Skessuhorn - 05.01.2022, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2022 31
Á gamlársdag var tilkynnt í Sögu-
miðstöðinni í Grundarfirði hver
hefði verið valinn Íþróttamað-
ur Grundarfjarðarðar árið 2021.
Þrír íþróttamenn voru tilnefnd-
ir: Breki Þór Hermannsson fyr-
ir knattspyrnu, Dagný Rut Kjart-
ansdóttir fyrir riffilskotfimi/leir-
dúfuskotfimi og Harpa Dögg
Bergmann Heiðarsdóttir fyr-
ir hestamennsku. Það voru þær
Ingibjörg Eyrún Bergvinsdótt-
ir og Ragnheiður Dröfn Beni-
diktsdóttir frá Íþrótta- og æsku-
lýðsnefnd Grundarfjarðar sem
stjórnuðu athöfninni af röggsemi.
Þær tilkynntu að lokum um úr-
slit kjörsins og var það hestakonan
Harpa Dögg Bergmann Heiðars-
dóttir sem var kjörin Íþróttamað-
ur Grundarfjarðar fyrir árið 2021.
Í umsögn um Hörpu vegna
kjörsins kom fram að hún hafi ver-
ið í fremstu röð undanfarin ár í sín-
um aldursflokki en hún er fimmt-
án ára. Harpa keppir í Meistara-
deild Líflands og æskunnar sem
er keppni í efsta standard í þess-
um aldurshópi og þar sigraði hún
í fjórgangskeppninni með glæsi-
brag. Á Fjórðungsmóti Vestur-
lands, sem var stærsti viðburður i
gæðingakeppni sumarið 2021, var
hún í úrslitum í unglingaflokki og
var auk þess í 1. - 2. sæti í tölti. Á
Reykjavíkurmeistaramóti, sem er
WR mót og eitt stærsta mót ársins,
var Harpa í úrslitum í öllum þeim
greinum sem hún tók þátt í og er
því svo sannarlega búin að stimpla
sig inn í röð sterkustu knapa í sín-
um aldursflokki. Síðastliðin þrjú
tímabil hefur Harpa Dögg verið
valin til að taka þátt í hæfileikamót-
un Landssambands hestamanna en
þar eru sterkustu knapar á aldrin-
um 14-17 ára saman í afrekshóp
sem jafngildir landsliðshópi fyr-
ir þennan aldurshóp. Harpa Dögg
þjálfar sín hross sjálf og leggur
mikinn tíma, metnað og ástríðu í
vinnuna.
vaks Hinu árlega kjöri Íþróttamanns
Akraness lauk 3. janúar, en hægt
var að kjósa rafrænt auk þess sem
stjórn ÍA og fleiri kusu samkvæmt
reglum Íþróttabandalags Akraness.
Úrslit í kjörinu verða kunngerð á
morgun, fimmtudaginn 6. janúar
2022 í beinu streymi frá Garðavöll-
um í gegnum YouTube rás ÍATV.
Í stafrófsröð eru eftirtaldir til-
nefndir:
Kylfingur ársins hjá Golfklúbbn-
um Leyni: Björn Viktor Viktors-
son.
Knattspyrnukona ársins hjá ÍA:
Dana Joy Scheriff.
Badmintonmaður/kona ársins:
Drífa Harðardóttir.
Sundmaður ársins: Enrique Snær
Llorens Sigurðsson.
Knattspyrnumaður ársins hjá ÍA:
Ísak Snær Þorvaldsson.
Hestamaður ársins: Jakob Svavar
Sigurðsson.
Kraftlyftingarmaður/kona ársins:
Kristín Þórhallsdóttir.
Karatemaður ársins: Kristrún Bára
Guðjónsdóttir.
Knattspyrnumaður ársins hjá Kára:
Marinó Hilmar Ásgeirsson.
Fimleikakona ársins: Salka
Brynjarsdóttir.
Skotmaður ársins: Stefán Gísli
Örlygsson.
Körfuknattleiksmaður ársins:
Þórður Freyr Jónsson.
Klifrari ársins: Þórkatla Þyrí
Sturludóttir.
mm
Einn leikmaður er í einangrun
og tveir í sóttkví af 20 manna
hópi A landsliðs karla í hand-
knattleik. Leikmennirnir eiga að
losna úr einangrun og sóttkví í
þessari viku. Hinir leikmennirn-
ir 17 fóru í PCR próf á sunnudag
og fengu allir neikvæða niður-
stöðu. Hópurinn er því kominn í
búbblu á Grand hóteli í Reykja-
vík núna þar til hópurinn held-
ur til Búdapest í Ungverjalandi
þriðjudaginn 11. janúar á EM.
Mótið hefst svo tveimur dögum
seinna og föstudaginn 14. janú-
ar leikur Ísland sinn fyrsta leik
þegar liðið mætir Portúgal. Ís-
land er í riðli með Portúgal,
Hollandi og Ungverjalandi. arg
KSÍ hefur birt drög að niður-
röðun leikja í efstu deildum karla
og kvenna, Lengjudeildum karla
og kvenna og 2. deild karla fyrir
tímabilið 2022. Niðurröðun leikja
í efstu deild karla tekur mið af því
að samþykkt verði á ársþingi KSÍ
að leika eftir breyttu fyrirkomulagi.
