sem á örugglega eftir að gagnast vel í að gera gott samfélag betra.“ Verkefnin og tækifærin næg Aðspurður um hvernig árið 2022 leggist í hann segir Krist- ján: „Það liggur ekkert annað fyrir en að horfa bjartsýnn á árið 2022, verkefnin og tækifærin eru næg. Vonandi mun landið fara að rísa eftir farsóttina. Ég ber miklar væntingar til þess að góð umræða verði um sameiningarmálin hér í Dalabyggð í aðdraganda kosninga í vor þannig að hægt verði að halda þeirri vegferð áfram eftir þær. Það er forsenda þess að við get- um verið sjálfbær og haldið áfram að sækja fram.“ Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar Árið var ár upp- byggingar og fram- kvæmda Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, segir árið 2021 hafa verið gott að mörgu leyti, þrátt fyrir áfram- haldandi áskoranir í heims- faraldri. „Fyrst vil ég nefna mannauð Hvalfjarðarsveit- ar sem af festu og ábyrgð stóð vaktina á oft krefjandi tímum síðasta árs og börn- in okkar sem hafa aðlagað sig síbreytilegum aðstæð- um í leik og starfi. Árið var ár uppbyggingar og fram- kvæmda í Hvalfjarðarsveit, íbúum fjölgaði sem aldrei fyrr, nýjar byggingar risu í Krosslandi, Melahverfi og víðsvegar í dreifbýl- inu. Hlúð var að áfram- haldandi góðri þjónustu við íbúa og undirbúningi framtíðar- framkvæmda samhliða viðhaldsframkvæmdum. Atvinnusvæð- ið á Grundartanga gefur góð fyrirheit, m.a. með fyrirhug- aðri stækkun Norðuráls og fjölda nýrra starfa sem með henni skapast, bæði til lengri og skemmri tíma litið, auk undirbún- ings sem unnið er að við stofnun græns hringrásargarðs og klasasamstarfs fyrirtækja á svæðinu en allt mun þetta styrkja samfélagið okkar til framtíðar. Það var afar ánægjulegt að geta í sumar haldið hátíðlega og glæsilega Hvalfjarðardaga og vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim sem að þeirri hátíð stóðu, þátttakendum og gestum, kærlega fyrir þeirra framlag er gerði þessa helgi svo eftirminnilega og skemmti- lega. Verkefnið „Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðar- sveit“ fór einnig vel af stað og voru tvö skilti afhjúpuð á árinu, við Hallgrímskirkju í Saurbæ og við félagsheimilið Miðgarð og munu enn fleiri skilti verða sett upp á næstu mánuðum. Framkvæmdir við nýja götu í Melahverfi, Lyngmel, hófust í októberlok og munu lóðir þar auglýstar á næstu dögum en gleðilegt er hversu mikill áhugi hefur verið og er á lóðum í hverfinu sem er einkar veðursælt og ákaflega vel staðsett, t.d. aðeins í fimm mínútna akstursfjarlægð frá atvinnusvæðinu á Grundartanga.“ Stærsta, einstaka framkvæmdin „Komandi ár verður, líkt og árið á undan, ár uppbyggingar og framkvæmda í Hvalfjarðarsveit,“ segir Linda Björk. „Íbú- um mun halda áfram að fjölga samhliða aukinni uppbyggingu hvort sem er í dreifbýlinu eða þéttbýliskjörnum. Miklar fram- kvæmdir eru fyrirhugaðar árið 2022, bæði nýframkvæmdir sem og viðhaldsframkvæmdir. Stærsta, einstaka framkvæmd- in er bygging nýs íþróttahús við Heiðarborg en auk þess gerð opins svæðis í Melahverfi og áframhaldandi göngu- og reiðhjólastígagerð. Lagning hitaveitu að Heiðarskólasvæð- inu, Heiðarveitu, mun fara fram fyrri part ársins 2022 þar sem tengst verður inn á lögn Veitna ohf. við Beitistaði og lögð hitaveita að þeim bæjum í Leirársveit sem ekki hafa haft að- gengi að hitaveitu. Þessi framkvæmd er langþráð en það var ekki fyrr en nýverið sem Veitur ohf. gátu boðið vatn til þess að af gæti orðið. Framundan eru einnig stórar viðhaldsfram- kvæmdir við Heiðarskóla en þar verður farið í umfangsmikl- ar þakviðgerðir auk lagfæringa innanhúss í ljósi nýkominn- ar ástandsskýrslu. Áskoranir ársins felast í því að fylgja eftir þeim mikla áhuga og meðbyr sem við finnum fyrir, að skipu- leggja þriðja áfanga Melahverfis með fjölbreyttu lóðafram- boði og áframhaldandi gatnagerð. Jafnframt þarf að gæta þess að þjónustustig haldist óbreytt og að innviðir fylgi með fram- tíðaruppbyggingu en í því skyni hefur m.a. verið áætlað fjár- magn til þarfagreiningar leikskólamála.