Skessuhorn


Skessuhorn - 05.01.2022, Qupperneq 20

Skessuhorn - 05.01.2022, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 202220 Grundarfjarðarbær hefur verið að endurnýja gangstéttar bæjarins í sumar og haust en töluvert miklu af gömlum steyptum gangstéttum hefur verið mokað upp og sturtað í malarnámu við bæinn. Nú hefur verið ráðinn verktaki til að mylja gangstéttarnar niður svo hægt sé að nota efnið aftur. Svanur Tóm- asson verktaki úr Snæfellsbæ sér um þetta verk og er þetta töluverð- ur sparnaður svo ekki sé talað um kolefnissporið. Efnið sem þarna er endurunnið er tilvalið í landfyll- ingar og svipaða vinnslu og spar- ast mikill flutningskostnaður og vinnslukostnaður af þessari endur- vinnslu. tfk Undanfarin ár hefur verið hægt að aka hindrunarlaust gamla þjóðveg- inn á Akranes. Um gamlan malar- veg er að ræða sem hlýtur tak- markað viðhald. Meðfram veginum hafa m.a. frístundabændur aðstöðu auk þess sem þar er garðyrkjustöð. Hestamenn á Æðarodda nýta mik- ið reiðgötu sem liggur samsíða veg- inum. Nú hefur verið settur upp vegatálmi á gamla veginn austan við garðyrkjustöðina og aðkeyrsl- una að hundagerðinu. Samkvæmt heimildum Skessuhorns var það gert vegna ógætilegs aksturs um veginn, jafnvel kappaksturs. mm Grundarfjarðarbær bauð í haust hinum fjórum sveitarfélögunum á Snæfellsnesi til óformlegs fund- ar um stöðuna í sameiningarmál- um og framtíðarsýn í þeim efnum fyrir Snæfellsnes. Grundarfjarðar- bær er eina sveitarfélagið á Snæ- fellsnesi sem ekki er í formlegum sameiningaviðræðum eins og sak- ir standa. Snæfellsbær og Eyja- og Miklaholtshreppur stefna að kosn- ingu um sameiningu í febrúar og Stykkishólmsbær og Helgafells- sveit í mars. Auk þess á Stykkis- hólmsbær í óformlegum viðræðum við Dalabyggð. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar segir að bæj- arstjórnin í Grundarfirði hafi boð- ið fulltrúum annarra sveitarfélaga á Snæfellsnesi til samtals og hafi það farið fram 15. desember síð- astliðinn. „Við vildum í fyrsta lagi heyra af þeim sameiningarviðræð- um sem eru farnar af stað hjá ná- grönnum okkar og hins vegar ligg- ur það í loftinu að sameiningar á þessu svæði þurfi að ræða,“ sagði hún. Það hafi verið upplýsandi að heyra af forsendum þeirra við- ræðna sem nú eru í gangi, beint frá þeim fulltrúum sem að þeim standa. Björg sagði að afstaða bæj- arfulltrúa í Grundarfirði sé sú að Snæfellsnes verði að lokum eitt sameinað sveitarfélag. Sama hljóð hafi verið í nágrönnunum. „Það var mjög afgerandi niðurstaða að fólk lítur þannig á að frekari sam- einingar séu í farvatninu. Þessar tvær sameiningar sem nú eru til umræðu verði ekki einhver enda- punktur heldur þurfi stærri sam- einingu í kjölfarið.“ Um tímasetn- ingar hafi þó ekki komið fram al- veg skýrar línur, auk þess sem það sé auðvitað alltaf íbúanna að lok- um að ákveða um slíkt, í atkvæða- greiðslum. Í Stykkishólmi voru í gangi óformlegar sameiningarviðræð- ur við Dalamenn fyrr á árinu, en þær voru lagðar tímabundið til hliðar þegar bæjarstjórn Stykk- ishólmsbæjar bauð hreppsnefnd Helgafellssveitar til viðræðna. Sameinað Snæfellsnes yrði um þrjú þúsund og níu hundruð manna sveitarfélag með fimm þéttbýl- iskjörnum og blandaðri atvinnu- starfsemi. Björg telur að samein- ingarmálin komi til umræðu fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara næsta vor, miðað við hvern- ig mál hafi þróast í sveitarstjórn- argeiranum, sem og í viðræðum á svæðinu. „Við sveitarstjórnarkosn- ingar í vor þá verða þetta spurn- ingar sem allir frambjóðendur til sveitarstjórna á Snæfellsnesi þurfa að svara; hver sé afstaða þeirra til sameiningarkosta á svæðinu og hvaða tímarás fólk vilji sjá í þeim efnum. Það mun örugglega þurfa að gefa mjög skýr svör um þetta fyrir kosningar,“ segir Björg. vaks Á ferð vestur á Snæfellsnes. Ljósm. mm. Sameiningarmál á Snæfellsnesi verða uppi á borðum fyrir kosningar í vor Gamla þjóðveginum lokað Svanur er með sérstaka kvörn á gröfuarminum hjá sér sem mokar upp heilu steypuklumpunum og aðskilur gróft malarefni sem er tilvalið í land- fyllingar. Endurvinna gangstéttar bæjarins Það er frekar óvanalegt að sjá verk- taka í steypuvinnu á aðventunni og hvað þá rétt fyrir jólin. En sú var samt raunin í Grundarfirði 21. des- ember síðastliðinn þegar verktak- arnir Þorkell Gunnar Þorkelsson og Jósef Ólafur Kjartansson voru að nýta tíðarfarið til steypuvinnu. Þá náðu þeir að steypa gangstéttina frá Gamla pósthúsinu að gatna- mótum Sæbóls og Grundargötu en töluverðar framkvæmdir hafa stað- ið yfir þar með nýjum gangstéttum og götulýsingu. Þeir Gunni Múr og Jósef voru nokkuð brattir er ljós- myndara bar að garði og voru lítið að spá í jólaundirbúning. tfk Gatnamót Sæbóls og Grundargötu. Steyptu rétt fyrir jólin Jósef Ólafur Kjartansson passar að steypan renni á réttan stað. Gunni Múr dreifir úr steypunni eftir kúnstarinnar reglum. Séð upp Grundargötuna þar sem hin nýja gangstétt liggur.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.