Skessuhorn - 19.01.2022, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202216
vfs.is
VERKFÆRASALAN • S Í Ð U M Ú L A 9 , R E Y K J AV Í K • D A L S H R A U N I 1 3 , H A F N A R F I R Ð I • T RY G G VA B R A U T 2 4 , A K U R E Y R I • S : 5 6 0 8 8 8 8 • v f s . i s
Íslenska landslið karla í hand-
bolta byrjaði afskaplega vel á
Evrópumótinu sem nú er haldið í
Ungverjalandi og Slóvakíu. Liðið
mætti Portúgal í fyrsta leik og vann
sannfærandi fjögurra marka sigur,
28:24. Næst mætti liðið Hollandi
á sunnudaginn í hörkuleik og náðu
strákarnir á tímabili fimm marka
forystu áður en við tók erfiður kafli
þar sem Hollendingar söxuðu hratt
á forystuna. Íslensku strákarnir
náðu sér á strik á lokakaflanum og
lönduðu að lokum eins marks sigri,
29:28, eftir æsispennandi lokamín-
útur. Er íslenska liðið því með fullt
hús stiga þegar þetta er skrifað en
síðasti leikur liðsins í riðlinum var
ekki búinn þegar Skessuhorn fór í
prentun í gær, en það var afar þýð-
ingarmikill leikur gegn Ungverja-
landi.
Fari svo að Ísland komist áfram
í milliriðil er ljóst að liðið á verð-
ugt verkefni fyrir höndum en þar
mæta strákarnir Danmörku og
Svartfjallalandi úr A-riðli og Frakk-
landi og Króatíu úr C-riðli. Keppni
í milliriðli hefst á morgun, fimmtu-
daginn 20. janúar. arg/ Ljósm. HSÍ
Íslensku strákarnir mættu til leiks á EM á föstudaginn.
Íslensku strákarnir byrjuðu
EM af krafti
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti stórleik í horninu bæði gegn Portúgal og Hollandi.
Úr hörkuspennandi leik Íslands og Hollands á sunnudaginn.
Sigvaldi Björn Guðjónsson var maður leiksins bæði gegn Portúgal og Hollandi.