“ Full bjartsýni Linda Björk segist full bjartsýni fyrir komandi ári enda ekki annað hægt þegar horft er til þess sem framundan er í Hval- fjarðarsveit. „Hvort sem litið er til íbúaþróunar, framkvæmda, atvinnuuppbyggingar eða annarra þátta þá er framtíð Hval- fjarðarsveitar björt. Ég ætla að trúa því að við komumst á betri stað hvað varðar heimsfaraldurinn enda vísbendingar um að bóluefni og ný afbrigði veirunnar hjálpi þar til. Að lokum óska ég íbúum Hvalfjarðarsveitar og landsmönnum öllum gæfu, gleði og friðar á árinu, lifið heil.“ Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi Akranes siglt hratt út úr Covid ástandi Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir að árið 2021 sé er búið að vera á mjög margan hátt eftirminnilegt ár. „Það sem hefur staðið upp úr er hversu hratt við á Akranesi erum að sigla út úr þessu Covid ástandi efnahagslega séð. At- vinnuástandið hefur lagast mikið en það hafði valdið mér tölu- verðum áhyggjum árin tvö á undan. Það skiptir miklu máli því þegar atvinnuástand og heilsa fólks er góð þá er svo auðvelt að vinna með allt annað. Við höfum nýtt þennan meðbyr vel á Akranesi og höfum verið í töluverðum uppbyggingarham og erum að bæta í til framtíðar.“ Það er gríðarlega mikill áhugi á uppbyggingu Aðspurður um helstu verkefni og áskoranir sveitarfélagsins segir Sævar: „Ætli það sé ekki að nýta þau tækifæri sem við höfum fyrir framan okkur. Það er gríðarlega mikill áhugi á uppbyggingu á Akranesi og að fjárfesta á Akranesi. Við ætlum okkur að byggja upp töluverða innviði, bæði leikskóla, grunn- skóla, frístundastarf og fyrir aðra til þess að gera gott samfé- lag enn betra.“ Fullur tilhlökkunar að takast á við spennandi verkefni Sævar segir að árið 2022 leggst gríðarlega vel í hann. „Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þessi spennandi verkefni sem eru fyrir framan okkur. Það er gott að vera í smá afslöpp- un yfir hátíðarnar því að það er gott að hlaða batteríin því verk efnin eru næg,“ segir Sævar Freyr Þráinsson að lokum. Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð Þakklæti og stolt efst í huga Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð segir að þegar hún líti til baka yfir árið 2021 sé þakklæti og stolt henni efst í huga. „Þakklæti til starfsfólks Borgarbyggðar sem vinn- ur hörðum höndum að því að gera sveitarfélagið okkar betra og nýtir til þess hugvit sitt, þekkingu og þor - þakklæti til íbúa sveitarfélagsins, sem hafa svo sannarlega lagt lóð sín á voga- skálina við að létta okkur lundina, með frumkvæði að upp- byggingu og viðburðahaldi. Þetta hefur sýnt þá samstöðu sem er til staðar í sveitarfélaginu og vilja margra til að sýna samfé- lagslega ábyrgð.“ Þórdís bendir á að það sé ekki sjálfgefið að reyna að lifa eðli- legu lífi með þeim takmörkunum sem hafa verið til staðar á árinu. „Það hefur krafist mikils og góðs jafnaðargeðs, vera lausnamiðað við útfærslur í starfsemi fyrirtækja og stofnana og gera það sem hægt er að gera til þess að lifa innihaldsríku lífi. Á árinu var haldin fyrsta Gleðiganga Vesturlands í Borg- arnesi, sem gekk vonum framar þar sem allur bærinn tók þátt í því að skreyta og gera daginn sem gleðilegastan. Einstaklings- framtakið setti jafnframt mark sitt á Bjössaróló sem fékk smá upplyftingu í anda þess sem áður var. Reykholtshátíðin og Plan B standa alltaf fyrir sínu og umlykja sveitarfélagið menn- ingu. Brákarhátíðin dreifði öngum sínum í ýmsar áttir og ný- stofnað Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs stóð fyrir mörgum göngum og uppbyggingu gönguleiða. Einnig var ánægjulegt að fylgjast með nýrri atvinnustarfsemi sem leit dagsins ljós um allt sveitarfélag. Lífið blómstrar í Borgarbyggð og vil ég sér- staklega þakka öllum þeim sem stóðu að einhverjum viðburð- um eða uppbyggingu í þágu samfélagsins fyrir sinn þátt í því að gera sveitarfélagið okkar að enn betri stað til að búa í. Ég veit að ég nefni ekki allt í þessu svari en íþróttaviðburðir, tón- leikar og aðrir viðburðir er eitthvað sem ég er einnig virkileg þakklát fyrir og bið ykkur að líta inn á við og taka hrósinu til ykkar.“ Þórdís segir að góður rekstur sveitarfélagsins á árinu 2021 sé eitthvað sem stendur upp úr. „Það að skila jákvæðum rekstri Framhald á næstu síðu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.