Skessuhorn - 19.01.2022, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2022 33
Búfræðings í Hvalfjarðarsveit
Dagur í lífi...
Nafn: Elín Ósk
Gunnarsdóttir
Fjölskylduhagir/bú-
seta: Gift Magnúsi Má
Haraldssyni, eigum þrjú
börn; Harald Magnús
9 ára, Sóleyju Margréti
7 ára og Arnar Marinó
4 ára. Við eigum einnig
tvo hunda, þær Loppu
og Nettu og kisuna
Skoppu. Búum í Belgs-
holti í Melasveit.
Starfsheiti/fyrirtæki:
Búfræðingur hjá Belgs-
holti ehf. og sveitar-
stjórnarfulltrúi í sveitar-
stjórn Hvalfjarðarsveitar.
Áhugamál: Kýrnar og
þeirra velferð, prjóna-
skapur og ýmis félags-
og samfélagsmál.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 13.
janúar 2022
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú gerð-
ir? Ég vaknaði um klukkan 7:45,
klæddi mig og fékk mér vatnsglas.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Fékk mér ristað brauð þegar ég
kom inn úr fjósi um klukkan 10:30.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Fór fótgangandi út í fjós
klukkan 7:50.
Fyrstu verk í vinnunni? Líta
yfir fjósið, athuga með stöðuna á
heyinu hjá kúnum.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Reyna að loka einni af hurðinni
á fjósinu en rokið feykti mér um
koll. Náðum þó að lokum að loka
hurðinni og komumst óslösuð inn.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Setti í þvottavél, gaf börnunum að
borða og fékk mér að borða.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Kíkti aftur út í fjós og gaf kálf-
unum hey.
Hvenær hætt og
það síðasta sem þú
gerðir í vinnunni?
Var búin um klukkan
19:30 í fjósinu, síðasta
sem ég gerði var að
sjá til þess að nóg hey
væri hjá kúnum og ró-
bótinn skolaður.
Hvað gerðirðu eftir
vinnu? Sinnti heimili
og börnum.
Hvað var í kvöld-
mat og hver eldaði?
Magnús græjaði ham-
borgara.
Hvernig var kvöldið?
Rólegt, spiluðum við
krakkana áður en þau
fóru að sofa, horfð-
um svo saman á þætti
í sjónvarpinu þegar
krakkarnir voru sofnaðir.
Hvenær fórstu að sofa? Um
klukkan 1.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Tannbursta og slökkva ljósin.
Hvað stendur upp úr eft-
ir daginn? Að hafa fokið tvisvar
sinnum á rassinn í rokinu!
Eitthvað að lokum? Verið góð
við hvert annað! Það eiga allir rétt
á sínum skoðunum!
Ökuskóli allra landsmanna
Upplýsingar, verð og skráning
inn á www.aktu.is
AKTU inn í
nýja áriðVerkleg kennsla í Reykjavík,
Akureyri og á Sauðárkróki
24. mars
5. maí
9. júní
Næstu námskeið
Næsta námskeið hefst 17. feb.
MEIRAPRÓFFjarkennsla
ERT ÞÚ AÐ
FYLGJAST
MEÐ?
Sími 433 5500 - skessuhorn@skessuhorn.is
www.skessuhorn.is
RAFRÆN ÁSKRIFT • BLAÐÁSKRIFT