Skessuhorn - 19.01.2022, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202224
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Ég er og hef alltaf verið mikill Snæ-
fellingur og hef aðeins lagt við
hlustir í sambandi við sameiningu
sveitarfélaga hér á Nesinu. Það
brennur á mér að allt sem snýr að
sameiningu verði vel ígrundað og
vandað til verka. Til að það heppn-
ist tel ég alltaf að samtal og samráð
við íbúa sé mjög mikilvægt, dæmin
hafa sýnt það.
Það sem er framundan hjá okk-
ur 19. febrúar er kosning um hvort
okkur hugnist sameining við ná-
granna okkar í Snæfellsbæ. Skoðun
mín hefur lengi verið að Snæfells-
nesið eigi að verða eitt sameinað
sveitarfélag. Ég held að við eigum
ekki að bíða með það lengur. Nú
er tími smásameininga liðinn og
kominn tími til að við þorum að
stíga stóra skrefið. Ef við hins vegar
þurfum að taka sameininguna í
minni skrefum held ég að farsælast
sé að sameinast þangað sem þjón-
ustan er sótt.
Aðeins um skólamálin sem hafa
eðlilega verið mikið rædd. Hvað er
það sem segir að ef Snæfellsnesið
sameinast í eitt stórt flott sveitarfé-
lag að það verði ekki hægt að halda
úti einum skóla á sunnanverðu nes-
inu? Ég þekki ágætlega til í Borgar-
byggð og veit að þar hafa ungmenni
val. Ungmenni fara í Borgarnes í
skóla ofan úr héraði eða vestan af
Mýrum á meðan börnum sem búa
í Borgarnesi hentar betur smærra
skólasamfélag og hafa því val um að
fara í minni skóla. Þetta þarf allt að
ræða ef til kemur en mér finnst ekki
hægt að stilla hlutum þannig upp
núna að það sé annað hvort eða.
Í dag eru ansi mörg börn keyrð
á einkabílum í Stykkishólm í skóla
og tómstundir. Fólk hefur þurft að
flytja lögheimili sín þangað til að
standa straum af kostnaði við skóla-
gjöldin. Ég get ekki séð að samein-
ing í Snæfellsbæ leysi vanda þessa
hóps. Metnaðarfullur framhalds-
skóli er í Grundarfirði og það er
gott sjúkrahús í Stykkishólmi þar
sem íbúar sækja læknisþjónustu
auk þess sem bændur geta fengið
þjónustu tengda landbúnaði. Póst-
þjónustan kemur frá Stykkishólmi.
Hvaða þjónustu sækja Eyja- og
Miklhreppingar í Snæfellsbæ?
Ég sé fyrir mér eitt sameinað
sveitarfélag – Snæfellsnes, ef vand-
að er til verka náum við heilmik-
illi hagræðingu í rekstri – eitt stórt
myndarlegt sveitarfélag með sam-
einaðri – ansi víðri sveit, nokkr-
ir þéttbýliskjarnar, hver með sína
sérstöðu, eitt atvinnusvæði og sam-
einað íþrótta- og æskulýðsstarf
svo eitthvað sé nefnt. Ég sé til að
mynda fyrir mér aukna samvinnu
okkar sem búum hér á sunnanverðu
Nesinu, hún verður ekki minni þó
farið verði í stærri sameiningu.
Í sveitarfélagi eins og Eyja- og
Miklaholtshreppi tel ég að samein-
ing og stækkun sé mjög nauðsyn-
leg, aðhald í stjórnsýslu og mikl-
ir möguleikar á að gera góða sveit
enn betri.
Góðar stundir og í öllum guðs
bænum, fylgið hjartanu og kjósið.
Veronika G. Sigurvinsdóttir
Höf. er íbúi í Eyja- og
Miklaholtshreppi.
Hið árlega Þorrablót Skaga-
manna fer fram á laugardaginn
og eins og í fyrra verður það
í streymi vegna samkomutak-
markana. Blótið verður á svipuð-
um nótum eins og í fyrra. Sjötíu
og níu menningarfélag, árgang-
ur 1979 sér um blótið eins og í
fyrra og verður blótinu streymt
í beinni útsendingu frá Bárunni
Brugghúsi eins og í fyrra! Skessu-
horn heyrði hljóðið í Guðrúnu
Lind Gísladóttur, sem er í undir-
búningsnefnd árgangsins og seg-
ir hún að undirbúningurinn hafi
gengið mjög vel en kóvidið væri
aðeins að stríða þeim. „Við höf-
um aðeins þurft að endurskipu-
leggja, bæði svæðið sem við erum
að vinna með á Bárunni og svo
að skipta út skemmtikröftum sem
hafa verið að næla sér í veiruna á
síðustu dögum. Sem betur fer eru
ekki margir uppteknir þessa helgi
og því gengur það ágætlega að fá
nýja í staðinn.“
Guðrún segir að miðasalan
hefjist í dag, miðvikudag, og þau
geri ráð fyrir því að það verði
fleiri en í fyrra því nú geti einung-
is tíu verið saman í rými en voru
tuttugu í fyrra. „Vonandi verður
því meiri sala hjá okkur á streym-
inu, við gerum ráð fyrir helm-
ingi minni partíum og fólk horfi á
þetta með fjölskyldunni en að það
verði helmingi meira fjör í stað-
inn.“
Verða vonandi á Vestur-
götu á næsta ári
Guðrún Lind segir að þau leggi
upp með svipaða dagskrá eins og í
fyrra og segir að prestarnir mæti,
Skagaskopið verður í boði 1981 ár-
gangsins, happdrættið verður á sín-
um stað, Iddi Biddi með sketsa,
gamlir tónlistarmenn af Skagan-
um kíki við og vinsælir tónlistar-
menn stígi á svið. „Í fyrra vorum
við svolítið að finna upp hjólið og
það gekk bara mjög vel þannig að
við höfum í sjálfu sér þannig mót-
að formið á þessu hvernig þetta á að
vera í ár. Að því leytinu til er þægi-
legra fyrir okkur að gera þetta núna
eins og í fyrra þrátt fyrir að það
hefði verið mikið skemmtilegra að
vera á Vesturgötunni en það verður
vonandi á næsta ári.“
Streymið í fyrra vinsælt
Guðrún segir að hún hafi verið að
líta á streymið frá því fyrra og séð
að það er búið að horfa á það alls
2300 sinnum og ljóst að einhverj-
um hafi þótt þetta gaman en alls
seldust tæplega 500 streymi í fyrra.
„Aðalbreytingin í ár er sú að við
komum ekki nálægt matarmálun-
um, það kemur beint frá veitinga-
stöðunum og þeir ætla að auglýsa á
facebook síðunni hjá okkur. Leiðin
til að fá happdrættismiða í ár er því
sú að kaupa miða á blótið í streymi
en í fyrra fylgdi happdrættismiði
með matarbökkunum en það verð-
ur ekki í ár.“
Að lokum segir Guðrún að þetta
verði vafalaust góð skemmtun og
þau séu spennt fyrir kvöldinu
enda ekki mikið annað í boði
þetta kvöld. Þau vona bara að fólk
taki vel í þetta, setjist fyrir framan
viðtækin og eigi gott kvöld saman.
vaks
Pennagrein
Meira um
sameiningarmál
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
kynnti valið á Skagamönnum ársins
2020. Hulda Gests og Sigmar Már tóku
við verðlaunum fyrir hönd vinnufélaga
sinna.
Þorrablót Skagamanna í streymi á laugardaginn