Í nýju fyrirkomulagi verður fjölgun
leikja en áfram tólf lið í deildinni.
Þegar 22 umferðum er lokið verður
deildin tvískipt en gert er ráð fyr-
ir að tvískipta deildin hefjist fyrstu
helgina í október. Keppni efstu
deildar karla, sem hefur ekki enn
fengið nafn, hefst 18. apríl (annan í
páskum) og lýkur svo laugardaginn
17. september. Tvískipta deildin
hefst sunnudaginn 2. október og
lýkur laugardaginn 29. október.
Skagamenn, sem leika í efstu
deild karla, mæta Stjörnunni í
fyrsta leik á útivelli þriðjudaginn
19. apríl og fyrsti heimaleikurinn
er gegn Íslandsmeisturum Víkings
sunnudaginn 24. apríl. Í næstsíð-
ustu umferðinni mætir ÍA liði FH
í Kaplakrika og síðasti leikur liðsins
er heimaleikur gegn Leikni Reykja-
vík laugardaginn 17. september.
Víkingur Ólafsvík hefur leik í
2. deild karla laugardaginn 7. maí
á heimavelli gegn Völsungi frá
Húsavík og síðasti leikur Víkings
í deildinni verður í Ólafsvík gegn
Haukum úr Hafnarfirði laugar-
daginn 17. september.
Þá hafa leikdagar í Mjólkurbikar
karla og kvenna fyrir árið 2022 ver-
ið ákveðnir. Úrslitaleikur Mjólkur-
bikars kvenna verður laugardaginn
27. ágúst en Breiðablik er ríkj-
andi bikakarmeistari. Aðalkeppni
Mjólkurbikarsins (32-liða úrslit)
hefst í lok maí en sjálf keppnin fer
af stað í apríl. Úrslitaleikur Mjólk-
urbikars karla verður hins vegar
laugardaginn 1. október en Víking-
ur Reykjavík er ríkjandi Íslands- og
bikarmeistari en liðið vann ÍA í úr-
slitaleik Mjólkurbikarsins í október
á þessu ári. vaks
Skallagrímur tók á móti Hetti
frá Egilsstöðum í 1. deild karla í
körfuknattleik á þriðja degi jóla
og fór leikurinn fram í Fjósinu í
Borgarnesi. Skallagrímur var fyrir
leikinn með tíu stig í sjöunda sæti
deildarinnar en Hattarmenn í því
þriðja með 18 stig. Gestirnir byrj-
uðu betur í leiknum og komust í
0:5 strax á fyrstu mínútu og voru
komnir í 11:19 eftir rúmlega
fimm mínútna leik. Skallagríms-
menn náðu að krafsa aðeins frá
sér undir lok leikhlutans og stað-
an 23:27 fyrir Hött þegar leikmenn
gerðu sig tilbúna fyrir annan leik-
hluta. Skallagrímur náði að hanga
í gestunum fyrri hluta annars leik-
hluta en síðan skildu leiðir og stað-
an í hálfleik 36:53.
Í þriðja leikhluta var jafnt á með
liðunum og munurinn því svipaður
þegar liðin fengu sér vatnspásu fyr-
ir síðasta leikhlutann, staðan 62:83
fyrir Hattarmenn. Þeir juku síð-
an forskotið enn meir, fátt var um
svör hjá heimamönnum og örugg-
ur sigur gestanna staðreynd, loka-
tölur 79:109.
Stigahæstir hjá Skallagrími voru
þeir Davíð Guðmundsson með
21 stig, Bryan Battle með 13 stig
og Simun Kovac með 11 stig. Hjá
Hetti var Arturo Rodriguez með 28
stig, Adam Eiður Ásgeirsson með
22 stig og Timothy Guers með 18
stig og 12 stoðsendingar.
Næsti leikur Skallagríms er 10.
janúar gegn Hrunamönnum á
Flúðum og hefst leikurinn klukk-
an 19.15.
vaks
Breki Þór, Harpa Dögg og Dagný Rut. Ljósm. Björg Ágústsdóttir.
Harpa Dögg er
Íþróttamaður Grundarfjarðar
Skagamenn mæta Stjörnunni
í fyrstu umferð árið 2022
Landsliðið komið í búbblu
Kjöri Íþróttamanns
Akraness lýst á
þrettándanum
Svipmynd frá kjöri Íþróttamanns Akraness 2020. F.v. Guðrún Juliane fimleika-
kona, Kristín kraftlyftingakona og Fjóla Lind Guðnadóttir formaður Dreyra sem
tók við verðlaunum fyrir hönd Jakobs Svavars hestamanns. Ljósm. mm.
Davíð Guðmundsson var stigahæstur gegn Hetti. Ljósm. glh
Skallagrímur tapaði
gegn Hetti