Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Síða 15

Skessuhorn - 05.01.2022, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 15 Ragnar Konráðsson hætti nýverið sem skipstjóri á línubátnum Örvari SH eftir að hafa starfað sem skip- stjóri þar um borð í 29 ár. „Ég byrj- aði á sjó 8. febrúar 1973 á Svani SH 111 og er því búinn að vera á sjó í 48 ár. Því fannst mér tími til að fara í land og gera eitthvað annað,“ sagði Ragnar í samtali við Skessu- horn. En ekki fór Ragnar langt frá sjónum því nú hefur hann tekið til starfa sem ,,reddari“ hjá Fiskverk- un KG. „Þar sinni ég öllu í kring- um bátana; svo sem að fella net, mæla teina og hef eftirlit með bát- um. Raunar það sem til fellur,“ seg- ir Ragnar og brosir breitt. Hann kveðst afar sáttur við lífið og stillti sér glaður upp til myndatöku á kaj- anum á þriðja degi nýs árs. af Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2021 voru send samtals 271 tonn af sorpi til urðunar frá heimilum í Borgar- byggð en þetta kemur fram á vef- síðu sveitarfélagsins. Séu þessar töl- ur bornar saman við árið 2020 er um að ræða 100 tonnum minna en á sama tíma í fyrra en þá höfðu 369 tonn verið send til urðunar. Árið 2019 nam úrgangur til urðunar frá heimilum 479 tonnum á fyrstu tíu mánuðum ársins og því er um að ræða verulega minnkun á úrgangi til urðunar á milli ára. Þess má geta að á fyrstu tíu mánuðum þessa árs hafa íbú- ar í Borgarbyggð skilað 107 tonn- um af lífrænum úrgangi til endur- vinnslu. Ekki er hægt að bera saman við heildarmagn á síðasta ári þar sem söfnunin hófst í apríl 2020. Endurvinnsluúrgangur úr grænu tunnunni er um það bil 144 tonn á fyrstu tíu mánuðum ársins sam- anborið við 162 tonn á sama tíma árið 2020. Íbúar Borgarbyggðar eru að flokka í mun meira mæli en áður sem hefur leitt til minnkunar á sorpi til urðunar. Um er að ræða jákvæða þróun og því er mikilvægt fyrir íbúa sveitarfélagsins að halda áfram á þessari braut. Samkvæmt stefnu um hringrásarhagkerfi skal úrgang- ur sem fer í urðun vera að hámarki 10% af heildarúrgangi fyrir lok árs 2034. Í dag er verið að setja 35% í urðun af þeim heimilisúrgangi sem fellur til frá heimilum. vaks Breytingar á barnalögum um skipta búsetu barns, sem tóku gildi í árs- byrjun, gera ráð fyrir að foreldrar geti samið um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Forsend- ur þess að semja um skipta búsetu barns eru þær að foreldrar geti komið sér saman um atriði er snúa að umönnun og uppeldi barns- ins. Hægt verður að gera samn- ing um skipta búsetu barns og óska staðfestingar sýslumanns eða gera dómsátt um skipta búsetu barns hjá dómstólum. Ekki er gert ráð fyrir að sýslumaður eða dómstóll geti úrskurðað eða dæmt skipta bú- setu barns þegar foreldra grein- ir á. „Forsenda fyrir skiptri búsetu barns er jafnframt að heimili barns- ins séu nálægt hvor öðru og að barn sé í einum skóla eða leikskóla og eigi greiðan aðgang að tómstunda- starfi og öðrum frístundum frá báðum heimilum án þess að fjar- lægðir standa í veg fyrir því,“ seg- ir í tilkynningu frá dómsmálaráðu- neytinu. Skipt búseta mun fela í sér að allar ákvarðanir varðandi barn, bæði meiri háttar ákvarðanir og af- gerandi ákvarðanir um daglegt líf barns verða teknar sameiginlega af báðum foreldrum. Lögin tóku gildi um áramót og þeir foreldrar sem vilja skrá skipta búsetu barns geta nú hafið ferlið með því að panta viðtalstíma. Við- tal foreldra er sameiginlegt og fer fram hjá sýslumanni í því umdæmi sem barnið býr. mm „Stofnvísitala þorsks samkvæmt haustmælingu hefur lækkað tölu- vert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haust- mælingarinnar og er nú svipuð því sem hún var árin 2008-2009.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Hafrannsóknarstofnunar þar sem helstu niðurstöður stofn- mælinga botnfiska að haustlagi eru teknar saman. Verkefnið hefur verið fram- kvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári frá 1996. Þá segir að lægri vísitala í ár stafi af að minna fékkst af 35-37 cm þorski. „Stofn- vísitala ýsu hefur farið hækkandi frá 2017 en vísitala ufsa hefur lækkað frá árinu 2018. Vísitala gullkarfa var svipuð og í fyrra en hefur lækk- að töluvert frá hámarkinu 2017. Vísitala djúpkarfa hækkaði frá fyrra ári en hefur sveiflast án sýnilegr- ar langtímaþróunar frá 2000. Vísi- tölur grálúðu og blálöngu breytt- ust lítið miðað við nokkur fyrri ár og eru undir meðaltali tímabilsins. Vísitala gulllax hækkaði og er sú hæsta sem mælst hefur í haustralli. Vísitölur hlýra, tindaskötu, sand- kola, langlúru, þykkvalúru, skráp- flúru og hrognkelsis eru í sögulegu lágmarki haustralls.“ Þá kemur fram að árgangar þorsks frá 2020- 2021 mældust rétt um meðalstærð. „Nýliðun gullkarfa, djúpkarfa og blálöngu hefur verið léleg undan- farin ár. Vísitala grálúðu er enn lág og undir meðaltali tímabilsins þrátt fyrir hækkandi gildi undanfarin tvö ár,“ segir í skýrslunni. arg Tólf voru sæmd riddarakrossi hinn- ar íslensku fálkaorðu á nýársdag við látlausa athöfn á Bessastöð- um þar sem hver og einn mætti, en ekki hópi. Þau Áslaug Geirsdótt- ir, Gerður Kristný Guðjónsdótt- ir, Sigurður Flosason, Bjarni Fel- ixson, Kristín Þorkelsdóttir, Ólaf- ía Jakobsdóttir, Katrín Fjeldsted, Sigurjón Arason og Trausti Vals- son mættu. Þrír orðuhafar áttu ekki heimangengt meðal annars vegna veðurs og verða þau sæmd orðunni síðar við fyrsta tækifæri, seg- ir Guðni Th Jóhannesson forseti. Þau eru Haraldur Ingi Þorleifsson, Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir og Stefán Haukur Jóhannesson. mm/ Samsett mynd: Forsetaembættið Tólf orður á nýársdag Mögulegt að upp- fylltum skilyrðum að skipta búsetu barns Ragnar var að kíkja á strákana um borð í Ólafi Bjarnasyni SH til þess að athuga hvort þeim vantaði eitthvað um borð. Hættur skipstjórn en orðinn reddari í landi Þorski landað á Akranesi. Ljósm. úr safni/mm Stofnmæling botnfiskstegunda við landið Opin urðunarrein í Fíflholtum. Ljósm. úr safni/mm. Minni urðun í Borgarbyggð í ár en gert var ráð fyrir

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.