Skessuhorn - 05.01.2022, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 202216
Þegar kom að árlegu kjöri Vest-
lendings ársins að þessu sinni varð
fljótlega ljóst hvert stefndi. Þrátt
fyrir að tugir einstaklinga hafi ver-
ið tilnefndir var eitt nafn sem oftar
var nefnt en önnur, en það var nafn
Kristínar Þórhallsdóttur dýralæknis
og kraftlyftingakonu í Borgarfirði.
Auk þess að standa fyrir heimili og
praktísera sem dýralæknir í fullu
starfi náði hún feiknargóðum ár-
angri á íþróttasviðinu. Kristín varð
á árinu Evrópumeistari í klassískum
lyftingum í undir 84 kílóa þyngdar-
flokki í byrjun desember á móti þar
sem hún lyfti 560 kílóum saman-
lagt og setti Evrópumet. Yfirburð-
ir hennar voru töluverðir, þær sem
komu næstar henni á mótinu lyftu
tæpum 60 kílóum minna. Þá setti
Kristín einnig Evrópumet í hné-
beygju með að lyfta 220 kílóum.
Hún er fyrsti Íslendingurinn sem
fagnar Evrópumeistaratitli í sam-
anlögðu. Þá vann hún til brons-
verðlauna á HM í klassískum kraft-
lyftingum á móti sem fram fór í
október og átti tvö Evrópumet sem
reyndar voru jafnharðan slegin af
keppinaut hennar á mótinu. Fyr-
ir þennan árangur allan var Kristín
kjörin kraftlyftingakona ársins en
Akureyringurinn Viktor Samúels-
son kraftlyftingakarl ársins. Krist-
ín var jafnframt í kjöri til Íþrótta-
manns ársins hér á landi, elsta kona
sem verið hefur í kjöri frá upphafi.
Hafnaði hún í þriðja sæti í kosningu
íþróttafréttamanna. Fyrir þennan
árangur er hún stolt og ekki síður
að vera fulltrúi landsbyggðarinn-
ar þegar slíkar viðurkenningar eru
annars vegar.
Flutt á heimaslóðir
að nýju
Það var á milli jóla og nýárs sem
blaðamaður Skessuhorns, klyfjaður
árituðum kristalsvasa og blóm-
vendi, heimsótti Kristínu á heim-
ili hennar á Laugalandi í Staf-
holtstungum. Í nýlegu íbúðarhúsi
býr hún ásamt Helga Guðmunds-
syni eiginmanni sínum og tveimur
sonum þeirra; fimm og þriggja ára.
Helgi á auk þess tíu ára son sem
er hjá þeim af og til. Kristín seg-
ir að leiðir hennar og Helga hafi
fyrst legið saman austur á Hellu
þar sem Helgi vann við að byggja
Stracta hótelið. Á Dýralæknastöð-
inni á Hellu hóf Kristín fyrst störf
eftir að hafa lokið námi sínu í Dýra-
læknaskólanum í Kaupmannahöfn.
Helgi er frá Hellu en sjálf er Kristín
fædd og uppalin á Laugalandi þar
sem foreldrar hennar Erla Gunn-
laugsdóttir og Þórhallur Bjarna-
son, ásamt Hjalta bróður henn-
ar, reka myndarlega garðyrkjustöð.
Á Laugaland fluttu þau Helgi og
Kristín árið 2016 og keyptu íbúðar-
húsið sitt á nýliðnu ári. Þar byrjaði
hún strax að praktísera sem dýra-
læknir með starfssvæðið Borgar-
fjörð. Hún var um tíma í hluta-
starfi hjá MAST en er hætt því og
er nú í fullu starfi sem dýralæknir,
læknar einkum stærri skepnur en
er þó með lækningastofu heima þar
sem hún getur tekið á móti gælu-
dýrum, kindum í keisaraskurð og
stundum koma hross til innlagn-
ar meðan þau þurfa að vera undir
eftirliti dýralæknis. Starf dýralækn-
is er breytilegt eftir árstíðum, vinna
sem Kristín segir að henti sér vel.
Vinnan er einkum á hefðbundn-
um dagvinnutíma en fjórðu hverja
viku tekur hún bakvakt dýralækna
á móti öðrum dýralæknum í hér-
aðinu. Hún segir þetta vinnufyrir-
komulag henta sér ágætlega, með
þessu móti geti hún skipulagt æf-
ingar og keppnishald samhliða
starfi sínu og heimilishaldi, stýrt að
mestu tíma sínum.
Byrjaði snemma æfingar
og keppni
En hverfum fyrst að upphafi
íþróttaiðkunar hjá Kristínu. „Ég
byrjaði fyrst að æfa frjálsar íþrótt-
ir hér á Varmalandi þegar ég var
fimm ára gömul. Var þá í Ung-
mennafélagi Stafholtstungna sem
keppti undir merkjum Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar, UMSB.
Íris Grönfeldt var þá aðalþjálfari
sambandsins en síðar bættist Bjarni
Þór Traustason við. Keppnisgrein-
ar mínar voru spretthlaup og lang-
stökk. Mér gekk ágætlega í þessum
greinum, held að ég hafi verið sterk
í íþróttum og með ágæta snerpu
sem barn. Varð ég nokkrum sinn-
um Íslandsmeistari í mínum aldurs-
flokkum og komst í landsliðshóp-
inn í frjálsum. Ég hætti svo að æfa
frjálsar íþróttir upp úr tvítugu,
þegar ég var komin í aldursflokk
með fullorðnum. Þá jókst náttúr-
lega samkeppnin í hópi þeirra öfl-
ugustu og kannski var það óþroska
mínum á þeim tíma um að kenna að
áhuginn dalaði og ég hætti að æfa.“
Kristín Þórhallsdóttir er Vestlendingur ársins 2021
Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum
og önnur á heimslistanum
Kristín Þórhallsdóttir Vestlendingur ársins 2021.
Kristín heima í stofu. Á borðinu eru verðlaunapeningar frá HM og EM í október og desember, en bæði mótin voru haldin í Svíþjóð.
Evrópumeistarinn á verðlaunapalli. Ljósm. Kraftlyftingasamband Íslands.