Skessuhorn - 19.01.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 20222
Haldi sig til hlés
VESTURLAND: Almanna-
varnanefnd Vesturlands hefur
áréttað þau tilmæli sóttvarnayf-
irvalda að fólk hugi sérstaklega
að því að mæta ekki til vinnu
eða í skóla ef það finnur fyr-
ir einkennum eða það gruni að
það sé með smit. Þetta á jafnt
við um þá sem eru bólusettir og
þá sem eru það ekki. Ef einstak-
lingar finna fyrir einkennum er
mikilvægt að halda sig heima og
skrá sig í kóvid PCR-próf í sam-
ræmi við leiðbeiningar á covid.
is. Þetta á jafnt við börn sem og
fullorðna. -vaks
Heilsu- og
menningarstyrkir
BORGARBYGGÐ: Borg-
arbyggð styrkir frístunda- og
menningariðkun öryrkja og
eldri borgara með framlagi í
formi árskorta í íþróttamann-
virki Borgarbyggðar og í Safna-
húsið. Þetta kemur fram á vef-
síðu Borgarbyggðar. Markmið
framlagsins er að hvetja ör-
yrkja og eldri borgara til að taka
þátt í heilsueflandi athöfnum
og í menningarlífi í sveitarfé-
laginu. Hægt er að nýta heilsu-
og menningarstyrkinn í árskort
í sund og líkamsrækt í íþrótta-
miðstöðvum Borgarbyggðar og
aðgang að sýningum í Safnahúsi
Borgarfjarðar. Árskort í sund
og líkamsrækt eru aðgengileg
í íþróttamiðstöðvum Borgar-
byggðar. Aðgangur að Safna-
húsi er ókeypis fyrir öryrkja og
eldri borgara gegn framvísun
skilríkja. -vaks
Erlendum ríkis-
borgurum fjölgar
LANDIÐ: Alls voru 54.905
erlendir ríkisborgarar skráðir
með búsetu hér á landi 9. janú-
ar síðastliðinn og fjölgaði þeim
um 3.527 frá 1. desember 2020,
eða um 6,9%. Erlendir ríkis-
borgarar eru því við upphaf
ársins 14,6% landsmanna. Á
sama tímabili fjölgaði íslensk-
um ríkisborgurum sem eru
með skráða búsetu hér á landi
um 4.102 einstaklinga, eða
um 1,3%. Pólskum ríkisborg-
urum fjölgaði á ofangreindu
tímabili um 227 einstaklinga og
voru 21.096 talsins um síðustu
mánaðamót, eða 5,6% lands-
manna. -mm
Efna til hugmyndasamkeppni
um Breiðina á Akranesi
Breið þróunarfélag hefur efnt
til hugmyndasamkeppni fyrir
hönd Brims hf. og Akraneskaup-
staðar um skipulagningu á Breið
á Akranesi. Um er að ræða
opna hugmyndasamkeppni fyr-
ir um 16 hektara svæði með ýmsa
möguleika. „Þetta er eitt falleg-
asta svæði á Akranesi þar sem
hafa orðið breyttar forsendur á at-
vinnuháttum. Þar er ekki lengur
fiskvinnsla eins og áður og standa
því þarna meira og minna vannýtt
svæði í dag. Þetta er einstakt svæði
og mikil náttúruperla og við vilj-
um fá sem flestar hugmyndir um
hvernig við getum nýtt svæðið og
gert það stórbrotið á landsvísu,“
segir Valdís Fjölnisdóttir fram-
kvæmdastjóri hjá Breið í samtali
við Skessuhorn.
Þrjár bestu tillögurnar fá pen-
ingaverðlaun en fyrsta sætið fær 15
milljónir, annað sæti fimm millj-
ónir og það þriðja þrjár milljón-
ir. „Ég hef ekki heyrt um hærri
peningaverðlaun fyrir svona hug-
myndasamkeppni á Íslandi. Það er
því til mikils að vinna fyrir góða
hugmynd,“ segir Valdís og hvetur
um leið alla arkitekta og aðra fag-
aðila að taka þátt í samkeppninni.
Aðspurð segir hún að þátttakend-
um séu ekki settar neinar skorð-
ur er varðar hugmyndirnar en að
áhersla verði lögð á nýsköpun og
sjálfbærni, með hringrásarhag-
kerfið að leiðarljósi. „Þetta er al-
veg opin hugmyndasamkeppni en
auðvitað viljum við setja fókus á
gríðarlega fallega strandlengju sem
býður upp á marga valmöguleika,
þessa hvítu strönd, fallegt fuglalíf
og stórbrotið útsýni,“ segir Valdís.
