Skessuhorn - 19.01.2022, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 202232
Keppni í 16-liða úrslitum Gettu
betur, spurningakeppni fram-
haldsskólanna, hófst á mánudags-
kvöldið og voru þrjár viðureign-
ir á dagskrá. Kvöldið hófst á viður-
eign Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi og Fjölbrautaskóla Norð-
urlands vestra. Þar hafði FVA bet-
ur með 28 stigum gegn 11 og FVA
er þar með komið í 8-liða úrslitin.
Menntaskólinn í Reykjavík komst
einnig áfram með 33-15 sigri á
Framhaldsskólanum á Húsavík og í
síðustu viðureign kvöldsins var það
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ sem
hafði betur gegn Tækniskólanum,
úrslitin 39-25.
FVA, MR og FG eru þar með
komin í átta liða úrslit sem fara
fram í sjónvarpssal. Fimm skólar
bætast svo við í dag, miðvikudag,
þegar 16-liða úrslitunum lýkur.
Í fyrstu umferð keppninn-
ar keppti lið Menntaskóla Borg-
arfjarðar við Menntaskólann á
Tröllaskaga. Þeirri viðureign
lauk með sigri Menntaskólans á
Tröllaskaga 11-7.
vaks
Stjórn Lista- og menningarsjóðs
Stykkishólms kom saman til fund-
ar föstudaginn 7. janúar síðastliðinn
í ráðhúsi bæjarins. Auglýst var eftir
umsóknum í sjóðinn snemma í des-
ember og var umsóknarfrestur til
4. janúar. Alls bárust sjö umsóknir í
sjóðinn en þetta kemur fram á vef-
síðu Stykkishólmsbæjar.
Stjórnin fór yfir umsóknir og var
niðurstaða stjórnar um úthlutun
eftir farandi: Norska húsið o.fl. fékk
300 þúsund króna styrk vegna Mið-
stöðvar og mangarar - Útiskiltasýn-
ing, Anna Sigríður Melsteð fékk 450
þúsund krónur vegna Saga og menn-
ing, 3. áfangi - rafræn miðlun, Skóg-
ræktarfélag Stykkishólms fékk 400
þúsund krónur vegna Saga Skóg-
ræktarfélags Stykkishólms og Sól-
veig Ásgeirsdóttir fékk 50 þúsund
króna styrk vegna bókaútgáfu. vaks
Líklega hefur það verið á gamlárs-
kvöld sem styggð komst að þrem-
ur hrossum af 23 í stóði í umsjón
Einars Ólafssonar hrossabónda í
Söðulsholti í Eyja- og Miklaholts-
hreppi. „Ég taldi í hópnum í lok árs
og þá voru hrossin öll. Fljótlega á
nýju ári kom í ljós að þrjú vantaði
í hópinn og hófum við strax eftir-
grennslan,“ segir Einar í samtali
við Skessuhorn. „Í fyrstu fundum
við þau ekki þrátt fyrir talsverða
leit. Leituðum m.a. inn Núpár-
dalinn og upp í Núpaskarð en
fundum ekki. Þá var farið að leita
með dróna og sjónaukum og sást til
hrossanna þar sem þau voru kom-
in langleiðina upp á topp á fjalls-
strýtuna Skyrtunnu sem er ríflega
900 metra hátt fjall hér inni á miðj-
um fjallgarðinum. Þar voru hrossin
búin að koma sér í sjálfheldu í um
800 metra hæð.“
Einar fékk til liðs við sig vask-
an hóp fólks, meðal annarra vana
fjallabjörgunarmenn úr Björg-
unarfélagi Akraness og Atla bónda
í Dalsmynni. Héldu þeir áleið-
is að fjallinu á þremur sexhjólum
og fjórhjóli í birtingu mánudaginn
10. janúar. Veður var slæmt, en
ekið eftir GPS staðsetningartækj-
um. Á fjallið fóru fjallabjörgunar-
mennirnir búnir mannbrodd-
um, böndum og öðrum búnaði til
fjallaklifurs. Færðin á fjallinu var
erfið; klakabunkar og harðfenni
og skyggni auk þess lítið. Mann-
skapurinn fann þó hrossin og tókst
að koma múl á tvö þeirra áður en
haldið var í humátt niður snar-
bratta hlíðina. Heimferðin gekk
þó ekki áfallalaust. Á einum stað
runnu bæði hross og menn nið-
ur ísilagða brekkuna, um þrjátíu
metra. Enginn slasaðist en annað
mýlda hrossið slapp og stökk ásamt
því lausa frá mönnum. Var ákveðið
að skilja þau eftir. Þannig tókst að
endingu að koma einu hrossanna
til byggða í þessum áfanga. Ferðin
tók um átta tíma og komið heim að
Söðulsholti í myrkri.
Dagana á eftir var veður ófært
til leitar, látlaus lægðagangur. Enn
voru tvö hross í fjallinu og þegar
smá glenna kom fimm dögum síð-
ar fór hópur fólks til leitar. Með-
al björgunarsveitarmanna var Ron-
aldo Diaz, þaulvanur björgunar-
sveitarmaður frá Bifröst og hafði
hann dróna með í för. Eftir um-
fangsmikla leit á Skyrtunnu og í
Núpárdal á laugardaginn fundust
hrossin loks og tókst að reka þau
í aðhald á Dalsmynni og þaðan í
Söðulsholt. Nokkuð var af hross-
unum dregið eftir flakkið og hag-
leysið en þau eru nú að sögn Einars
óðum að braggast. Þurfa að byrja
hægt að nærast og þá eru þau
hreyfð reglulega í reiðhöllinni til
að koma meltingunni sem fyrst í
gang. mm
Lið MB sem tók þátt í Gettu betur í ár.
Aftari röð: Jóhann Haraldur, Elfa Dögg
og Kolbrún Líf. Fyrir framan þau eru
þeir Þórður Logi og Bjartmar Áki sem
voru varamenn ásamt Jöru Nataliu
sem er ekki á myndinni. jósm. MB.
FVA komið í átta liða úrslit
í Gettu betur
Lið FVA í Gettu betur: Kristrún Bára, Björn Viktor og Sigrún Freyja. Ljósm. ruv.is
Stykkishólmsbær. Ljósm úr safni
Úthlutað úr Lista- og
menningarsjóði Stykkishólms
Draumadís og Spaði á sunnudaginn þegar þau voru komin í hús í Söðulsholti.
Samsett mynd/ Halldóra Einarsdóttir.
Þrjú hross stukku til fjalla
Þegar hrossin fundust fyrst mánudaginn 10. janúar voru þau í 800 metra hæð
uppi í fjallinu Skyrtunnu. Ljósm. Sigurður Ingi Grétarsson.
Hér er verið að reka hrossin áleiðis til byggða á laugardagskvöldið.
Ljósm. Ronaldo Diaz.
Hér eru hrossin tvö komin í aðhald á Dalsmynni á laugardagskvöldið.
Ljósm. Halldóra Einarsdóttir