Skessuhorn - 05.01.2022, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 27
Krossgáta Skessuhorns
Máls-
háttur
Harð-
indi
Óreiða
2 Eins
Æfð
Fram-
koma
Nærir
Kæpu
100
Röð
Ryk-
korn
Hug-
rekki
Afa
Röð Fagur
Áflog Lipurð Leðja Slanga
Haf
Skán
Hraun
Þruma
Dafna
6
Sam-
þykki
Kvakar
Frekja
Dvelja
Ofboð
4
Huguð
Reipi
Skap
Sól-
roði
Stjórn
Sér-
stæð
8
Snúin
Hret
Áhald
Kvað
Böðl-
ast
Ógn
Kostur
Betur
Sonur
Skref
Veggur
Þegar
Öldu-
gjálfur
Kassi
Slark
Dvínar
7
Notkun
Fylking
3
Mann
Alltaf Öslaði
Samhlj. Tjása
Skoru
Kyn
Laust
50
Hljóð
Magn
Tuð
Rák
Flói
1
Hvíldir
Samhlj.
Afl-
vaki
Tengir Leið-
sögnin
Hvílt
Óttast
Ábreiða
Hrösuðu
Náin
Röð
For-
faðir
Teppi
Áhald
Leit
Stöngin
Skjól
Athuga
Hylur
Naum
Tvennu
Reik
Starf
Afar
Hnoðar
Rás
9
Grugg
Púki
Linna Kusk
Tanga
Sko
Menn
Skortur
Ær
Fersk
5
Atlaga
Arinn
Á fæti
10
Tónn
Stakt
Óþjált
Sérhlj.
2
Pilla
Snjó
Landabók
Iða
Mauk
Tilraun
Erfiði
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á.
Krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið:
krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánu-
dögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að
fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausn-
inni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi
lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Garðabraut 2A,
300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á
fimmtudegi í vikunni eftir að hún birtist). Dregið er
úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bók að launum.
Í næstu viku kemur í ljós hver hreppir þátttöku-
verðlaun fyrir jólakrossgátuna.
Gísli Höskuldsson bóndi og hrossa-
ræktandi frá Hofsstöðum og síðar
Uppsölum í Hálsasveit lést 12. des-
ember síðastliðinn og var jarðsettur
18. desember. Gísli varð 95 ára
og einum degi betur, en hann var
fæddur 11. desember árið 1926 að
Saurbæ í Villlingaholtshreppi, einn
fjögurra barna hjónanna Höskuldar
Eyjólfssonar og Gíslínu Magnús-
dóttur. Eftirlifandi eiginkona Gísla
er Kristfríður Björnsdóttir. Þau
giftu sig 1963 og hófu þá búskap á
Hofsstöðum. Saman eignuðust þau
Gísli og Fía fjögur börn; þau Gísla,
Eyjólf, Láru Kristínu og Katrínu en
fyrir átti Fía dótturina Guðrúnu.
Gísli á Hofsstöðum var mörgum
að góðu kunnur, hæglátur og prúð-
ur. Hann rak sauðfjárbú á Hofs-
stöðum en á landsvísu er hann
ásamt Fíu eiginkonu sinni þekkt-
astur fyrir ræktun grárra glæsi-
hrossa; viljugra og ganggóðra sem
eftir var tekið. Gáski frá Hofsstöð-
um er þekktastur þeirra hrossa sem
frá Hofsstöðum eru ættuð, sem og
Gustur frá Hóli og Haukur Gáska-
synir. Heimilisfólkið á Hofsstöðum
hefur alla tíð haft óbilandi áhuga
á hrossum og gott innsæi í þjálfun
og ræktun gráu hrossanna allra og
er þá sama hvort farið er aftur til
tíma Höskuldar bónda, sem sagður
var frægastur reiðmanna á Íslandi á
liðinni öld, eða til sona þeirra Fíu
og Gísla og síðar afkomenda þeirra
sem haldið hafa merkjum ræktun-
ar- og tamningastarfs á lofti.
mm/ Ljósm. Guðlaugur Óskarsson
Nemendur á skólastigum ofan
grunnskóla hér á landi voru 46.328
haustið 2020 og hafði fjölgað
um 4.721 frá hausti 2019 eða um
11,3%. Þetta er næstmesti fjöldi
nemenda á þessum skólastigum sem
mælst hefur samkvæmt tölum Hag-
stofu Íslands en lítið eitt fleiri nem-
endur stunduðu nám haustið 2011.
Nemendum fjölgaði á öllum skóla-
stigum og á öllum landsvæðum að
Austurlandi undanskildu. Nemend-
um með erlendan bakgrunn fjölgaði
sem og nemendum með íslenskan
bakgrunn.
Nemendur á háskólastigi voru
22.067, fjölgaði um 14,7% og hafa
ekki áður verið fleiri. Þar af voru 656
nemendur í doktorsnámi, sömuleið-
is aldrei fleiri. Á framhaldsskólastigi
stunduðu 22.767 nemendur nám
sem er 7,5% fjölgun. Á viðbótarstigi
voru 1.494 nemendur og hafa ekki
verið fleiri nemendur á því stigi.
Skólasókn 16 ára nemenda var
óbreytt á milli ára, eða 95,1%, en
hlutfallslega fleiri nemendur á aldr-
inum 17-29 ára sækja skóla en á síð-
asta ári. Skólasókn 19 ára nemenda
hefur minnkað síðustu ár í kjölfar
styttingar náms til stúdentsprófs en
haustið 2020 jókst hún í 66,5% úr
58,0% árið áður. mm
Fjöldi varaþingmanna tók dag-
ana fyrir og eftir jól sæti á Alþingi
vegna kórónaveirunnar sem þar
stakk sér niður. Þriðjudaginn 28.
desember tóku sæti á Alþingi tvær
varaþingkonur Pírata, þær Gunn-
hildur Fríða Hallgrímsdóttir og
Lenya Rún Taha Karim, en Gunn-
hildur Fríða varð um leið yngsta
manneskjan til að taka sæti á Al-
þingi. Hún er 19 ára og 241 daga
gömul en fyrra metið átti Karl Lilj-
endal Hólmgeirsson sem var 20 ára
og 355 daga gamall þegar hann tók
sæti árið 2018. Gunnhildur Fríða
er þekkt fyrir baráttu sína fyrir að-
gerðum í loftslagsmálum og inn-
leiðingu nýrrar stjórnarskrár.
Lenya Rún Taha Karim komst í
fréttirnar fyrr í haust þegar niður-
stöður alþingiskosninga bentu til
þess að hún væri yngsti kjörni al-
þingismaður sögunnar. Eftir endur-
talningu atkvæða í Norðvesturkjör-
dæmi datt hún af þingi og varð þess
í stað 1. varaþingmaður Pírata í
Reykjavíkurkjördæmi norður. Hún
tekur nú sæti á Alþingi í fyrsta
skipti en baráttumál hennar eru
afglæpavæðing vímuefna, réttindi
innflytjenda og flóttafólks og að-
gengi jaðarsettra hópa að mennta-
kerfinu og heilbrigðiskerfinu.
mm
Mikil fjölgun nemenda á milli ára
Svipmynd frá útskrift stúdenta frá Fjölbrautaskóla Vesturlands skömmu fyrir jól.
F.v. Gunnhildur Fríða og Lenya Rún. Ljósm. aðsend.
Yngsti þingmaður
Íslandssögunnar
Gísli Höskuldsson
látinn