Hægt er að senda inn hugmynd-
ir til 29. apríl nk. Þá mun dóm-
nefnd fara yfir allar hugmynd-
ir og niðurstaða á að liggja fyrir í
júní. En í dómnefndinni eru m.a.
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
Akraneskaupstaðar og Guðmund-
ur Kristjánsson, forstjóri Brims,
sem er formaður dómnefndar.
„Næsta skref þar á eftir verður að
semja við þá aðila sem komu með
bestu hugmyndirnar en við áskilj-
um okkur auk þess rétt á að kaupa
áhugaverðar tillögur þó þær séu
kannski ekki í vinningstillögunni,“
segir Valdís. „Við erum gríðarlega
spennt að sjá þetta svæði taka á sig
mynd en þetta er mjög gott tæki-
færi fyrir arkitekta og aðra fagað-
ila. Ljóst er að ef vel tekst til mun
uppbygging á Breiðinni styðja við
og efla byggðina á Neðri-Skag-
anum á Akranesi og framtíðar-
verðmæti kaupstaðarins af upp-
byggingu verða mikil. Þá mun fjöl-
breytt starfsemi á Breiðinni styrkja
bæjarfélagið til lengri tíma sem
við, hjá Breið þróunarfélagi, höf-
um mikinn metnað fyrir að skili
ávinningi fyrir samfélagið,“ bætir
hún við. arg/ Ljósm. aðsendar
Hér er svæðið sem um ræðir afmarkað.
Horft yfir Akranes og Breiðin neðst til hægri á mynd.
Bóndadagurinn er á föstudaginn og
þá gleðjast þeir sem vilja gæða sér á
þorramatnum. Sumir vilja eingöngu
súrmetið í stórum stíl á meðan þess-
ir vandlátu vilja helst bara harð-
fisk með smjöri. Þó er um að gera
að láta vaða og smakka sem mest
þó að þeir sem eldri eru viti nú vafa-
laust hvað þeir vilja helst. Þá er alltaf
gaman að leyfa börnunum að fikra
sig áfram í að smakka enda er þorra-
maturinn afbragðs matur að flestu
leyti en það fer auðvitað eftir smekk
og skoðun hvers og eins. Aðal mál-
ið er að þetta er skemmtileg hefð og
býður upp á það að fólk hittist og
geri sér hóflega glaðan dag í amstri
hversdagsins á tímum kórónufar-
aldursins.
Á fimmtudag verður sunnan- og
suðvestanátt, 8-15 m/s. Rigning á
köflum sunnan- og vestanlands en
annars úrkomulítið. Hlýnandi veður,
hiti 3 til 8 stig undir kvöld. Á föstu-
dag má búast við suðvestan 10-18
m/s. Talsverð rigning en áfram þurrt
að kalla á Norðausturlandi. Hiti 3 til
8 stig. Dregur úr úrkomu eftir há-
degi og kólnar með éljum seinni-
partinn. Á laugardag er gert ráð fyr-
ir allhvassri suðvestanátt og slyddu
eða snjókomu en rigning suðaust-
anlands og úrkomulítið á Norðaust-
urlandi. Hiti 0 til 5 stig en kólnar
seinnipartinn. Á sunnudag eru lík-
ur á suðvestlægri átt með éljum á
vesturhelmingi landsins en annars
bjart með köflum. Talsvert frost víð-
ast hvar.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvert er uppáhalds bakkels-
ið þitt í bakaríinu?“ 30% sögðu „Vín-
arbrauð,“ 23% sögðu „Annað,“ 20%
sögðu „Snúður,“ 10% sögðu „Klein-
ur,“ 9% sögðu „Kökur og tertur“ og
7% sögðu „Kleinuhringir.“
Í næstu viku er spurt:
Heldur þú upp á bóndadaginn?
Lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi komst á mánudag í 8-liða
úrslit Gettu betur sem hefjast 4. febr-
úar. Þetta er í fimmta sinn í sögu
Gettu betur sem FVA kemst í 8-liða
úrslit en besti árangur skólans náð-
ist árið 2015 þegar liðið komst í und-
anúrslit gegn Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ og tapaði naumlega 22:19.
Björn Viktor, Kristrún Bára og Sigrún
Freyja eru Vestlendingar vikunnar að
þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Horft yfir Breiðina.
Hundruð fyrirtækja af öllum
stærðargráðum hafa útvistað
launavinnslu til okkar.
Bókaðu fund á www.bokad.is.
Láttu okkur hjá KPMG Bókað
sjá um launavinnslu fyrirtækisins
Þú notar t ímann
í reksturinn
Við reiknum
launin
Við sjáum um
skilagreinar
100